SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 44
44 10. apríl 2011 Paul Torday - The Hopeless Life of Charlie Summers bbbbn Paul Torday þekkja sjálfsagt einhverjir fyrir bók- ina Laxveiðar í Jemen, en sú bók sem hér er tekin til kosta er talsvert frábrugðin. Í sem stystu máli segir hún frá Hector Chetwode-Talbot, sem kall- aður er Eck, nýskriðinn úr herþjónustu og tvístíg- andi með framtíðina. Þá leitar til hans einn félagi hans og býður honum vinnu hjá fjárfestingarfyr- irtæki þar sem hann á að laða að viðskiptavini, ekki síst kunningja sína sem eru flestir stöndugir. Eck segir söguna og samhliða eigin sögu segir hann frá Charlie Summers, ólánsfugli sem er sí- fellt að reyna að verða ríkur, alltaf með eitthvað í gangi en allt er það vafsamt og skilar litlu þegar upp er staðið. Leiðir þeirra liggja saman nokkrum sinnum og gefa færi á að bera saman siðblindan svikahrapp- inn á bak við fjárfestingarfyrirtækið sem veður í peningum, meira að segja þegar allt fer til fjandans, og svo kjánann hann Charlie Summers, sem prettir fólk og féflettir svo klaufalega að ekki er annað hægt en að kenna í brjósti um hann. Torday er snjall penni og óvenjulegur, stíll- inn blátt áfram en með óvæntum útskotum og undir sléttu yfirborð- inu er nöpur ádeila í bland við meinlega kímni. Paul Torday - More Than You Can Say bbbmn Bókin sem getið er hér að ofan kom út í október sl. en More Than You Can Say kom út í febrúar. Þessar bækur eru skyldar um margt, eins og reyndar fleiri bækur Tordays, og þannig kemur Hector Chetwode-Talbot, Eck, til að mynda stuttlega við sögu (honum bregður einnig fyrir í Laxveiðar í Jemen) og eins kemur fyrir óþokki úr The Hopeless Life of Charlie Summers. Sagan segir annars frá fyrrverandi hermanni, Richard Gaunt, sem hefur ekki náð að fóta sig í lífinu eftir að heim er komið úr hermennskunni, en af hverju er ekki fyllilega ljóst – er það vegna þess að hann upplifði hryllilega atburði eða vegna þess að hann var gallaður fyrir? Lesandi kemst ekki að því og hugsanlega veit Torday það ekki heldur. Gaunt er fjár- hættuspilari og eitt kvöldið vinnur hann stórfé þegar honum er boðið að tvöfalda vinningsupphæðina með því að ganga frá Lundúnum til Oxford og vera kominn þangað fyrir hádegi daginn eftir. Hann tekur veðmálinu en á miðri leið er honum rænt af illþýði í Range Rover. Upp frá því verður bókin að einskonar spennusögu, gamaldags spennu- sögu með nútímalegu ívafi því glímt er við hryðjuverkamenn. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Erlendar bækur Eymundsson 1. The Confession - John Gris- ham 2. Minding Frankie - Maeve Binchy 3. This Body of Death - Eliza- beth George 4. Mortal Remains - Kathy Reichs 5. The Stonecutter - Camilla Läckberg 6. Savour the Moment - Nora Roberts 7. The Troubled Man - Henn- ing Mankell 8. Started Early, Took My Dog - Kate Atkinson 9. The Glass Rainbow - James Lee Burke 10. The Redeemer - Jo Nesbø New York Times 1. Live Wire - Harlan Coben 2. Toys - James Patterson & Neil McMahon 3. The Saturday Big Tent Wedding Party - Alexander McCall Smith 4. Sing You Home - Jodi Pico- ult 5. Night Road - Kristin Hann- ah 6. A Lesson in Secrets - Jac- queline Winspear 7. The Jungle - Clive Cussler & Jack Du Brul 8. The Girl Who Kicked the Hornet’s Nest - Stieg Lars- son 9. The Tiger’s Wife - Tea Obreht 10. Cold Wind - C.J. Box Waterstone’s 1. The Land of Painted Caves - Jean M. Auel 2. Solar - Ian McEwan 3. Wonders of the Universe - Brian Cox, Andrew Cohen 4. One Day - David Nicholls 5. The Slap - Christos Tsiol- kas 6. The Thousand Autumns of Jacob De Zoet - David Mitchell 7. Started Early, Took My Dog - Kate Atkinson 8. Baking Made Easy - Lor- raine Pascale 9. The Teacher’s Tales of Ter- ror - Chris Priestley, Philip Reeve 10. The Gruffalo Red Nose Day Book - Julia Donald- son, Axel Scheffler Bóksölulisti Lesbókbækur M eðal þeirra bóka sem tilnefndar eru til Orange-verðlaunanna bresku, bók- menntaverðlauna kvenna, er skáld- sagan A Visit from the Goon Squad eftir bandaríska rithöfundinn Jennifer Egan. Sú er fimmta bók Egan og fékk bandarísku gagnrýn- endaverðlaunin sem skáldverk ársins 2010. Það rímar vel við höfundarsögu Egans að menn deila um það hvort bók hennar er skáldsaga eða smásagnasafn; sumir flokka hana eins og hverja aðra skáldsögu en aðrir sem smásagnasafn, enda eru í henni sögubrot, en þau eiga þó það sameig- inlegt flest að segja frá uppgjafapönkaranum og út- gefandanum Bennie Salazar og fólki sem honum tengist á ýmsa vegu. Sögusviðið er New York í flest- um brotanna, en leikurinn berst víðar, vestur til Kaliforníu og austur til Ítalíu og Afríku svo dæmi séu tekin, en einnig gerast sögurnar á ýmsum tím- um, allt frá sjöunda áratugnum inn í framtíðina. Þess má og geta að ein sagan, eða sögubrotið, er Po- werpoint-glærusýning. Stílæfingar og tilraunir Egan hefur gert sér það að leik í fyrri verkum að breyta um stíl eftir því sem hæfði sögunni og þann- ig var fyrsta skáldsaga hennar nokkuð dæmigerð þroskasaga, önnur skáldsagan einskonar glæpa- reyfari og sú þriðja í gotneskum stíl. Í viðtali við Wall Street Journal lýsti Egan sögunni svo, að hún væri bók um tíma og þar sem hún gerðist í brotum eða hlutum hefði sér þótt mikilvægt að hlutar hennar yrðu sem ólíkastir og þá ekki bara hvað varðaði persónur og aðstæður heldur einnig tíma- skeið og frásagnaraðferð. Af Jennifer Egan má svo rekja að hún er fædd í Chicago en ólst upp í San Fransisco. Nám stundaði hún í Háskóla Pennsylvaníu og Cambridge í Eng- landi. Á námsárunum var hún iðin við ferðalög, fór þannig með bakpokann til Kína, Sovétríkjanna og Japans, aukinheldur sem hún heimsótti ýmis Evr- ópulönd. Frá þeim ferðalögum segir hún í sinni fyrstu bók, smásagnasafninu Emerald City sem kom út 1993. Þá bjó Egan í New York og vann þau störf sem til féllu, meðal annars í veitingahúsum, sem einkaritari og við textavinnslu. Hún vann síðar sem blaðamaður og seldi einnig smásögur í ýmis tímarit, þá aðallega New Yorker, Harpers, Granta og McSweeney’s. Skáldað á pappír Fyrsta skáldsaga hennar, The Invisible Circus, kom út 1995 og var vel tekið. Eftir henni var síðan gerð samnefnd kvikmynd með Cameron Diaz í aðal- hlutverki en þeirri mynd var ekki eins vel tekið og bókinni. Önnur skáldsaga Egan, Look at Me, var meðal annars tilnefnd til bandarísku bókmenntaverð- launanna, og þú þriðja, The Keep, sem kom út 2006, seldist metsölu. Viðtökur A Visit from the Goon Squad hafa verið einkar jákvæðar, eins og sést vitanlega af verðlaunum og tilnefningum, en bókin hefur líka selst vel vestan hafs og austan. Tímaritið Publishers Weekly’s taldi hana til að mynda með bestu bókum ársins 2010 og sama gerðu New York Times, tímaritið Time og vefsetrið Salon, aukin- heldur sem bókasafnsstarfsmenn heiðruðu hana og hún var tilnefnd í lokaval fyrir Los Angeles Times- bókmenntaverðlaunin og eins fyrir PEN/Faulkner- bókmenntaverðlaunin 2011. Samhliða skrifunum hefur Egan starfað sem blaðamaður og í áðurnefndu viðtali við Wall Street Journal segir hún frá því að þegar hún sé í blaða- mannshlutverkinu sitji hún við tölvu, en skáldverk skrifar hún í skrifblokk í hægindastól og setji sér það að skrifa 5-7 síður á dag. Ekki kannast hún við fyrirbæri eins og ritstíflu, líklega vegna þess að hvert uppkast sem hún skrifi sé svo ömurlegt, upp- fullt af skjögrandi klisjukenndum setningum, slæmum texta eða ómögulegum. Að hennar mati stafa ritstíflur yfirleitt af því að fólk kunni því illa að skrifa illa og sitji fast þegar það sé sífellt að bíða eftir rétta innblæstrinum. Ýmsir spá því að bandaríski rithöfundurinn Jennifer Egan fái Orange-verðlaunin bresku. Sögubrot um tíma Bandaríski rithöfundurinn Jennifer Egan er talin líkleg til að hljóta bresku kvennabókmenntaverðlaunin, en menn eru ekki á eitt sáttir um hvort bókin sem tilnefnd er, A Visit from the Goon Squad, er smásagnasafn eða skáldsaga. Árni Matthíasson arnim@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.