SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 8
8 10. apríl 2011 Annar þekktur knattspyrnumaður á þjálfarastóli á framandi slóðum er Tony Adams, fyrrverandi fyrirliði Arsenal og enska landsliðsins. Adams er í Aserbaídj- an hjá liðinu Gabala FC. Hann hefur þó ekki vakið sömu athygli og Ruud Gullit í Tétsníu og þannig vill hann hafa það. Gabala er 13 þúsund manna bær og lítið á seyði. „Ég kann að meta að sviðsljósið er ekki á mér,“ sagði Adams í samtali við Daily Mail fyrir jólin. „Hér er ég bara þekktur sem þjálfari og það er hluti af ástæðunni fyrir því að ég er hérna. Enginn dæmdi Jose Mourinho þegar hann var túlkur í Barselóna. Þannig að það er góð ástæða fyrir því að vera hér. Hér er mér frjálst að gera mistök. Eini þrýstingurinn kemur frá mér.“ Liði hans hefur gengið vel í vetur og reynsla hans í Aserbaídjan hefur verið betri en hjá Portsmouth og Wycombe þar sem peningar voru af skornum skammti. Eigandi Gabala á nóg af peningum og upp- fyllir óskir Adams, hvort sem þær snúast um ástand vallarins eða leikmannakaup. Hér er mér frjálst að gera mistök – eini þrýst- ingurinn kemur frá mér Varnarjaxlinn Tony Adams fagnar skallamarki með Arsenal ásamt Kanu og Sol Campbell. Reuters R uud Gullit var eitt sinn besti knatt- spyrnumaður heims. Hann hafði viður- nefnið svarti túlipaninn og þegar hann komst á skrið fór hann í gegnum varnir andstæðinganna eins og hnífur í gegnum smjör og rastalokkarnir hristust í allar áttir. Nú er makkinn horfinn, Gullit sestur í þjálfarastól og verkefnið er að búa til besta lið í Evrópu. Það gæti reynst þrautin þyngri. Liðið nefnist FC Terek og er í Grosní, höfuð- borg Tsjetsjeníu. Stjórnandi félagsins heitir Ramsan Kadyrov. Hann á sér mikla drauma og er ekki þekkt- ur fyrir þolinmæði. Tímabilið fór ekki vel af stað hjá Gullit. Liðið tapaði í fyrstu tveimur leikjunum, en lék reyndar við tvö af sterkustu liðum rússnesku deildarinnar, Rubin Kaz- an og Zenit frá Pétursborg. Um liðna helgi var hins vegar botnslagur. Terek fékk Tomsk í heimsókn og sigraði með tveimur mörkum gegn engu. Með sigr- inum skaust Terek upp í fimmta neðsta sætið og skaut meira að segja gömlu Moskvuveldunum Spar- tak og Dínamó aftur fyrir sig. Kadyrov er leiðtogi Tsjetsjeníu og heldur þar um alla þræði. Mannréttindafrömuðir saka hann um pyntingar og mannrán. Hann neitar. Blaðakonan Anna Politkovskaja, sem var myrt árið 2006, sagði að hann væri maður stríðs og hryðjuverka, „Stalín okkar tíma“. Þegar Gullit var valinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu 1987 tileinkaði hann viðurkenninguna Nel- son Mandela, sem þá sat enn í fangelsi. Í Der Spiegel er rifjað upp að þegar Gullit gerðist málsvari Stofn- unar Önnu Frank hafi hann sagt: „Þegar maður er þekktur á maður að opna munninn. Þá hlustar fólk.“ Síðan bætir blaðið við að nú leggi bæði knattspyrnu- áhugamenn og mannréttindafrömuðir eyrun við þegar Gullit sé annars vegar, en hann láti lítið að sér kveða. Tsjetsjenía var vettvangur grimmilegra átaka í lok tuttugustu aldarinnar. 1994 hófst blóðug sjálfstæð- isbarátta. Fimm árum síðar gerði Vladimír Pútín Rússlandsforseti aðra atlögu að tsjetsjenskum sjálf- stæðissinnum. Kadyrov var í upphafi í liði uppreisn- armanna, en snerist síðan á sveif með Pútín. Grosní var lögð í rúst í stríðinu. Kadyrov hefur fengið 1,8 milljarða evra á ári til uppbyggingar. Um allt hanga myndir af foringjanum. „Að veggspjöldin skuli ekki hafa verið rifin niður sýnir hvað fólkið elskar mig,“ segir Kadyrov. Akhmed faðir hans var myrtur í tilræði árið 2004 á heimavelli Terek. Hann stýrði einnig Tsjetsjeníu og Terek-liðinu. Kadyrov hefur bannað áfengi til að ýta undir múslímsk gildi og hrósað unglingagengjum, sem hafa farið um Grosní og skotið málningarkúlum í konur sem sak- aðar eru um djarfan klæðaburð. Ekki eru nema tvö ár síðan vestrænar ríkisstjórnir vöruðu borgara sína við því að fara til Tsjetsjeníu. Nú segir Kadyrov að vart finnist öruggari staður en Tsjetsjenía. Saga Terek er skrautleg. Liðið var við að leysast upp fyrir tíu árum. Þá var uppreisnarmaðurinn Sja- mil Bassajev miðframherji liðsins og einn af stjórn- endum þess. Í Der Spiegel segir frá því að Bassajev hafi skipulagt heimsmeistarakeppni múslímskra vígamanna, mujaheddin. Sigurlaunin voru sprengjuvarpa. Til 2008 lék Terek heimaleiki utan Tsjetsjeníu vegna þess að of hættulegt þótti að þau lékju heima fyrir. Gullit, sem áður þjálfaði m.a. Chelsea og Los Ang- eles Galaxy, segir að Kadyrov blandi sér ekki í stjórn knattspyrnuliðsins og bætir við að nú sé allt öruggt í Tsjetsjeníu. Þó ekki það öruggt að konan hans vilji fara með honum og af einhverjum sökum er hann með 80 manna öryggislið. Ruud Gullit í landsleik með Hollandi gegn Wales þegar hann var upp á sitt besta. Hann varð Evrópumeistari með hollenska landsliðinu 1988. Reuters Vandasamt verk- efni í Tsjetsjeníu Gullit á að gera smáliðið Terek í Grosní að stórveldi í fótbolta Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Ramsan Kadyrov afhendir Gullit treyju Terek-liðsins. Reuters Gullit segist hafa tekið þjálf- arastarfið í Tsjetsjeníu í þágu friðar. Kona hans, Estelle, segir hins vegar að samningur hans sé „milljóna virði … og hinn kosturinn er að vera með 48 ára gamlan mann að slæp- ast í sófanum heima“. Johan Cruyff, tengdapabbi Gullits, líkir þessu við þegar hann fór til Barcelona í tíð Francos. Reuters Lægi annars í sófanum heima 29. ágúst 2011. WWW.NOMA.NU Kynningarfundur í Reykjavik Radisson BLU 1919 Hotel Posthusstraeti 2, 101 Reykjavik 14. april kl. 16.00 Skráning á: www.noma.nu

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.