SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Qupperneq 6
6 5. desember 2010
Fjölmiðlar víða um heim hafa tekið afstöðu til skjala-
birtingar WikiLeaks og sýnist sitt hverjum.
Í bandaríska vinstra blaðinu The Nation er fjallað um þá
miklu leynd, sem hvílir yfir aðgerðum Bandaríkjanna á er-
lendri grund. Leynileg stríð eigi sér stað í Pakistan og
Jemen. Í stríðinu í Afganistan geri bandarískar sérsveitir
árásir og fremji morð á laun. Bandaríska leyniþjónustan,
CIA, sé með leyniher í Afganistan. Leynistimpill sé á öll-
um gögnum um störf Stanleys McChrystals herforingja í
Írak. Niðurstaða blaðsins er sú að birting WikiLeaks á
gögnunum þjóni þeim tilgangi að afhjúpa ósannindi, sem
yfirvöld beiti til að ekki dragi enn frekar úr stuðningi al-
mennings við aðgerðir þeirra.
Á vefsíðu The New Yorker skrifar Raffi Katchadourian
að efast megi um að fullyrðingar stjórnvalda um að birt-
ing gagnanna sé ólögleg standist. Fjölmiðlar hafi iðulega
leynigögn undir höndum. Eins virðist yfirlýsingar Clinton
um að birtingin ógni þjóðaröryggi ýkjukenndar.
Katchadourian bendir á að nýlundan í starfsemi Wiki-
Leaks felist í magninu, birtingu heilla gagnabanka. Hann
telur að hefði Assange tekið sig til og birt smám saman
fréttir upp úr gögnum í stað þess að demba þeim öllum út
í einu hefðu viðbrögðin verið önnur. Þá hefði hvorki verið
talað um njósnir né hryðjuverk, heldur einfaldlega fréttir.
Njósnir, hryðjuverk eða einfaldlega fréttir?
Ástralinn Julian Assange, stofnandi WikiLeaks,
hefur valdið uppnámi með birtingu leyniskjala.
Reuters
E
rfitt hefur verið að halda vefsíðu
uppljóstrunarvefjarins Wiki-
Leaks gangandi eftir að aðstand-
endur hans komu á framfæri
rúmlega 250 þúsund bandarískum sendi-
ráðsskjölum við valda fjölmiðla í fimm
löndum.
Í skjölunum birtist í raun sýn banda-
rískra stjórnvalda á heiminn. Þar má lesa
vafningalaust mat á ráðamönnum víða um
heim og samskiptum við þá og er birtingin
í mörgum tilfellum hin vandræðalegasta
fyrir Bandaríkjamenn.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fordæmdi birtingu skjal-
anna harðlega á þriðjudag: „Þessi upp-
ljóstrun er ekki aðeins árás á utanrík-
ishagsmuni Bandaríkjanna. Þetta er árás á
alþjóðasamfélagið – bandalögin og sam-
starfsríkin, viðræðurnar og samn-
ingagerðirnar, sem tryggja öryggi heims-
ins og stuðla að efnahagslegri velmegun.“
Clinton sagði að samskipti ríkisstjórna
væru ekki eina áhyggjuefnið sem fylgdi
birtingu þessa efnis: „Bandarískir stjórn-
arerindrekar hitta baráttumenn fyrir
mannréttindum, blaðamenn, trúar-
leiðtoga og aðra sem standa utan raða
stjórnvalda og tala opinskátt um innsýn
sína. Þessi samtöl byggjast líka á trausti og
trúnaði. Til dæmis, ef baráttumaður gegn
spillingu deilir upplýsingum um misferli
opinberra aðila, eða ef hjálparstarfsmaður
afhendir skjöl um kynferðislegt ofbeldi,
gæti uppljóstrun um hver viðkomandi er
haft alvarlegar afleiðingar: fangelsun,
pyndingar, jafnvel dauða.“
Verði stimpluð hryðjuverkasamtök
Í Bandaríkjunum hafa komið fram hörð
viðbrögð vegna lekans. Philip Crowley,
talsmaður bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins kallaði Assange „anarkista“.
Liz Cheney, dóttir Dicks Cheneys, fyrr-
um varaforseta Bandaríkjanna, ítrekaði í
sjónvarpsfréttum í Bandaríkjunum í lið-
inni viku, að hún teldi að stjórnvöld á Ís-
landi ættu að loka vefsíðunni WikiLeaks.
„Ég tel enn og aftur, að ríkisstjórn Íslands
eigi að loka þessari vefsíðu. Ég tel að þau
eigi ekki að leyfa þessu efni að birtast á
vefsíðunni á Íslandi og ég tel að rík-
isstjórnin eigi að einbeita sér að því að
sækja þá, sem bera ábyrgð á þessu, til
saka,“ sagði Cheney við sjónvarpsstöðina
Fox, en þess má geta að síðan er ekki vist-
uð hér.
CNN hafði eftir Mick Huckabee, sem
sóttist eftir að verða forsetaframbjóðandi
repúblikana í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, að
þeir, sem bæru ábyrgð á lekanum hefðu
gerst sekir um landráð og ættu að eiga
dauðadóm yfir höfði sér.
Peter King, flokksbróðir hans og for-
maður nefndar fulltrúadeildarinnar
Bandaríkjaþings um öryggi innanlands,
þrýsti á Barack Obama Bandaríkjaforseta
að skilgreina WikiLeaks sem hryðjuverka-
samtök.
Tom Flanagan, ráðgjafi Stephens Har-
pers, forsætisráðherra Kanada, sagði í
hálfkæringi í sjónvarpsviðtali að „ráða ætti
Assange af dögum“ og bætti við að Obama
ætti að setja fé til höfuðs honum og „nota
kannski ómannaða flugvél“.
Telja Assange í hættu
Slíkar yfirlýsingar hafa orðið til þess að
innan WikiLeaks er litið svo á að Assange
sé í hættu. „Við höfum fengið hótanir frá
ríkisstjórnum og fréttaskýrendum, sumar
þeirra algerlega fáránlegar, jafnvel áskor-
anir um að ráða Julian Assange af dögum,“
sagði Kristinn Hrafnsson, talsmaður
WikiLeaks, í umræðum í Front-
line-klúbbnum.
Hann sagði að tímasetning hand-
tökuskipunar Interpol á hendur Assange í
liðinni viku vekti spurningar.
Stjórnvöld víða um heim hafa gagnrýnt
WikiLeaks og eiginlega ríkir bara ánægja í
herbúðum Ísraela, sem hafa lýst yfir því að
skjölin sýni að þeir séu sjálfum sér sam-
kvæmir hvort sem þeir koma fram op-
inberlega eða í trúnaði.
Fyrsti umgangur forsíðna blaðanna The Guardian, The New York Times, Der Spiegel, Le Monde og El País, sem fengu aðgang að sendiráðsskjölunum hjá uppljóstrunarvefnum WikiLeaks.
Reuters
WikiLeaks til
góðs eða ills?
Snýst leyndin um að
fela eða vernda?
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks, ræðir við blaðamenn í London.
Reuters
„Guð einn veit hvað gerist nú.
Vonandi umræða um allan
heim, skoðanaskipti og um-
bætur. Ef ekki … er úti um
okkur sem tegund. Ég mun
opinberlega gefa upp von um
samfélag okkar ef ekkert ger-
ist.“
Bradley Manning eftir að hafa
sent skjölin til Wikileaks. Hann
situr nú í fangelsi.
Vonandi umbætur
h fð
ir J
óla
hefð
hefð
ir
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
ir
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
ir
h fð
ir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
ðir
Jó
lah
efði
r
J
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jólahefðir
Nóatúns
Gómsætar uppskriftir af
vinsælasta jólamat
Íslendinga undanfarin ár.
Meistarakokkurinn Friðrik V
er höfundur uppskriftanna
og setur hann réttina í óvæntan
en skemmtilegan búning
sem gælir svo sannarlega
við bragðlaukana.
Fáanlegur í
næstu verslun Nóa
túns
www.noatun.is