Skólablaðið - 01.10.1962, Blaðsíða 25
- 21 -
JNý^hjáleiga^
INS og öllum er kunnugt var
bygging viðbótarhúsnaeðis skól-
ans stöðvuð af skipulagsyfir-
völdum borgarinnar, vegna
tilvonandi skipulags svæðisins.
Ai rausn ráðamanna fékk skólinn til 1
árs hús, sem annar skóli gat ekki lengur
notazt við vegna þrengsla, enda ekki
byggt með skólahald fyrir augum.
Einar Magnússon hefur aðalumsjón með
húsinu og mun eflaust halda vel í stjórn-
artaumana. Vonandi verður skólinn ekki
þarna \ framtíðinni, heldur rísi nýr eða
nýir skólar til að taka við hinum aukna
hópi nemenda.
Fé^lajgsheimilið^_
Fyrsti skólafundur vetrarins var hald-
inn fyrir skemmstu. Aðalefni fundarins
var reikningar félagsheimilisins og tillaga
þess um 25 króna nefskatt. Menn urðu
felmtri slegnir, er niðurstöður leiddu í
ljós yfir 30 þúsund króna halla á reksturs-
árinu. Kenndu forsvarsmenn íþöku minnk-
andi aðsókn að dansleikjum aðallega um
hið gífurlega tap. Athyglisvert var tap á
vörusölu, sem ekki getur stafað nema af
ofmikilli rausn nefndarinnar við sig og þáer
við félagsheimilisnefnd að fást.Er auðsætt ac
slíkt getur ékki leitt til nema tapreksturs.
Það er þetta, sem nefnd sú, er samþykkt
var að inspector skuli skipa, þarf að rann-
saka og taka síðan hvern lið rekstursins
og finna meinsemdina, ef nokkur er.
En flestir telja að hægt ætti að vera að
koma Iþöku á fjárhagslegan grundvöll.
Annars eru almennar reglur um endur-
skoðun brotnar með því að láta menn,sem
voru í stjórn á fjárhagsárinu, endurskoða
reikningana, en nefndin skákaði x skjóli
venju en óæskilegrar venju. Að sögn for-
manns mun íþaka ekki geta tekið til starfa,
fyrr en fjárhagsvandamál hennar hafa ver-
ið leyst. Sjóðir skólans eru sagðir vera
gildir, og var formanni bent á að reyna
að leita eftir rekstrarláni til að geta hafið
starfið unz skýrsla endurskoðunarnefndar-
innar berst. Kvaðst hann ekki vilja gera
það vegna óvissu um undirtektir við fjár-
bónina, er hún kæmi fyrir aftur, því ef
henni væri synjað stæði íþaka verr en áð-
ur. En auðvitað verður nefskatturinn
samþykktur, ef engin önnur lausn finnst,
því annars yrði að gera félagsheimilið
upp, sem hvert annað þrotabú, sem væri
sorglegur endir þeirra björtu vona, er
voru tengdar við breytingu hússins í fé-
lagsheimili.
A fnárri_er^f :
Er nemendur glímdu við fjármál Iþöku,
skutu kennarar á fundi til að ræða toller-
ingar. Samþykkti fundurinn að leggja þær
niður, a.m.k. í núverandi mynd, vegna
fjölda busa, aldurs skólans og slysahættu.
Þetta er ein elzta tradition, sem við eig-
um, og vonandi sér samkundan sig um
1
hönd, því tolleringarnar setja óneitanlega
sinn svip á skólalífið. Má nú búast við
gangaslagabanni, og eru þá flestar erfða-
venjur horfnar.
Fr^amtíðin.
Framtíðin á 80 ára afmæli í vetur
og hefur frétzt, að hátxðin verði vegleg,
sem vera ber. Blað verður gefið út,
og e.t. v. útvarpsdagskrá. Arshátfðin
verður haldin eftir nýár sem næst
sjálfu afmælinu, og verða þá aðal hátíð-
arnar 3 með stuttu millibili. öneitan-
lega lengir þetta nóvember nokkuð, en
sú gamla verður að eiga afmælið á rétt-
um txma.
Skólablaðið.
A busaári sínu var Júníus ritstjóri
mikill andstæðin^ur latínuslettna og alls
kyns harðmetis í Skólablaðinu. Því
velta menn nú fyrir sér, hvort greinar
um liðin skammdegisskáld munu birtast
x blaðinu í vetur, og hvort latneskar fyr-
irsagnir eins og Editor Dicit og Quid
Frh. á bls. 9.