SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Síða 18

SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Síða 18
18 23. janúar 2011 Halló manni, taktu mynd af okkurog hafðu skipið með í bak-grunni! Við skulum hætta aðkyssast á meðan.“ Þeir léku sérá ströndinni og í flæðarmálinu,slógust, kysstust og gáfu frá sérvinaleg selahljóð. Það var alveggreinilegt að þeim fannst ekki leiðinlegt að vera til. Þeir litu af og til upp úr faðmlög- unum, það var eins og þeir væru að spyrja okkur með augunum sem voru á stærð við golfkúlur: „Hvað, er tvö þúsund og sjö hjá ykkur ennþá, þetta er svo flott skip?“ Já, skipið er glæsilegt og margra ára draumur að rætast – að komast til Suðurskautslandsins, fimmtu stærstu heimsálfunnar á eftir Afríku, Asíu, Norður- og Suður- Ameríku. Að standa á ströndinni á Suður-Georgíu-eyju er eins og að vera á baðströnd á Spáni. Eini munurinn er sá að allir baðstrandargestir virðast hafa legið á mag- anum og sólbrunnið sér til óbóta á bakinu. Suðurheimskautið er 14 milljón ferkílómetrar að stærð og að 98 prósentum hulið ís sem er að meðaltali einn og hálfur kílómetri að þykkt. Ég var í boði Le Cercle Polaire og Michels Rocards, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands og núverandi sendiherra pólanna. Le Cercle Polaire eru frönsk samtök sem Laurent Mayet og Stanislas Potier stýra af röggsemi og umhyggju fyrir norður- og suðurpólum jarðarinnar. Það eru engar öfgar í þeirra tali, heldur vilja þeir vekja fólk til vitundar um þá staðreynd að íshellurnar eru að bráðna sem gæti valdið jarðarbúum ómældum þján- ingum í framtíðinni. Sú þróun er þegar hafin. Það eru margir heimsfrægir heimskautafarar í samtökunum eins og Ranulph Fines, einnig hefur Albert prins af Mónakó lagt samtökunum lið með hugleiðingum sínum um pól- ana ásamt mörgum fleiri málsmetandi mönnum. Það eru einnig vísindamenn með í ferðinni á vegum Le Cercle Polaire, þar á meðal Jean Claude Gascard og Neil Hamilton, sem hafa rannsakað ísbreiður norðurhjarans í nær 30 ár, einnig Henriette Rasmussen, fyrverandi þing- maður, einn fárra Grænlendinga sem komið hafa á suð- urskautið. Þau hafa öll áhyggjur af því sem er að gerast í loftslagsmálum, vel sést á Grænlandi hvað er að gerast. Ísbreiðan á norðurhjaranum hefur aldrei bráðnað svona hratt, mun hraðar en menn reiknuðu með fyrir nokkrum árum. Svo eru um borð aðrir vísindamenn sem þekkja til dýralífs á suðurskautinu og hafa dvalist þar svo mán- uðum skiptir. Þessir vísindamenn halda fyrirlestra í lok hvers dags um borð í skipinu. Flestir um borð eru venju- legir ferðamenn sem vilja sjá þennan heimshluta og fræðast um það sem er að gerast á pólunum. Einn vísindamannanna spyr í einum fyrirlestrinum: „Veit einhver hvað Arktos þýðir?“ Ekkert svar úr salnum. „Arktos þýðir björn og það voru Grikkir sem gáfu norðurpólnum það nafn og Antarktos (enginn björn) fyrir suðurpólinn. Hvernig vissu Grikkir að það voru birnir á norðurhveli og engir birnir a suðurhveli?“ „Þeir hljóta að að hafa lesið í stjörnurnar á himnum,“ er svarað úr salnum. „Ég sé ekkert í stjörnunum sem seg- ir að það séu ísbirnir á norðurhveli en ekki á suðurhveli.“ Voru hugsanlega einhverjar samgöngur sem upplýstu um ísbirni á norðurhjaranum fyrir mörg hundruð árum og að það væru engir á suðurskautssvæðunum? Það veit í raun og veru enginn með vissu en orðin Arctic og Ant- arctic eru komin af þessum orðum Arktos og Antarktos úr grísku og þýða björn og enginn björn. Við sigldum að ströndinni á Suður-Georgíu-eyju á leið á suðurheimskautið og þessir forvitnu og vinalegu weddel-selir skriðu á land um leið og við og kíktu á okk- ur. Það var ekki snefill af ótta í okkar garð, þeir nörtuðu aðeins í úlpuna með vörunum. Það var ekki verið að bíta með tönnunum, þeir voru svona eins og vinalegir hundar sem vilja leika sér. Það var hægt að klappa þeim. Það var engu líkara en þeir hefðu eignast nýja vini. Ég var ekkert að svekkja þá með því að ég væri ekki einn af ríku körl- unum frá árinu 2007 á Íslandi. Við gengum á land og upp á eyjuna, Nikolais Dubreuil stjórnaði öllu sem gert er í gúmmíbátunum og á landi. Nikolais er heimskautafari og öryggið uppmálað. Hann fylgdist með öllum sem komu á land og gaf þeim góð ráð sem höfðu áhyggjur af því að fara á land. Sumir voru komnir hátt á níræðisaldur og voru að láta drauma sína rætast. Weddel-selirnir á Suður-Georgíu-eyju gefa reyndustu fyrirsætum í mannheimum ekkert eftir. Í baksýn er skipið, Le Boréal.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.