SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 49
5. desember 2010 49
LÁRÉTT
1. Veld móðu hjá garmi vegna ákafra. (10)
4. Kona í partíi nær að vera eitthvað þú mátt kjósa. (4,1,4)
7. Beiskur vökvi er í sýningarsal. (7)
9. Sláninn má ruglast yfir skuldunum. (9)
11. Afnuminn hreppur hefur herflokk sem hefur mjög
slæmt hlutverk. (11)
12. Rein fær ekkert út úr gerviefni. (5)
13. Alger ávöxtur helvítis. (6)
14. Skarpskyggn á áfengi (5)
16. Met angaskinnið sem loft. (8)
18. Illarnir missa 50 fyrir fet út af dýrunum (10)
21. Ljósfæri labbar með 50 til manns. (10)
23. Æskilegu reikningsdæmin finnast á svæðunum. (9)
25. Glimrandi ljóð. (5)
27. Það vandi með ax og hann fer ekki minnkandi. (7)
28. Ennþá einu sinni maður einn tekur til baka. (10)
29. F eða V á ensku. Það er líka enska fyrir enn eina
hnýsni. (8)
33. Nær fjölskylda að setja bor við fallegt? (8)
34. Þið farið af þrælamarkaði með tæki til að meta vætu.
(9)
35. Far flækist um með færni til að aka bíl og finnur nytjar.
(14)
LÓÐRÉTT
1. Það að stúdera veraldarlegar eigur getur leitt til að þær
séu teknar gegn vilja þínum. (9)
2. Óp við rúmið hjá þeim sem hefur frumkvæði. (7)
3. Englar úr gulli vefjast fyrir sorgmæddri. (8)
5. Víð rönd á trépalli. (7)
6. Kýs fórnarlamb ekki á slæman hátt. (7)
8. Íþróttafélag fær jörð til að hugsa (7)
9. Norðurátt kemur á býli og dvalarstað. (7)
10. Svipuð fangbrögð hjá óvenjulegri. (7)
14. Eyðileggja eiði. (6)
15. Með hálfgerðri vindgáru sjást þarmar háðfuglanna.
(11)
17. Bú til belti í kafla um öðruvísi. (7)
19. Ekki sökkva fyrir ófrýnilega. (6)
20. Nafna Báru og félagi hennar hittu fornvin. (9)
21. Plan hræfugla verður sýnilegt kvenkyns ættingja. (8)
22. Karamellur sýna dugnað. (6)
24. Það var talað um smæsta (6)
26. Efnafræðieining og ólyfjan sjást hjá brúnum. (8)
30. Snjóstormar færa okkur dýr. (5)
31. Hættuleg er á mörkum þess að vera váveifleg. (5)
32. Ást í afkima. (4)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta Morgun-
blaðsins, Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 5. desember rennur út 9.
desember. Nafn vinningshafans birt-
ist í blaðinu 12. desember. Heppinn
þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi kross-
gátunnar 28. nóvember er Gísli Guðmundsson.
Hann hlýtur í verðlaun bókina Indjáninn – skálduð
ævisaga eftir Jón Gnarr. Mál og menning gefur út.
Krossgátuverðlaun
Fáir skákmenn hafa notið við-
líkrar hylli hér á landi og Boris
Spasskí. Aðdáendum hans og
velunnurum hans var því illa
brugðið þegar fréttir bárust af
því að hann lægi alvarlega veikur
eftir heilablóðfall í september sl.
Hann var heiðursgestur á skák-
móti kvenna í Moskvu þegar
hann hné skyndilega niður.
Spasskí er fæddur 30. janúar 1937
og þó kominn sé af léttasta skeiði
hefur hann alla tíð verið vel á sig
kominn líkamlega. Spasskí dvel-
ur nú á sjúkrahúsi í París og mun
væntanlega útskrifast þaðan um
miðjan janúar og horfur á fullum
bata munu vera góðar. Hann
biður vini sína um að hafa ekki
alltof miklar áhyggjur af sér.
Árið 1969 vann Spasskí Tigran
Petrosjan 12 ½ : 10 og varð þar
með heimsmeistari, sá tíundi í
röðinni. Nafn hans er í dag ekki
minna þekkt á alþjóðavísu en t.d.
Kasparovs eða Karpovs en þó er
samanburður við þessa tvo hon-
um ekkert sérlega hagstæður.
Eftir stóra einvígið í Reykjavík
var hann lengi eins og skugginn
af sjálfum sér. Þó hafa komið
fram skákmenn, eins og t.d.
bosníski stórmeistarinn Ivan
Sokolov, sem telja Spasskí hik-
laust einn af merkilegustu skák-
mönnum sem uppi hafa verið.
Spasskí hefur sjálfur haldið því
fram við ýmis tækifæri að tíma-
bilið frá 1964 – 1970 sé sitt besta
en frá þessum árum er oft vitnað
til frábærrar meðhöndlunar hans
á flóknum miðtaflsstöðum. Þar
er að finna námu fróðleiks.
Spasskí yfirbugaði Keres, Geller
og Tal í áskorendaeinvígjunum
árið 1965 og árið 1968 vann hann
Geller, Larsen og Kortsnoj. Ef frá
er skilið einvígið við Paul Keres
(6:4) vann hann öll þessi einvígi
með þriggja vinninga mun. Hann
var óumdeildur og glæsilegur
heimsmeistari árið 1970, vann
þau mót sem hann tók þátt í og
lagði Fischer að velli í frægu 1.
borðs uppgjöri á Ólympíumótinu
í Siegen.
Spasskí tefldi á þessu tímabili
462 kappskákir, vann 171 skák,
tapaði 28 og gerði 263 jafntefli,
um 65% árangur gegn bestu
skákmönnum heims.
En það var eins og stríðsgæfan
yfirgæfi hann árið 1971. Hvað
gerðist?
Tölvutæknin gerir mönnum
kleift að stunda alls kyns sam-
anburðarannsóknir og grein-
arhöfundur freistaðist til að láta
forritið Rybku rýna í skákir
Spasskís frá þessu tímabili og
niðurstaðan var athyglisverð,
ýmis lausatök sem vart sáust áð-
ur koma fram í síauknum mæli
árið 1971. Á dögunum vann
Rybka með yfirburðum þrítug-
asta hollenska meistaramótið í
tölvuskák. Forritið keyrði á 26
tölvum með samtals 260 örgjörva
(kjarna) sem hver var knúinn af
a.m.k. 2,93 Ghz, svo öllum ætti
að vera ljóst að þarna er öflug vél
á ferðinni.
Lítum á dæmi frá skák Spasskí,
með „augum“ Rybku, frá opna
kanadíska meistaramótinu 1971:
Sjá stöðumynd
Spasskí – Suttles
Hvernig skyldu menn meta
þessa stöðu? Heimsmeistari situr
að tafli, hrókarnir ráða yfir opnu
línunum og biskuparnir eru ógn-
andi.
Suttles lék 31. … Hxd3 32.
Dxd3 Rhxg3 en Spasskí vann eft-
ir 33. Hfe1. Rybka mat þetta á
augabragði og niðurstaðan var
óvænt: svartur er með unnið tafl
og fyrsti leikurinn er:
31. … Rf4!!
Aðalafbrigðið leiðir til unnins
hróksendatafls:
32. gxf4 Rd2 33. Dg3 Rxf1+ 34.
Hxf1 Dxd5 35. Hd1 Dxd4! 36.
Bxg6+ Kxg6 37. Hxd4 He2+ 38.
Dg2 Haxa2 39. Dxe2 Hxe2+ 40.
Kg3 b3
– og vinnur þó það taki nokk-
urn tíma til viðbótar.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Boris Spasskí á batavegi
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang