SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 2

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 2
2 5. desember 2010 Við mælum með 5. desember Hin árlega jólasýning Árbæj- arsafnsins er haldin nú þrjá sunnudaga fyrir jól. Þar geta ung- ir sem aldnir rölt milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að föndra, syngja jólalög og ferðast um í hestvagni. Jól í anda liðinna tíma 6 Wikileaks til góðs eða ills? Snýst leyndin um að fela eða vernda er spurt í Vikuspegli. 18 Hrifinn af fjölbreytileika … Árni Bergmann rithöfundur segist dæmdur til að efast um allt sem sé honum mikils virði. 38 Pöddur þekkja engin landamæri Sóttvarnir eru í eðli sínu alþjóðlegar og fyrir vikið starfar Haraldur Briem sóttvarnalæknir í alþjóðlegu umhverfi. 43 Kálfur fæddist í miðri máltíð Friðrik V. hermir af matargerð í Mývatnssveit og Steingrímur Sig- urgeirsson rýnir í vínskemmdir. 44 Dræm velgengni Sæbjörn Valdimarsson segir karlkyns leikara frá Norðurlöndunum löngum hafa átt erfitt uppdráttar í henni Hollywood. 45 Vík er ein af stórborgunum Guðný Guðnadóttir býr við Ránarbraut í Vík í Mýrdal. 47 Smákökualsæla Þá er komið að hinu árlega smákökuæði! Smákökurnar fylla nú hvern munn og maga og um að gera að njóta þess. Lesbók 52 Skreytið meinhorn Bandaríski rithöfundurinn David Sedaris hefur notið mikilla vinsælda fyrir ýkjusögur af sjálfum sér og ótal meinlegum uppákomum. 50 Ósýnileg stétt Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur tilnefnd til Íslensku bók- menntaverðlaunanna fyrir Sögu hjúkrunar á Íslandi á 20. öld. 21 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Ernir Eyjólfsson Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson. Augnablikið Í gamla slippinn við Mýrargötu er ég boðaður til að sjá nýjan meist- ara uppistandsins, Ara Eldjárn, grínast við áhorfendur. Þar er tímabundið búið að innrétta kaffihús fyrir sjónvarpsupptökurnar. En efnið verður hluti af sjónvarpsþáttunum Hringekjunni sem er sýnd á besta tíma hjá RÚV á laugardagskvöldum. Ekki er allt í plati því barinn í sviðsetningunni býður upp á alvöru bjór sem mýkir áhorfendur upp. Áður en meistarinn stígur á svið kemur Þórhallur Þórhalls- son fram til að hita áhorfendur upp. Hann segir að áhorfendur þurfi engar áhyggjur að hafa því að upptökuvél- arnar séu ekki einu sinni í gangi þegar hann grínist. Sjónvarpið tími ekki að eyða spólu í grínið hans. Hann minnir áhorfendur á að vera hláturglaðir og fær áhorfendur til að vera viðbúna með því að hlæja hátt og lengi. Þegar svo Ari Eldjárn stígur upp á sviðið eru menn þegar skælbrosandi. Frásagnarhæfni og skopskyn Ara fær menn fljótlega til að liggja í hlátri. Sumir menn kunna það sem þeir eru að gera. Eins og Sindri félagi minn sagði um Ara þá er hann algjör Brand-Ari. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Það er hollt að hlæja og mikilvægara að fara á grín með Ara en að fara í líkamsræktina. Morgunblaðið/Eggert Herra Brand-Ari Arinn sjálfur mættur og fékk sér vatn á meðan aðrir kneyfuðu ölið. Áhorfendur fóru skælbrosandi í rúmið þetta kvöldið. 4. desember Útgáfuhátíð Geimsteins 2010, Selma Björns, Klassart og fleiri skemmta tónleikagestum á Nasa. 10. desember Litla flugan, öll helstu lög Sigfúsar Halldórs- sonar eins og Litla Flugan og Dagný flutt- ar af þeim Stefáni Hilmarssyni og Agli Ólafssyni. 12. desember Ævintýrið um Augastein sýnd í Tjarnarbíó. Sýningin er klassísk jólasaga með óvæntri fléttu þar sem Steinn gamli í minjagripabúð- inni segir börnunum ýmis konar sögur. 8

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.