Skólablaðið - 01.10.1962, Qupperneq 15
-11 -
VII. KLÚBBAR. Ahugamannahópar
um fleiri atriði en um getur í V. og VI.
lið eru æskilegir. Vil ég undir þessum
lið drepa á ýmis atriði í því sambandi
og öðru. Siðastliðinn vetur barst FRAM-
TÍÐINNI bréf frá FRATER-NITER,norsku
málfundafélagi, sem fyrir allmörgum ár-
um hafði bréfaviðskipti við FRAMTÍÐ-
INA. Bréfaskipti þessi voru all lífleg og
fer félagið þess á leit við FRAMTlÐINA,
að þetta verði tekið upp aftur. Vanalega
er mjög erfitt að skrifa bréf, bara til
þess að skrifa bréfið, en ekki til þess að
skrifa um eitthvert ákveðið efni. I fá-
mennum hóp ungra manna koma oft fram
skemmtilegar hugmyndir og úrvinnsla
þessara hugmynda yrði til þess, að fleiri
drægjust inn x starfið. Æskilegast teldi
ég, að skólanum yrði skipt niður, þannig,
að bekkjunum yrði ruglað eitthvað og síð-
an yrðu tillögur hvers hóps bornar upp á
fundi og sú bezta valm úr. Asamt þessu
gætu verið á þessum klúbbsamkomum,
alls kyns tegundir skemmtunar, svo að
þetta yrðu nokkurs konar kvöldvökur með
þetta sem. aðalmarkmið, en fleirr\a flétt-
aðist inn I. Allt þetta er eingöngu gert
í þeim tilgangi., að draga fleiri menn inn
í starfið. En þó er ein hugmynd, sem
ég tel einna vænlegasta i þessu tilliti og
það er, að komið verði á því, sem við
höfum kallað fulltrúakerfi innan FRAM-
TÍÐARINNAR. Fenginn verði einn trún-
aðarmaður í hverjum bekk, sem færi
með umboð FRAMTIÐARINNAR. Innan
hvers bekkjar skyldi þessi maður sjá um
ýmsa bekkjarstarfsemi og skyldi þar
einkum lögð áherzla á málfundastarfsemi,
og f takmörkuðum 20-25 manna hóp, sem
allur þekkist, er auðvelt að koma upp og
tala. Með árvekni trúnaðarmanna og
góðri samvinnu þeirra við stjórn FRAM-
TlÐARINNAR getur fengizt út úr þessu
allt að 100% nýting, og FRAMTIÐIN ætti
7-800 ræðumenn í vor. Hver einasti
maður í skólanum verði aktívur meðlim-
ur, það er markið. Eftir að einstakar
deildir hafa svo þroskað með sér álitleg-
an ræðumannahóp geta þeir skorað á
aðra de.ild til kappræðufundar og svo
slægju þessar deildir sér að lokum sam-
an í málfundi FRAMTlÐARINNAR.
I sarnbandi við fundargerðir hefur
komið fram sú tillaga, að ásamt aðal-
fundarritara verði tveir aðstoðarmenn,
sem ásamt honum sjá um ritun fundar-
gerðarinnar. Skal þessu þannig háttað,
að aðstoðarmenn leggi fram sína punkta
hreinritaða til fundarritara. Eftirlit með
þessu starfsliði hafi ritari FRAMTÍÐ-
ARINNAR. Notkun segulbands er og
mjög mikilvæg í þessu sambandi, til þess
að auðvelda fundarritara starf sitt, svo
og til þess að taka upp ýmislegt fleira
og að lokum mætti jafnvel taka upp á
spólu, það sem gaman gæti verið að
halda til haga, jafnvel upp á seinni tima.
Þá ætla ég nokkuð að minnast á at-
riði, sem mjög hefur verið vanrækt og
það er söngmenntin. Væri því stofnun
kórs innan skólans mjög æskileg og mun
FRAMTlÐIN gera sitt bezta í að styðja
þessa starfsemi, sem mjög yrði gagnleg
sem skemmtiatriði á árshátíðum og öðr-
um stærri skemmtunum.
Nú í haust koma í skólann stofnend-
ur fræðafélagsins FRÖÐA I Gagnfræða-
skóla Austurbæjar. Félag þetta hefur
einkum á dagskrá sinni kynningu Is-
lenzkra fræða. I heil tvö ár hefur ver-
ið rætt um að stofna félag í þessum
skóla sem þetta og hefur FRAMTlÐIN
stungið upp á við þetta félag, að það
verði deild innan FRAMTÍÐARINNAR og
beri hið fyrra nafn sitt eftir sem áður.
Þann 15. febrúar verður 80 ára af-
mæli FRAMTÍÐARINNAR. Tilhögun þess
verður væntanlega þannig, að skemmtun
verður fyrir nemendur, sem rennur
saman við árshátíð. Blað verður gefið
út, I hverju verða greinar eftir gamla
forseta og stjórnarmeðlimi, stjórnartal,
þróun félagsins o. fl. Meiningin er og
að fá útvarpsdagskrá, þar sem flutt
yrði af núverandi nemendum skólans
gamlar fundargerðir, ljóð og svo eitt-
hvað til viðbótar, svo sem 10-15 mín-
útna þáttur úr starfsemi félagsins, 2
mín. á málfundi, 3 af fyrirlestri o. s.frv.
Afmælið verður ef til vill erfiðasta verk-
efnið, en við treystum, þar sem annars
staðar, fyrst og fremst á aðstoð ykkar
ásamt því, sem við munum gera allt,
sem I okkar valdi stendur.
Það skal tekið fram, að þær nýjung-
ar, sem hér er getið um, eru allar að
þakka hugmyndaauðgi annarra manna en