Skólablaðið - 01.04.1962, Blaðsíða 22
- 106 -
<3púr
©Mesu
SONNETTA III.
í gegnum svefnmók þöglar þorranætur
ég þungan greini nið f köldum straumum,
er byltast um í bláum freðnum draumum,
f böndum vetrarfss við snæfjallsrætur.
'*c %i r '
Ég greini þeirra þögn í freðnum hyljum,
af þrá að leysast frostsins bitru tökum
gráta þeir daglangt grænum opnum vökum,
gaddlitir yppa skör við næturbyljum.
Og sigðbjúgur máni sendir kaldan ljóma
á silfraða heiði, bundna jökuldróma,
á sofinn mannheim, þig og mig og þá.
Við sofum allir^í svefninn dauður, þungur,
samvizkan mókir, frosnar hennar tungur
sem klettariðin köld og vötnin blá.
ÍSLANDSSAGA
þeir læddust f kring
með langa hnffa og beitta
með löðurstrokinn jó
f taumi
þeir slógu um okkur vftahring
og vafurlogar brunnu
og vakrir gandar runnu
til þings
þeir dæmdu okkur ómerka
orða, gerða
til einskis nýta
svo bundu þeir hendur okkar
bundu fyrir augu okkar,
bundu fyrir eyru okkar,
bundu fyrir vit okkar
og báru tjöru f hár okkar
og hlógu.