SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Qupperneq 40

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Qupperneq 40
40 5. desember 2010 K ristín Loftsdóttir var að senda frá sér á bókina Kon- an sem fékk spjót í höfuðið – flækjur og furðuheimar vettvangsrannsókna. Bókin fjallar um veru hennar á meðal WoDaaBe- fólksins í Vestur-Afríku, frá ágúst 1996 til júní 1998, til að safna gögnum fyrir doktorsritgerð sína í mannfræði. Krist- ín er nú prófessor í mannfræði við Há- skóla Íslands og kemur bókin út á veg- um Háskólaútgáfunnar en er skrifuð þannig að hún á sannarlega erindi utan fræðasamfélagsins. Hægt er að ljóstra upp hér að konan sem fékk spjót í höfuðið var Kristín sjálf og notar hún þetta dæmi til að sýna að margt óvænt getur komið upp á við vettvangsrannsóknir. „Ég var að skoða stöðu þessa þjóð- flokks, WoDaaBe, í hnattvæddum heimi og hvernig fólk sem tilheyrir þessum hópi, sem hefur sögulega séð skilgreint sig sem hirðingja, glímir við vandamál samtímans eins og það að hafa misst yfirráðarétt yfir stórum hluta af landsvæði sínu og aukna jað- arstöðu innan ríkisins Nígers. Bókin tekur ekki beinlínis á niðurstöðunum, meginviðfangsefnið er fyrst og fremst Farandverkakona í Níamey saumar út og gefur barni sínu brjóst. Fékk spjót í höfuðið Kristín Loftsdóttir var stúlkan Mariyama í tvö ár á meðan hún bjó í Níger. Kristín, sem er nú prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, kvaddi WoDaaBe-fólkið fyrir tólf árum en rifjar nú upp reynsluna í nýútkominni bók. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Litlir strákar fylgjast vel með hinum eldri á danshátíðum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.