Skólablaðið - 01.12.1963, Page 22
82 -
C€IHO)€nVO
A fyrsta skólafundi á sal í haust var
tilkynnt fyrir hönd leiknefndar, að geysi-
legt tap hefði verið á rekstri Herranætur
undanfarin tvö ár og að varasjóður
nefndarinnar væri þrotinn, bókhald í ó-
lestri og að skólasjóður hefði orðið að
greiða hluta af tapi seinasta árs. Er
þetta hafði verið tilkynnt og núverandi
formaður tekið til máls, og lofað betri
rekstri í ár, var spurt hvort einhverjár
athugasemdir væru við þetta. Engin at-
hugasemd barst. Ekki varð betur séð,
en að nemendum stæði alveg á sama,
hvernig fé Herranætur hefði verið varið
og hvaða grundvöllur væri fyrir áfram-
haldandi starfi. Það er niðurdrepandi
fyrir hvern þann, sem vinnur að leiklist
innan skólans, að sjá slíkt áhugaleysi.
Því skal nú, án þess að nokkur hafi
beiðzt þess, reynt að útskýra þessi mál
eitthvað nánar.
Arið 1962 var leikritið Enarus Mont-
anus sýnt hér í skóla. Verð aðgöngu-
miða var alltof lágt, og á sama tíma og
sýningar stóðu yfir sýndi Listafélag M.R.
Útilegumennina eftir Matthías Jochums-
son. Dró þetta að sjálfsögðu eitthvað
úr aðsókn að leikritinu, og einnig var
lítið reynt að spara fé við uppsetningu
leikritsins. Arangur: tap.
Síðastliðið ár var leikritið Kappar og
vopn eftir G. B. Shaw sýnt. Aðsókn var
sæmileg og reynt var að spara í öllum
framkvæmdum. En fjárhagsgrundvöllur-
inn var í molum, þvi að þrátt fyrir verð-
breytingar og aukna dýrtíð var verð að-
göngumiða hlægilega lágt. Arangur :
geysilegt tap.
Leiknefnd í ár hefur, þrátt fyrir al-
mennt áhugaleysi nemenda á störfum
hennar, breytt starfsemi sinni að nokkru
leyti. Verð aðgöngumiða hefur verið
hækkað eðlilega, ýmsir útgjaldaliðir hafa
verið felldir niður og mun reynt af
fremsta megni að spara öll fjárútlát.
Allt bendir því til þess, að í vetur muni
Herranótt borga sig eða að minnsta
kosti ekki verða rekin með tapi.
Rekstur Herranætur er ekki og á ekki
að vera í gróðaskyni, heldur til að efla
áhuga og kynna göfuga list og höfunda
hennar. Þess vegna mun hún ávallt
verða rekin með það fyrir augum. En
slík starfsemi sem þessi getur ekki
staðist á neinn hátt, sé hún rekin með
tugþúsunda króna tapi ár hvert. Enginn
skóli gæti staðið undir slíku. Þvf er
það hlutverk leiknefndar að reka Herra-
nótt þannig, að hún standist fjárhagslega
jafnframt því sem hún sé fræðandi og
veki áhuga. Að þessu mun leiknefnd
stefna í ar og henni mun takast það, svo
framarlega sem nemendur sýna ahuga á
starfi hennar.
Jóhann Guðmundsson
I LATlNU hjá 5, -D
Þórður Örn ( hafandi sett fyrir óheyri-
lega lexíu, hallandi sér upp að töfl-
unni):
Með leyfi að spyrja, haldið
þið að 5. bekkur sé einhver
'picnic" ?
í ENSKU í 5. -D
Ottó ( reynir að þagga niður suðið
í stelpustóðinu) :
Well, by the way, what animals
hum like this : bsssss ?
Rödd úr hópnum :
Buses.