Morgunblaðið - 24.02.2010, Síða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
KVENNAKÓR Garðabæjar
fagnar tíu ára afmæli sínu um
þessar mundir og efnir til
djasstónleika í gamla Hag-
kaupshúsinu á Garðatorgi
næstkomandi fimmtudag undir
yfirskriftinni „Djass á góu“. Á
efnisskránni verða þekkt söng-
lög, flest íslensk sem flutt
verða í djassbúningi við undir-
leik þeirra Ómars og Óskars
Guðjónssona, Matthíasar
Hemstock og Tómasar R. Einarssonar, en einnig
kemur söngkonan Þuríður Sigurðardóttir fram
með kórnum. Stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar
er sópransöngkonan Ingibjörg Guðjónsdóttir. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis.
Tónlist
Góudjass á Garða-
torgi í Garðabæ
Þuríður
Sigurðardóttir
Á SÍÐASTA ári kom út bókin
Allir í leik: Söngvaleikir barna
eftir Unu Margréti Jóns-
dóttur, sem er fræðileg úttekt
á söngvaleikjum barna á Ís-
landi með ítarefni um uppruna
leikjanna og tilbrigðin við þá.
Una Margrét hefur rannsakað
íslenska leikjasöngva frá árinu
1999 og á morgun, miðvikudag,
fjallar hún um leikjasöngva á
borð við „Fram fram fylking“
og „Bimm bamm bimm bamm“ og tengsl þeirra
við sams konar söngva erlendis í fyrirlestri á veg-
um Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
Fyrirlesturinn, sem hefst kl. 17:00, verður hald-
inn í aðalsafni Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu.
Þjóðfræði
Fram fram fylking í
Borgarbókasafninu
Una Margrét
Jónsdóttir
KATRÍN Elvarsdóttir opnar
ljósmyndasýningu sem kallast
Hvergiland í Listasafni
Reykjavíkur Hafnarhúsinu
næstkomandi fimmtudag.
Katrín lauk B.F.A. gráðu frá
Art Institute of Boston árið
1993 og hefur síðan þá sýnt
víða, bæði í Bandaríkjunum,
Evrópu og á Íslandi.
Í texta sem Sigrún Sigurð-
ardóttir hefur ritað um sýn-
ingu Katrínar segir m.a.: „[Katrín Elvarsdóttir]
beitir ljósmyndinni til að skapa ímyndaðan heim
sem sprottinn er úr veruleikanum sjálfum og
dregur þannig fram framandleika umhverfis sem
alla jafna er álitið hversdagslegt.“
Ljósmyndun
Hvergiland í Lista-
safni Reykjavíkur
Katrín
Elvarsdóttir
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson hefur verið á allra
vörum frá því hann sigraði í háskólaflokki píanó-
keppni Íslandsdeildar Evrópusambands píanó-
kennara fyrir rúmum níu árum. Frá þeim tíma hef-
ur vegur hans vaxið hér heima og erlendis og hann
er marglofaður og -verðlaunaður fyrir frammistöðu
sína og nægir að nefna að hann hefur tvívegis feng-
ið Íslensku tónlistarverðlaunin og er nú tilnefndur
til tvennra verðlauna og hlaut að auki Íslensku
bjartsýnisverðlaunin fyrir ári.
Ekki skortir hann heldur verkefnin; á fimmtu-
dags- og föstudagskvöld glímir Víkingur við eitt af
helstu verkum píanóbókmenntanna, 1. píanókons-
ert Chopins, í Rauðri tónleikaröð Sinfóníunnar, en
uppselt er á hvora tveggju tónleikana. Á mánudag
flýgur hann svo til Finnlands þar sem hann hyggst
spila enn erfiðara verk, þriðja píanókonsert Rak-
hmaninoffs með Fílharmóníuhljómsveit Turku í lok
næstu viku undir stjórn Petri Sakari, sem er Ís-
lendingum að góðu kunnur.
Í þessu ljósi kemur kannski ekki á óvart að sam-
tal okkar hefst á spjalli um það í hve góðu lík-
amlegu formi Víkingur er: „Ég er eiginlega að
vinna tvöfald eða þrefalt miðað við það sem venju-
lega er og búinn að átta mig á því að formið skiptir
gríðarlega miklu máli, enda er það ekkert svo
óskylt því að vera íþróttamaður og að vera píanó-
leikari; það eru mikil átök að spila píanókonserta og
síðan að vera á sífelldu ferðalagi og spennan sem
fylgir því að vera að fást við ný og ný verk op-
inberlega. Maður þarf að byggja líkamann mark-
visst upp, þjálfa bakið og handleggsvöðvana og
hafa gott úthald. Þetta er ekki bara spurning um að
mæta á staðinn og vera innblásinn og finna ein-
hvern anda, þó að það sé mikilvægasti parturinn.
Það er fullt af tónlist sem krefst ekki sama út-
halds og styrks, en ég held að fólk átti sig ekki allt-
af á því hvað það er mikil vinna að spila píanókons-
erta og ég las það einhvers staðar á netinu að það
væru fáar starfsgreinar þar sem starfsmenn
brenndu eins miklu og píanóleikarar gera við það
að spila konserta, þannig að það er mjög heilsu-
samlegt að spila á píanó,“ segir hann og hlær, „en
það getur algerlega farið með sálina í mönnum,
maður verður að vera sterkur á báðum sviðum.
Þetta verður náttúrlega erfitt en ég er búinn að
undirbúa mig vel fyrir báða konsertana á síðustu
mánuðum og þetta verður bara skemmtilegt.
Þetta er svona – maður verður annars vegar að
hugsa vel fram í tímann og svo hinsvegar að taka
einn dag í einu.“
Margbrotin tónlist
Píanókonsert Chopins hefur verið Víkingi
Heiðari hugleikinn í gegnum tíðina. Hann nefnir
það að Svana Víkingsdóttir, móðir hans, spilaði
konsertinn á sínu lokaprófi í píanóleik og síðan
þegar hann var tíu ára fékk hann að gjöf geisladisk
með Evgení Kissin að spila píanókonserta Chop-
ins.
„Kissin var tólf ára þegar diskurinn var tekinn
upp og ég einsetti mér að spila báða konsertana
þegar ég væri orðinn tólf ára og nú er loks komið
að því,“ segir Víkingur og hlær við. „Fyrir mér hef-
ur Chopin verið mesta áskorunin og þá ekki bara
líkamlega heldur líka ljóðrænt. Þetta er marg-
brotin tónlist; mesta áskorunin í henni er það hvað
hann teflir fram gífurlega stórum tilfinningum og
ástríðum en samt er hún líka innhverf og persónu-
leg. Maður þarf að vera með þessar risastóru til-
finningar án þess að þær verði yfirborðskenndar
og það er vandasamt að finna það jafnvægi. Þetta
er æskuverk Chopins, glæsibravúrakonsert en það
er svo miklu meira undir yfirborðinu og það er það
sem ég er að reyna að ná fram.“
Morgunblaðið/Ernir
Áskorun Víkingur Heiðar Ólafsson leikur 1. píanókonsert Chopins með Sinfóníuhljómsveitinni á tvennum tónleikum í Háskólabíói, á fimmtudag og föstu-
dag. Hann segir að tónlistin sé margbrotin; Chopin tefli fram gífurlega stórum tilfinningum og ástríðum en samt sé tónlistin líka innhverf og persónuleg.
Chopin mesta áskorunin
Leikur 1. píanókonsert
Chopins í þessari viku
… og 3. píanókonsert
Rakhmaninoffs í næstu viku
Áþekkt að vera íþrótta-
maður og píanóleikari
Fyrsti píanókonsert Frédéric
François Chopins er í raun annar
píanókonsert hans, ef svo má
segja, því hann samdi opus 21
konsertinn (annan píanókons-
ertinn) áður en hann samdi opus
11 konsertinn (fyrsta píanókons-
ertinn).
Báða konsertana samdi Chop-
in um tvítugt og rétt búinn að
ljúka námi, þann síðari 1829, og
frumflutti hann sjálfur í Varsjá í
desember 1829, en þann fyrri
frumflutti hann 17. mars 1830 og
því vel við hæfi að hann sé flutt-
ur á Íslandi núna, fjórum dögum
fyrir tvö hundruð ára afmæli
tónskáldsins og þrem vikum fyr-
ir 180 ára afmæli tónverksins.
Konsertarnir voru ekki gefnir
út fyrr en 1833 að opus 11 kons-
ertinn kom út, en opus 21 kons-
ertinn kom út 1836 og var þá þar
með orðinn seinni píanókonsert
Chopins.
Fyrri konsertinn, opus 11, er
saminn undir miklum áhrifum
frá óperutónskáldinu Bellini og
þá aðallega má finna óm úr
Normu í verkinu.
Fyrsti píanókonsertinn er annar píanókonsertinn
Frédéric François Chopin
JAPANSKI rit-
höfundurinn Ha-
ruki Murakami
nýtur mikillar og
vaxandi hylli um
allan heim og
einnig hér á landi,
en þrjár bóka
hans, Sunnan við
mærin, vestur af
sól, Spútnik-ástin
og Eftir skjálft-
ann, hafa komið út á íslensku.
Fimm ár eru liðin frá síðustu bók
Murakamis og sjö ár frá síðustu
stóru skáldsögu og því bíða margir
óþreyjufullir eftir næstu skáldsögu
hans. Austur í Japan þurfa menn
ekki að bíða, því skáldsagan 1Q84
hóf að koma út þar í landi á síðasta
ári. Þegar hafa tvö bindi bókarinnar
komið út, en þriðja bindið kemur út í
apríl næstkomandi. Gert er ráð fyrir
að fyrstu tvö bindin komi út í enskri
þýðingu í september á næsta ári og
þriðja bindið einhverju síðar, en
þýðendur verða tveir. Þess má geta
að bókin er einnig komin út í Kóreu
og sat þar nítján vikur í efsta sæti
bóksölulistans.
Heiti bókarinnar, 1Q84, er orða-
leikur, því hljóðin Q og 9 eru eins á
japönsku og því vísar titill bók-
arinnar til skáldsögunnar 1984 eftir
George Orwell, en ein söguhetja
bókarinnar telur sig hafa komist á
snoðir um heim til hliðar við okkar
sem hún kallar 1Q84 með Q-ið sem
spurningarmerki. Þetta er þó ekki
eina tengingin við bók Orwells því
1Q84 gerist einnig 1984; fyrsta bind-
ið nær yfir tímabilið frá apríl til júní
og annað bindið júlí til september.
Mikil leynd hvíldi yfir bókinni áð-
ur en hún kom út og skapaði slíka
spennu að hún seldist í ríflega millj-
ón eintökum í Japan í fyrsta útgáfu-
mánuðinn.
Ný bók
Mura-
kamis
1Q84 vísar í 1984 eftir
George Orwell
Haruki
Murakami
ÞAÐ getur
borgað sig að
fletta aðeins í
hasarblaða-
bunkanum áður
en honum er
hent á haugana;
á mánudag seld-
ist fyrsta eintak
Action Comics á
sem nemur um
130 milljónum
króna, en fyrsta eintak þess rits er
aðallega í metum fyrir það að þar
birtist stálmaðurinn Superman í
fyrsta sinn. Blaðið kom út í júní
1938, en ekki er vitað um nema 100
eintök af téðu blaði.
Þetta tiltekna eintak af Action Co-
mics #1 seldist á ríflega tvöfalt
hærra verði en áður hefur verið
greitt fyrir fyrsta Superman-blaðið,
en þetta eintak var eitt af þremur
best varðveittu eintökum heims.
Þess er og getið að kaupandinn átti
eintak fyrir, en ekki í eins góðu ásig-
komulagi. Sá sem átti það fyrir
keypti það á uppboði fyrir um tutt-
ugu milljónir króna fyrir fimmtán
árum.
Milljónir fyrir
fyrsta Super-
man-blaðið
Fyrsta Superman-
blaðið.
Þegar öllu er á
botninn hvolft eru
það auglýsendur sem
borga – fyrir aðgang að
okkur! 28
»