SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Blaðsíða 10
10 23. janúar 2011
Frétt Morgunblaðsins á fimmtudaginn var, um grun-semdir um njósnir á Alþingi, vakti vitaskuld miklaathygli, ekki síst meðal þingmanna á hinu háa Al-þingi. En hún vakti fleira: Hún vakti reiði meðal fjöl-
margra þingmanna sem telja, a.m.k. sumir, að þeir hafi unnið
við falskt öryggi í heilt ár.
Ég held að flestir sem fylgst hafa með umræðum á Alþingi
um málið á fimmtudag, bæði fyrir og eftir hádegi, hljóti að vera
sammála þeim þingmönnum sem lýstu yfir furðu sinni á því að
hafa ekki verið upplýstir um atvikið þegar það átti sér stað.
Mér fundust viðbrögð sumra þingmannanna vera hreint
öldungis út í hött. Til dæmis þeirra Marðar Árnasonar og Álf-
heiðar Ingadóttur. Í augum
Marðar Árnasonar var
fréttin augljóslega ekki trú-
verðug af því að Agnes
Bragadóttir hafði skrifað
hana og Álfheiður Inga-
dóttir var nú svo frumleg
að ráðast bara beint á
Morgunblaðið sem væri jú
að reyna að aðstoða Banda-
ríkjamenn!
Ætli Mörður ræfillinn
hafi ekki verið vonsvikinn
þegar Ásta R. Jóhann-
esdóttir, forseti þingsins,
staðfesti fréttina í einu og
öllu, eftir að hann hafði
fúkyrst úr ræðustól og m.a.
fyrirskipað þingmanni að
„halda munni“ sem síðast
þegar ég vissi þýddi það
sama og „halda kjafti“.
Svo vildi Mörður að for-
setinn vítti þingmann sem hafði leyft sér í ræðustól á Alþingi
að benda á hin augljósu tengsl á milli eins þingmanns Hreyf-
ingarinnar og uppljóstrunarvefsins Wikileaks.
Þór Saari staðfesti hér í Morgunblaðinu í gær að Julian Ass-
ange, forsprakki Wikileaks, hefði ásamt fleirum verið í hús-
næðinu þar sem fartölvan, útbúin til njósna, fannst, þ.e. á
fimmtu hæð Austurstrætis 8-10. Á þeirri hæð eru þingmenn
Hreyfingarinnar með skrifstofur sínar og tölvan fannst í auðu
herbergi sem er ætlað til afnota þegar varaþingmaður Hreyf-
ingarinnar er kallaður inn.
Var ekki sjálfsagt og eðlilegt að benda á þessi tengsl þótt
Birgitta Jónsdóttir, fyrrum stórvinkona Assange, hefði kosið
að gera í engu grein fyrir heimsóknum Wikileaks-manna til
sín, heldur flutti hún ljóð með leikrænum tilburðum. Halda
menn að Wikileaks og forsvarsmenn síðunnar séu einhverjir
hvítþvegnir englar? Vita menn það ekki að Julian Assange
hlaut dóm í Ástralíu fyrir tölvuinnbrot? Hann er heimsþekktur
tölvuhakkari. Það hefði ég haldið að menn vissu almennt og
skiptir þá litlu hvað Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks,
segir í þeim efnum.
Ég er eiginlega steinhissa á því að viðbrögð þingheims alls
skuli ekki hafa verið miklu harkalegri en þau voru því vit-
anlega er það óþolandi fyrir þá þingmenn sem eru með skrif-
stofur sínar í Austurstræti, en það eru allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins og Hreyfingarinnar, að vita ekki hvort með
ólögmætum hætti var brotist inn í tölvur þeirra, tölvupóstur
skoðaður og fleira. Bara grunurinn um að slíkt geti hafa gerst
er með öllu óþolandi. Ég hefði haldið að þingmenn rykju upp
til handa og fóta og krefðust rannsóknar.
Í gær kom á daginn að umræddri tölvu var stungið í sam-
band á skrifstofu varaþingmannsins hinn 28. desember 2009.
Borðtölvan sem var þar áður tengd hafði verið aftengd og far-
tölvunni komið í samband. Þetta var sem sé tveimur dögum
áður en Alþingi samþykkti lögin um ríkisábyrgð á Icesave en
það gerðist hinn 30. desember. Það voru lögin sem forsetinn
synjaði svo staðfestingar í ársbyrjun í fyrra.
Tölvan var sem sé tengd tölvukerfi Alþingis í rúman mánuð.
Það er hægt að fylgjast með mikilli umferð í tölvukerfum á
rúmum mánuði. Það er hægt að stela miklu magni gagna á
heilum mánuði.
Ljóðalestur
og njósnir
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Julian AssangeBirgitta Jónsdóttir
’
Það er hægt að
fylgjast með
mikilli umferð í
tölvukerfum á rúm-
um mánuði. Það er
hægt að stela miklu
magni gagna á heil-
um mánuði.
Alexandra Chernyshova, sópr-
ansöngkona frá Úkraínu, hefur
búið á Íslandi í sjö ár og er á kafi í
tónlist, bæði heima á Hofsósi og
annars staðar í Skagafirði. Þessa
dagana brunar hún reglulega til
Akureyrar á æfingar, fyrir tón-
leika sem fara fram um næstu
helgi. Hún lýsir síðasta fimmtu-
degi.
08.00 Fjölskyldan vaknar.
Við eigum tvo syni; Nikolaí Leo
er tveggja ára og er á leikskól-
anum en Alexander Logi sex ára
og er í fyrsta bekk í grunnskól-
anum. Hann fer með pabba sín-
um enda Jón, maðurinn minn,
skólastjóri á Hofsósi.
09.00 Ég legg af stað til Ak-
ureyrar. Átta mig á því þegar ég
er komin af stað að ég gleymdi
að fá mér morgunmat!
10.30 Nú ætti ég að vera
komin til Akureyrar enda á æf-
ingin að hefjast klukkan 11, en ég
þarf að keyra miklu hægar en
venjulega því það er svo mikill
skafrenningur að ég sé nánast
ekki neitt.
11.25 Loksins komin til Ak-
ureyrar. Ég var klukkutíma
lengur en venjulega á leiðinni.
11.30 Hitti Michael Jón Clark
barítón og píanóleikarann Risto
Laur í Hofi þar sem Tónlist-
arskólinn á Akureyri er nú til
húsa og við getum byrjað að æfa.
Ég ætlaði að fá mér kaffi fyrir
æfingu en hef ekki tíma til þess.
13.00 Fyrsti kaffibolli dags-
ins! Það er morgunmaturinn og
svo fæ ég mér annan, sem er há-
degismatur!
13.10 Æfingin heldur áfram.
Ég hlakka mikið til tónleikanna
því samstarfsmennirnir eru
góðir. Michael hefur búið á Ak-
ureyri lengi en aðeins er eitt ár
síðan Risto kom frá Eistlandi.
Þeir kenna báðir við Tónlistar-
skólann. Við ætlum að flytja fræg
lög úr söngleikjum í Hofi, ein-
söngslög og dúetta. Þetta verða
ekki venjulegir tónleikar, við
ætlum aðeins að leika líka; það
er gott tækifæri til þess á stóru
sviði með flottum ljósum.
14.20. Æfingunni lýkur og ég
fer að tygja mig aftur heim.
14.30 Kem við í Bakaríinu
við brúna og kaupi rosalega
flotta köku af því að bóndadag-
urinn er á morgun.
14.45 Átta mig á því að veðr-
ið er enn slæmt og ég verð ef-
laust jafn lengi á leiðinni til baka.
Ákveð því að aflýsa æfingu hjá
kórnum mínum – stúlknakór
Söngskóla Alexöndru – sem átti
að hefjast tíu mínútur yfir fjög-
ur. Byrja að hringja í stelpurnar
til að láta þær vita. Við erum að
æfa Óperudrauginn sem við ætl-
um að sýna á Sæluvikunni.
16.00 Það er enn mjög
dimmt á Öxnadalsheiðinni og
nokkrir bílar stopp. Ég tek því
smásöngæfingu í bílnum! Bæði
til þess að búa mig enn frekar
undir tónleikana og svo róar það
mig líka niður. Þegar ég er
stressuð finnst mér langbest að
syngja því þá hugsa ég ekki um
að eitthvað slæmt geti gerst.
17.30 Komin heim. Geymi
kökuna úti í bíl því ég vil ekki að
Jón sjái hana fyrr en á morgun!
Það verður gaman að koma hon-
um á óvart. Strauja í svolitla
stund og leik svo aðeins við
strákana mína.
19.00 Við borðum kvöldmat
og strax að því loknu fara strák-
arnir í bað. Þeir eru stundum
svolítið skítugir eftir daginn!
20.30 Nikolaí Leo fer að sofa
og ég les fyrir hann á rússnesku
eins og alltaf á þessum tíma. Ég
tala rússnesku við strákana
heima því ég vil að þeir kunni
tungumál móður sinnar en við
tölum íslensku þegar aðrir eru
nálægt. Ég hef fundið það sjálf
hve erfitt er að skilja ekki hvað
fólk er að tala um.
20.45 Þegar Nikolaí er sofn-
aður sitjum við Jón í rólegheit-
um með Alexander og lesum
saman. Hann er duglegur í skól-
anum og vill vera bestur í lestri;
það er dálítil keppni í bekknum
og hann er duglegur að lesa,
bæði á íslensku og rússnesku.
Mér finnst mikilvægt fyrir út-
lendinga hér á landi að tala ís-
lensku og held reyndar að það sé
nauðsynlegt til að fólki líði vel
og komist almennilega inn í
samfélagið. Til þess að fólk verði
ekki einmana. Ég er viss um að
það opnar margar dyr fyrir út-
lendinga ef þeir kunna tungu-
málið. Ég er frá Úkraínu og var
sjálf tvítyngd því pabbi er rúss-
neskur en mamma úkraínsk og
heima töluðum við bæði tungu-
málin.
21.15 Alexander fer að sofa,
ég kíki þá í tölvuna, skrifa
nokkra tölvupósta og fer líka á
Facebook. Við Jón spjöllum svo
saman og höfum það notalegt.
22.00 Ég kíki á nóturnar
mínar og hlusta á tónlist eins og
svo oft áður. Ég hlusta oft á aðra
syngja þau lög sem ég ætla að
flytja. Fer svo í stúdíóið heima
hjá mér þar sem ég er að taka
upp geisladisk. Töluverður tími
hefur farið í það undanfarið enda
ætla ég að gefa út disk í vor.
01.00 Fer loksins að sofa. Ég
er mikil kvöldmanneskja. Hugsa
reyndar stundum um það að ég
megi alls ekki fara svona seint að
sofa því ég þarf að vakna
snemma með strákunum – en ég
gleymi því núna eins og svo oft
áður.
skapti@mbl.is
Dagur í lífi Alexöndru Chernyshova, sópransöngkonu á Hofsósi
Alexandra Chernyshova ásamt sonum sínum, Nikolaí Leo og Alexander Loga á góðri stund heima á Hofsósi.
Ljósmynd/Jón Rúnar Hilmarsson
Sungið í skafrenningi