SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Qupperneq 37
23. janúar 2011 37
svoleiðis. Allir sem einn sinntu sínum
skyldum með glöðu geði,“ segir Loftur og
Friðrik og Arnrún bæta við að starfsmenn
B&L og IH séu greinilega samstilltur og vel
skipulagður hópur. „Þetta var algjörlega
til fyrirmyndar,“ segir Arnrún.
Að veislu lokinni voru starfsmenn
hvergi nærri hólpnir. Taka þurfti af borð-
um og breyta veislusalnum aftur í bílasölu.
Á þeim tímapunkti hefði múður ekki
komið Degi og Lofti í opna skjöldu en það
var öðru nær. Hver einasti maður gekk
þegjandi og hljóðalaust til sinna verka.
Um miðnætti voru engin ummerki um
veislu í húsinu. Geri aðrir betur!
B&L og IH eru í grunninn þrjú fyrirtæki,
B&L, IH og Bílaland, og fyrir vikið koma
starfsmenn úr þremur áttum. Eins og al-
kunna er hafa tvö undanfarin ár verið erf-
ið í faginu og hafi einhvern tíma verið þörf
á hópefli er það nú. Dagur og Loftur eru á
einu máli um að þetta uppátæki hafi gert
fólki gott. „Eftir þetta er enginn vafi á því
að við vinnum öll hjá sama fyrirtækinu.“ Súkkulaðiterta og ís að hætti Friðriks V unnið af starfsfólki.
Lambasteikin komin á veisluborðið. Mmm ...
Lambið komið úr ofninum. Þjónahópurinn býður og allt á fullu við að færa réttinn upp á disk. F.v. Ingvar Baldursson kokkanemi, Gunnar E.H. Guðmundsson varahlutaverslun, Hermann Hall-
dórsson tæknimaður á verkstæði og Kristján Guðmundsson verkstjóri á verkstæði.
Það var mikið álag á þjónustuhópnum allt kvöldið en þar sem starfsandinn var
góður var létt yfir mannskapnum. F.v. Símon Ólafsson tæknimaður verkstæði,
Árni Freyr Einarsson sölumaður Bílalandi og Bosko Repić verkstæði.
Glæsilegt veisluborð dekkað upp fyrir þrjá rétti með sérhönnuðum matseðlum og tilheyrandi.
Lambahryggurinn gljáður af mikilli kúnst.
Yfirmanni tölvudeildar er greinilega fleira til lista lagt en að vinna við tölvur. F.v.
Magnús Már Guðmundsson þjónustuveri, Lilja Gunnarsdóttir maki og Stein-
grímur Gautur Pétursson yfirmaður tölvudeildar.