Morgunblaðið - 22.03.2010, Síða 26
Söngleikurinn Gauragangur er byggð-ur á vinsælli skáldsögu Ólafs HauksSímonarsonar sem kom út seint áníunda áratugnum. Hann var fyrst
settur upp í Þjóðleikhúsinu 1994 og var skrif-
aður með því hugarfari að fá ungt fólk í leik-
hús. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og var
það ekki einungis ungt fólk sem kunni að
meta verkið heldur náði það einnig til
breiðari aldurshóps. Höfundurinn Ólafur
Haukur er sérstaklega fær í að fjalla um
venjulegt fólk í venjulegu umhverfi sem
flestir kannast við á einn eða annan hátt.
Hann sér spaugilegar hliðar á tilverunni en
einnig þær sem dekkri eru.
Leikritið hefur verið sett upp víða um land
á síðustu árum en nú er komið að Borgar-
leikhúsinu að gera verkinu skil undir leik-
stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar.
Sagan fjallar um unglinginn Orm Óðinsson
og félaga hans. Ormur er ódæll hrokagikkur
að mati kennara sinna, snillingur í augum
vina hans og óþolandi að mati sumra skóla-
félaga. Ormur er ljóðskáld og hugsjónamaður
en orðsnilli hans kemur honum í vandræði á
margan hátt. Heimurinn er meingallaður
eins og hann sér hann og því er erfitt að fóta
sig í honum.
Þetta er þroskasaga því Ormur sér að lok-
um að lífið er ekki svart og hvítt, það eru
aðrir litatónar sem vissulega er hægt að
sætta sig við.
Með hlutverk Orms fer Guðjón Davíð
Karlsson. Síðan hann útskrifaðist árið 2005
hefur hann oft sýnt að hann er fær gam-
anleikari með góða söngrödd og hefur vald á
blæbrigðum tilfinningaskalans. Hér bregst
honum ekki bogalistin. Hallgrímur Ólafsson
fer með hlutverk Ranúrs, traustasta félaga
Orms sem er um leið nokkurs konar sam-
viskurödd hans, a.m.k. þegar kemur að sam-
skiptum við hitt kynið. Hallgrímur fer mjög
vel með hlutverk sitt og gefur ekkert eftir í
söng og dansi. Birgitta Birgisdóttir er lifandi
og skemmtileg í hlutverki sínu sem Halla,
vinkona Orms og Ranúrs, og er enginn eft-
irbátur félaganna í uppátækjasemi.
Í sýningunni eru yfir 20 leikarar og væri
of langt mál að fjalla um ágæti hvers og eins.
Þó verður að minnast á nokkra í viðbót.
Kristín Þóra Haraldsdóttir er hreint út sagt
frábær í hlutverki Ástu, systur Orms. Hún
sýnir á fallegan hátt hlýju og húmor þess-
arar seinþroska persónu sem heillar alla í
kringum sig. Valgerður Guðnadóttir sem
leikur ofurskutluna Lindu sýnir það enn og
aftur að söngrödd hennar og leikgleði er til
fyrirmyndar. Jóhann Sigurðarson er óborg-
anlegur sem Gummi leikfimikennari og Berg-
ur Þór Ingólfsson fer vel með hlutverk hins
taugaveiklaða kennara. Jóhann og Bergur
syngja saman frábæran dúett um armæðu
sína í skólastarfinu. Nýliðarnir í verkinu þau
Guðrún Bjarnadóttir (Gunnfríður systir
Orms) og Walter Geir Grímsson (Knútur
unnusti hennar) eru skemmtileg í hlut-
verkum sínum.
Söngur og dans eru veigamiklir þættir
verksins. Þarna hefur verið vel unnið og
gaman að sjá svo samhæfðan hóp á sviðinu.
Í verkinu eru persónurnar dæmigerðar
staðalímyndir, taugaveiklaður kennari, kenn-
arasleikja, óhaminjgusöm móðir, ógæfumað-
ur, íþróttafrík, snobbhænsn og svo mætti
lengi áfram telja. Þetta er vissulega einföld-
un á margbreytileika mannlífsins en í söng-
leik sem þessum virkar þetta vel. Þarna
kemur til kasta Filippíu I. Elísdóttur bún-
ingahönnuðar og Elínar Sigríðar Gísladóttur
sem sér um gervin.
Ný dönsk semur tónlistina og eru mörg
lögin grípandi. Þó eru nokkur þeirra heldur
of keimlík. Hljómsveitin á sviðinu er þétt og
kraftmikil. Stundum var tónlistin aðeins of
hávær svo erfitt var að heyra söngtexta, að-
allega í hópsöngsatriðum.
Leikmynd Snorra Freys er einföld og hag-
kvæm. Húsgögnum er rúllað inn á sviðið og
öll sviðstækni er notuð til hins ýtrasta: snún-
ingur, sviðsop í gólfinu og flugið svokallaða.
Baktjaldið er þannig gert að leikarar geta
gengið í gegnum það en um leið er það einn-
ig notað sem tjald fyrir frábæra myndbands-
hönnun Henriks Linnet.
Magnúsi Geir hefur tekist vel upp í leik-
stjórn sinni enda með góðan hóp leikara og
listrænna stjórnenda. Að lokum má bæta við
að í leikskrá er ýmislegt skemmtilegt, m.a.
grein eftir menntaskólanemann Guðmund
Felixson sem fjallar um það hvað það er að
vera unglingur.
Gauragangur er þéttur og skemmtilegur
söngleikur með sögu úr hversdagslífinu sem
höfðar jafn til ungra sem aldinna.
Hörkustuð á fjölum Borgarleikhússins
Gauragangur Þéttur og skemmtilegur söngleikur með sögu sem höfðar til ungra sem aldinna.
Borgarleikhús
Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson
bbbbn
Leikarar: Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafs-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunn-
arsson, Rúnar Freyr Gíslason, Dóra Jóhannsdóttir,
Kristín Þóra Haraldsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson,
Theodór Júlíusson, Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Valgerður Guðnadóttir, Pétur Einarsson, Hanna
María Karlsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Sverrir Þór Sverrisson, Birgitta Birgisdóttir, Walter
Grímsson, Vigdís Gunnarsdóttir, Viktor Már
Bjarnason, Guðrún Bjarnadóttir, Ellert A. Ingi-
mundarson, Þorsteinn Gunnarsson, Jóhann Sig-
urðarson og Örn Árnason . Leikmynd: Snorri Freyr
Hilmarsson Búningar: Filippía Elísdóttir. Lýsing:
Björn Bergsteinn Guðmundsson. Myndband: Hen-
rik Linnet. Danshöfundur: Margrét Bjarnadóttir.
Leikgervi: Elín Sigríður Gísladóttir. Hljómsveit:
Börkur Hrafn Birgisson, Ingi Björn Ingason, Krist-
inn Agnarsson, Stefán Már Magnússon, Þorbjörn
Sigurðsson. Hljóð: Thorbjørn Knudsen. Tónlistar-
stjórn: Jón Ólafsson . Leikstjórn: Magnús Geir
Þórðarson. Frumsýning 19. mars 2010.
INGIBJÖRG
ÞÓRISDÓTTIR
LEIKLIST
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
Daybrakers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
The Good Heart kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
From Paris With Love kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Legion kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Nikulás litli kl. 6 LEYFÐ
Lovely Bones kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
Daybreakers kl. 8 - 10:15 B.i.16 ára
The Good Heart kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.10 ára
Precious kl. 5:30 - 8 B.i.12 ára
Loftkastalinn sem hrundi kl. 10:30 B.i.14 ára
Mamma Gógó (síðustu sýningar) kl. 6 LEYFÐ
Bounty Hunter kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
The Green Zone kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
From Paris With Love kl. 6 B.i. 16 ára
Artúr 2 kl. 4(550kr) LEYFÐ
Skýjað með kjötbollum á köflum kl. 4(550kr) LEYFÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í REGNBOGANUM OG HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM
PETER JACKSON
TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI
STANLEY TUCCI
MARK WAHLBERG STANLEY TUCCI
BYGGÐ Á METSÖLUBÓKINNI
SVO FÖGUR BEIN
HHHH
EMPIRE
RACHEL WEISZ SUSAN SARANDON
FRÁBÆR MYND Í ANDA
“THE MATRIX” OG “28 DAYS LATER”
ÁRIÐ ER 2019 OG VIÐ ERUM VERÐMÆTASTA AUÐLINDIN
BARÁTTAN MILLI MANNKYNSINS
OG HINNA ÓDAUÐLEGU ER HAFIN
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG SMÁRABÍÓI
SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÝND SMÁRABÍÓI
Besta leikkona
í aukahlutverki
Besta handrit
2 ÓSKARSVERÐLAUN
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
HHH
-Dr. Gunni, FBL
HHHH
-H.S.S., MBL
HHHH
-Ó.H.T. - Rás 2
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA TAKEN
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2010