SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 45
10. apríl 2011 45 Ég er um það bil að ljúka lestri á bók eftir Max Frisch, Montauk, sem er sérkennilegt verk, eins- konar stílfærðar minningar, og mundi líklega kallast skáldæv- isaga í dag. Max Frisch var svissneskur höfundur og er sennilega helst þekktur hér af leikritunum Biedermann og brennuvargarnir og Andorra, auk skáldsögunnar Homo Faber sem hefur verið þýdd. Montauk skrifaði hann kominn á sjötugs- aldur og umgerð bókarinnar er lýsing hans á stuttu ástaræv- intýri í Bandaríkjunum, með þarlendri konu sem er mun yngri en hann. Bókin er óvenju- leg í byggingu og má segja að hún raðist smám saman upp líkt og mósaíkmynd. Hann hleypur fram og aftur í tíma, notar ýmist fyrstu eða þriðju persónu um sjálfan sig. Hann rifjar upp minningar úr barnæsku sinni, en meginhluti bókarinnar fjallar þó um samskipti hans við fyrr- verandi eiginkonur sínar og ást- konur og hann hlífir sjálfum sér hvergi í lýsingum, er nánast nöturlega hreinskilinn á köfl- um. Auk þessa rýnir hann í líf sitt sem rithöfundur í áranna rás, og sú hlið á ævi hans hlýtur svipaða meðferð og ástalífið, hann sviptir burt ýmsum hulum og goðsagnakenndum blæ sem gjarnan hvílir yfir ferli heims- þekktra höfunda, en hann stóð einmitt á hátindi vinsælda sinna um þetta leyti og var meðal annars mjög eftirsóttur fyrirles- ari í Ameríku. Nú bý ég ekki svo vel að geta lesið Frisch á þýsku svo vel sé og er með hann í enskri þýðingu, sem þó er talin mjög vönduð. Eftir þessari bók að dæma, og svo Homo Faber sem ég hafði lesið áður á ís- lensku, er Frisch stílisti sem á sér fáa líka. Hann hefur ein- hvern tón sem er algerlega hans eigin, þó ef til vill mætti líkja honum við t.d. Heinrich Böll að einhverju leyti, og þá á ég kannski helst við Írsku dag- bækurnar eftir Böll. Næmi Frisch á landslag, umhverfi og andrúm allt er með fádæmum og þessi þáttur í bókinni fellur fullkomlega að þeirri sögu sem hann hægt og hægt leiðir fram og gefur skýra en nokkuð napra mynd af manninum bak við rit- höfundinn Max Frisch. Þetta er tregafull bók, en þó alls ekki laus við húmor, og vekur hug- ann með ýmsu móti. Lesarinn Gyrðir Elíasson rithöfundur Montauk Svissneski rithöfundurinn Max Frisch er nöturlega hreinskilinn á köflum í skáldævisögunni Montauk sem hann skrifaði kominn á sjötugsaldur. Í sjálfu sér er ekki mikið að segja um Sjöunda himin annað en að bókin er ansi vond. James Patterson er gríðarlega vinsæll og afkasta- mikill spennusagnahöfundur. Til að auka afköstin enn meira fær hann oft til liðs við sig aðra spennusagnahöfunda. Sjöundi himinn er einmitt þannig sam- starfsverkefni. Maxine Paetro hefur áður unnið með Patterson í bókum um Kvennamorð- klúbbinn. Nú er áberandi þreyta komin í samstarfið því í þessari bók sem er sú sjöunda í þessum flokki hefur hvorugt þeirra nennt að vinna vinnuna sína. Brennuvargur kveikir í hús- um auðmanna í San Fransisco og brennir þá inni. Lindsay Boxer og félagi hennar, Rich Conklin, rannsaka málið. Bókin er skrif- uð í áberandi letilegum stíl, textinn er marflatur og hvergi vottar fyrir persónusköpun. Hrúgað er saman lýsingum á grimmdarlegum verkum, en spennan verður aldrei veruleg og það sem á að vera hápunktur er fáránlegt. Eiginlega það eina góða sem segja má um bókina er að hún er fljótlesin. Á bókarkápu er vitnað í er- lenda umsögn um bókina en þar segir: „Grípandi… mergjuð… flýgur áfram á ofsahraða… bók sem allir verða að lesa.“ Eftir að hafa lesið bókina er ástæða til að setja fjölmörg spurningarmerki við þessa loflegu umsögn. Þreyttir höfundar Bækur Sjöundi himinn mnnnn Eftir James Patterson og Maxine Pa- etro. JPV útgáfa - 270 bls. Kolbrún Bergþórsdóttir Fyrir hálfri öld hélt John Stein- beck af stað í ferðalag þvert yfir Bandaríkin með hundinn sinn Charley. Ferðina fór hann, að sögn, til að komast aftur í sam- band við landa sína, enda þótti honum sem hann hefði fjarlægst þá. Afrakstur ferðarinnar var Travels with Charley in Search of America sem kom út 1962 og varð metsölubók. Í tilefni afmælis bókarinnar hélt blaðamaður af stað og fór sömu leið, að hann ætlaði, en komst fjótlega að því að Stein- beck hefði fært verulega í stílinn og að ferðasagan væri jafnvel uppspuni að miklu eða mestu leyti, eða svo segir í það minnsta í nýrri bók blaðamannsins. Ferðalygasaga Rithöfundurinn John Steinbeck. LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar VIÐTÖL UM DAUÐANN 26.2. - 22.5. 2011 - Salur 1 Sunnudaginn 10. apríl kl. 14 ENGINN VEIT SÍNA ÆVINA ... LISTIN AÐ LIFA OG LISTIN AÐ DEYJA Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur fjallar um sýninguna. HLJÓÐHEIMAR 26.2.–22.5. 2011 - Salur 2 HANDANLEIKAR, KIRA KIRA, HLJÓÐSÓLÓ. Nánar á www.listasafn.is TÓNLEIKAR sunnudaginn 10. apríl kl. 21-22 REGNBOGI - Hljóðinnsetning eftir Doddu Maggý, til 10. apríl ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010–31.12. 2012 SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“. Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar ÞRYKKT, samsýning með sögulegu ívafi. 16 íslenskir grafíklistamenn. Byggðasafn Reykjanesbæjar: Völlurinn, sögusýning Bátasafn Gríms Karlssonar: 100 bátalíkön Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Á gráu svæði Hrafnhildur Arnardóttir (23.3. - 29.5. 2011) GUNNAR MAGNÚSSON ´61-´78 (11.2. - 29.5. 2011) Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17 KRAUM og kaffi Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ASÍ 9. apríl til 15. maí Elín Pjet. Bjarnason ÖLL ERUM VIÐ EINSKONAR TRÚÐAR Opnun laugardaginn 9. apríl kl. 15:00 Opið 13-17, nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Viðburðarík helgi! Laugardagur 2. apríl kl. 14: Jónas Kristjánsson veitir leiðsögn um hesta í tengslum við sýninguna „Ljósmyndari Mývetninga – Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar“. Sunnudagur 3. apríl kl. 13 og kl. 15: Sýning á heimildamyndinni Alexander. Sunnudagur 3. apríl kl. 14: Barnaleiðsögn um grunnsýningu safnsins Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Stoppað í fat – Kvon Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga nema mánudaga 11-17 IS(not) | (EI)land Samstarf 5 pólskra ljósmyndara og 5 íslenskra rithöfunda Sunnudaginn 10. apríl kl. 15 Sýningarpjall: Kristín Heiða Kristinsdóttir og Sindri Freysson kl. 17 Tónleikar með Kammerklúbbnum Úr kössum og koffortum Gamlar ljósmyndir frá Hveragerði og nágrenni OPIÐ: fi.-su. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði 19. mars – 1. maí 2011 Varanlegt augnablik Sigtryggur B. Baldvinsson og Þorri Hringsson 19. mars – 1. maí Birgir Andrésson og vinir Eggert Pétursson, Egill Sæbjörnsson, Kristinn E. Hrafnsson, Magnús Reynir Jónsson og Ragna Róbertsdóttir Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Verið velkomin

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.