SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 35
5. desember 2010 35
B
unch of money,“ sagði Megas er hann var spurður hvaða þýðingu það hefði
fyrir hann að fá Jónasarverðlaunin á degi íslenskrar tungu.
Þetta vakti kátínu hjá sumum, hneykslan hjá öðrum. Og má segja að hvort
tveggja sé einkenni á ferli meistara Megasar. En ekki fer á milli mála, að fer-
ill hans hefur mikla þýðingu fyrir íslenska tungu. Lagatextar hans eru sungnir á
mannamótum. Og þó að framburðurinn sé ekki alltaf skýr eða greinilegur, þá leggja
aðdáendur hans bara þeim mun meira á sig við að hlusta eftir orðunum – ljóðum í
bundnu máli.
Memfismafían hefur einnig haft mikið fram að færa fyrir íslenska tungu og er þó fer-
illinn rétt að hefjast. Inga Rún Sigurðardóttir ræðir við þríeykið, sem starfar þéttast
saman innan þessarar listhneigðu mafíu, í Sunnudagsmogganum í dag. Það eru þeir
Guðmundur Kristinn Jónsson eða Kiddi Hjálmur, Bragi Valdimar Skúlason og Sigurður
Guðmundsson. Og fer ekkert á milli mála af hverju þeir velja íslensku fyrir listsköpun
sína, eins og Kiddi Hjálmur kemst að orði:
„Okkur hefur aldrei dottið í hug að gera plötu með enskum textum. Ég hlusta sjálfur
á Spilverkið, Megas og alla þessa músík sem er á íslensku. Það er auðveldara að fela sig
á bak við enskan texta en ég hef alltaf verið með svo góða textasmiði í kringum mig að
ég hef ekki þurft að gera það.“
Alveg á sama hátt munu textahöfundar eftir tíu, tuttugu og þrjátíu ár vísa til laga-
texta Memfismafíunnar og detta ekkert annað í hug en að semja á íslensku. Það var því
vel til fundið að veita Baggalúti og Hjálmum sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við
íslenska tungu þegar Jónasarverðlaunin voru afhent á dögunum.
Og það þarf ekki að felast fórn í því fyrir listamenn, að temja sér íslenskuna, eins og
Bragi Valdimar bendir á í blaðinu í dag: „Til lengri tíma litið, á meðan það er ennþá töl-
uð íslenska hérna, hefur tónlist á íslensku lengri líftíma. Fólk tengir best við tungumál,
sem það talar, skilur og hugsar á.“
En Memfismafían leyfir sér engu að síður að bregða á leik með tungumálið, sækja í
erlenda strauma, slettur og tökuorð, ekkert síður en Megas. Sigurður Guðmundsson,
þriðji mafíósinn sem rætt er við í dag, segir tungumálið ekki staðnað:
„Ég held að það sé líka mjög mikilvægt fyrir hverja kynslóð að bæta í. Það er ekkert
gaman að vera sífellt að syngja texta eftir Jónas. Það er bara ákveðin heimild um
tungumál á ákveðnum tíma. Málið breytist og þróast.“
Það þóttu tíðindi þegar vísindamenn fundu lífsform sem nærist á arseniki. Og það er
við hæfi að enda þennan lestur á tilvitnun í fréttasíðu Baggalúts, skilgetið afkvæmi
Memfismafíunnar, þar sem lagt er út af þessari merku uppgötvun:
„Vísindamenn NASA, geimferðastofnunar Bandaríkjanna, hafa fundið áður óþekkta
gerð af lífi. Þetta tiltekna líf deilir ekki sömu líffræðilegu uppbyggingu og önnur þau
lífsform sem finnast á jörðinni.
Í stað þess að vera með litninga sem innihalda fosfór þá innihalda litningar fyrirbær-
isins arsenik, absint og áður óþekktan málm, Megasíum. Þá er lífsformið gætt bæði of-
urgreind og að öllum líkindum snert af ódauðleika.
Íslendingar ættu þó ekki að kippa sér upp við tíðindin því lífsformið er allþekkt hér á
landi og gegnir tegundarheitinu Megas.“
Listhneigða mafían
Að skrifa hundrað tölustafi í 25 línur
er Íslendingum alveg ofviða.
Jónas Kristjánsson fv. ritstjóri og frambjóðandi til
Stjórnlagaþings um síðustu helgi.
Í gamla daga reyndi ég að komast
sem hraðast, en nú reyni ég að hægja
á liðinu og sekta þá sem fara of hratt.
Bjarni Stefánsson sýslumaður á Blönduósi og fv. ól-
ympíukeppandi í spretthlaupum.
Það ætti að ráða Assange af
dögum.
Tom Flanagan ráðgjafi forsætisráð-
herra Kanada um stofnanda Wiki-
leaks.
Þetta var röng ákvörð-
un.
Barack Obama Bandaríkjaforseti eftir að
FIFA ákvað að HM í fótbolta 2022 yrði í
Qatar. Bandaríkin sóttu líka um.
Ólafur Ragnar
hefur setið í 16 ár,
fjögur kjörtímabil.
Hann gengst upp í því að setja söguleg
met. Hann mun bjóða sig fram til
fimmta kjörtímabilsins og hann hefur
fundið pottþétta aðferð til að tryggja
sér kosningu: Hann setur erfið mál í
þjóðaratkvæði.
Svavar Gestsson fyrrverandi ráðherra Alþýðu-
bandalagsins og sendiherra.
Allt félagslífið í skólanum er áfeng-
is- og vímuefnalaust.
Óli Dagur Valtýsson formaður skóla-
félags MA.
Uppgötvunin snýst um,
að lífverur geta lifað af
fleiri efnum en þeim sex,
sem við höfum til þessa
talið. Það þýðir, til dæmis,
að það kann að leynast líf
víðar en við héldum.
Felise Wolfe-Simon, vísindamaður
hjá NASA eftir að áður óþekkt
gerð af lífi fannst í vatni í
Kaliforníu.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
koma til álita sem slík. Svo var þeim skyndilega
stórfækkað. Hvernig gerðist það? Svo hefur verið
sagt án þess að nægjanlegar skýringar hafi verið
gefnar að 78 sinnum hafi þurft að varpa hlutkesti á
milli frambjóðenda í þessu furðulega kosn-
ingakerfi. En spyrja má: Hvenær fór fram og hvar
ítarleg umræða um það hvers vegna þessi kosn-
ingaóskapnaður skyldi notaður við þessa mik-
ilvægu kosningu. Því þótt svo illa hafi til tekist að
þátttökuleysið gefi ráðstefnunni ekki annað um-
boð en að leggja niður sitt hjal hið fyrsta, þá hlutu
menn að ganga til verks með öðru hugarfari.
Kosningin sjálf var í upphafi spurning um hvort
íslenskir kjósendur væru hlynntir kosningu af
þessu tagi, hvort þeir væru hlynntir svokölluðu
persónukjöri og að landið yrði eitt kjördæmi.
Kosningaþátttakan hafnaði öllum þessum þáttum
með afgerandi hætti. Það er gott að það sé frá.
Fyrst að þessi tilraun hefur misheppnast svo hrap-
allega, eins og þeir sem töldu að áhrif hennar færu
eftir kosningaþátttöku hljóta að viðurkenna, er
æskilegast að hið rétt kjörna Alþingi taki málið í
sínar hendur, setji punkt aftan við fíflaganginn og
ræði á sínum vettvangi, eins og því er skylt, hvort
einhver sérstök ástæða sé til að breyta einhverjum
ákvæðum stjórnarskrár einmitt núna. Verði sú
niðurstaðan er best að samþykkja þær breytingar
strax og rjúfa svo þing og efna til kosninga eins og
stjórnarskráin mælir fyrir um. Verði niðurstaðan á
hinn bóginn sú að þær breytingar sem vissulega
hafa verið gerðar á stjórnarskránni á und-
anförnum árum séu nægjanlegar og við margvísleg
önnur og brýn verkefni sé að fást um þessar
mundir þá er það jafn góð niðurstaða.
Besta aðgerðin fyrir skuldug heimili
Núverandi ríkisstjórn er í hlutverki bilaðrar
bremsu á illa smurðu hjóli og reyndar sýnist hún
að auki löngu dottin af hnakknum og hefur upp á
síðkastið haft stýrið á bögglaberanum. Hún lifir
fyrir ruglanda sem er það sem þjóðin sjálf telur sig
þurfa minnst á að halda. Þess vegna eru ráðherr-
arnir persónulega hinir óvinsælustu sem hér hafa
setið í áratugi. Og þykir engum skrítið. Því fyrr
sem þeir fara, því betra. Það væri langbesta aðgerð
í þágu skuldugra fjölskyldna sem hægt væri að
framkvæma. Og hún myndi svínvirka. Ekki eftir
helgi, eða öðruhvorumegin við miðja viku í októ-
ber sl., heldur strax.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lágflug við
Lækjargötu.