SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 26
26 10. apríl 2011 Óskar Jóhannsson É g var einn af strákunum sem seldu hermönnum dagblaðið Daily Post sem gefið var út á stríðsárunum í Reykjavík. Ég hef skrifað niður ýmsar minningar frá þeim tímum, og langar að rifja upp at- burði sem gerðust fyrir 70 árum, eða síð- ast í febrúar árið 1941. Það fólk sem man þá tíma hefur kannske gaman af að rifja þá upp, og fyrir þá sem yngri eru, er fróð- legt að gera sér grein fyrir þeim breyt- ingum sem orðið hafa síðan. Það var langt liðið á febrúar 1941. Norðanstormur hafði skollið á um nóttina og varla stætt við höfnina. Þegar ég kom í Sænska frystihúsið, gekk mikið á, bílar komu með marga menn, sem voru renn- andi blautir og nokkrir á sjúkrabörum. Það var farið með þá upp á loft. Ég spurði einn hermanninn hvað hefði komið fyrir. Og hann sagði mér að skip hefði strandað, en hann vissi ekki hvar. Ég hélt áfram, fór í Völund og Kveldúlfshúsin, þegar ég kom innundir Barónsstíg sá ég loks í særokinu að eitt af skipunum úr stórri skipalest, sem var á ytri höfninni, hafði rekið á land í Rauðarárvíkinni, þar sem gatnamót Skúlagötu og Snorrabrautar eru nú. Skip- ið var danskt flutningaskip, Sonja Mærsk, með fallbyssu á palli á skutnum, eins og var á mörgum flutningaskipum. Það hafði dregið ankerin og afturendinn fór upp á land, en stefnið sneri út á sjó. Þetta hafði gerst fyrir nokkru, og allir skipverjar voru komnir í land og inn í Sænska frysti- húsið. Þegar ég var að horfa á þetta tók ég eftir að annað skip úr skipalestinni, hafði slitið ankerisfestarnar og rak flatt undan veðrinu í átt að danska skipinu. Ég beið til að sjá hvað gerðist. Á tímabili hélt ég að það kæmi þvert á stefnið á því danska en það kom flatt vestan við það, með stefnið fast upp að hlið danska skipsins. Þegar það fór á hliðina í fjörunni ultu margar stórar tunnur í sjóinn. Það var kominn töluverður hópur af mönnum niður í fjöru til að bjarga skip- verjum, ef þeir færu í sjóinn en ég gat ekki stoppað lengur og varð að halda áfram að selja blaðið. Þegar ég hafði lokið því og búinn að hlaupa niður í Austurstræti og gera upp, var ég svo spenntur að sjá strandið, að í stað þess að fara í Miðbæj- arskólann kl. 12.40, ákvað ég að gera það sem ég hafði aldrei gert, skrópa í skól- anum. Að „skrópa“ var orð sem ég hafði aldrei heyrt fyrr en í Reykjavík. Þegar ég kom aftur niður að sjó, hafði storminn lægt mikið og var mikill mannfjöldi mættur í Rauðarárvíkinni, og einn sá fyrsti sem ég hitti var kennarinn minn, hann Þorvaldur. Hann sagði að kennsla félli niður vegna veðurs og hélt að ég hefði heyrt það í útvarpinu. – Þar var ég heppinn. – En það var mikið um að vera á strandstaðnum. Seinna skipið sem rak upp hét Ourem og var portúgalskt. Rauð- vínstunnur af dekkinu fóru í sjóinn þegar það fór á hliðina. Það hafði verið hægt að bjarga öllum mönnunum yfir í hitt skipið og síðan í land. Kallaður hafði verið út vinnuflokkur til að bjarga tunnunum og velta þeim frá sjónum. Hvernig sem það atvikaðist, stóð ein tunnan upp á endann og hafði lokið kannske „óvart“ brotnað af. Það var þröngt í kringum tunnuna. Ég sá konu koma með kaffi á brúsa handa manninum sínum. Hann tók brúsann, hellti kaffinu í fjörugrjótið og sökkti hon- um í rauðvínstunnuna og þambaði úr honum í einum rykk. Fyllti hann aftur, setti tappann á og bað konuna að geyma hann vel og fór að vinna. Þetta var annar eða þriðji flokkurinn sem var kallaður út, en mikinn hluta af fyrsta hópnum þurfti að bera upp í bíla og keyra heim. Sumir voru orðnir nokkuð slompaðir í þessum hópi. Á fjörukambinum neðan við Skúlagöt- una, niður af Barónsstíg, voru tveir eða þrír timburskúrar, bárujárnsklæddir. Í þeim voru sviðnir hausar í sláturtíðinni á haustin. Uppi á einum skúrnum stóð Kjarval í regnkápu við trönurnar sínar og málaði í öllu rokinu og rigningunni. Ekki hef ég séð neina mynd sem gæti verið af- rakstur þessa óvenjulega dags hjá meist- ara Kjarval. Um haustið voru skólarnir fullir af her- mönnum, svo kennsla byrjaði ekki fyrr en í nóvember, þess vegna var kennt lengur og ég seldi Daily Post út maí 1941. Seinni partinn í maí sá ég einn daginn heljarmikið herskip koma út úr Hvalfirð- inum. Ég náði í Þóri vin minn, og við hlupum upp að Leifsstyttu til að sjá skipið betur. Meðal verðlaunamyndanna af flugvélum og herskipum, sem ég hafði fengið, var ein af Hood, stærsta og öfl- ugasta herskipi á heimi. Það var enginn vafi, þetta var Hood. Um það bil tveimur dögum seinna kom í fréttum að herskipið Bismarck, sem var stolt þýska flotans, hefði látið úr höfn í Noregi og Hood hefði verið sent á móti því. Þegar þau komust í skotfæri hvort við annað, norður af Íslandi, vildi svo til að fyrsta skotið frá Bismarck hitti beint í skotfærageymslu Hoods og það sprakk í loft upp. Ég tók mörg aukablöð næsta morgun þegar fréttin „Hood Sunk“ náði þvert yfir forsíðuna á Daily Post. Margir hermenn- irnir höfðu frétt af þessu og þeir voru al- varlegir þegar þeir keyptu blaðið og vildu vita meira um þetta mikla áfall. Næstu daga voru æsandi fréttir af elt- ingaleiknum við Bismarck og mikið glaðnaði yfir hermönnunum þegar fréttin barst um að endalok hins mikla skips væru loks ráðin þremur sólarhringum síðar, langt suður í hafi. Eins og fyrr segir fengu strákarnir blöðin ekki afhent fyrr en búið var að rit- skoða það, og stimplað eintak var komið á afgreiðsluna. Mjög oft kom það í minn hlut að hlaupa með tvö eintök, strax og blaðið kom úr prentun, inn á Hverfisgötu inn undir Barónsstíg. Í íbúðarhúsi neðan við götuna var skrifstofa á vegum her- stjórnarinnar. Offíseri las blaðið vandlega á meðan ég beið. Þá stimplaði hann annað eintakið og ég tók sprettinn með það aft- ur niður í Austurstræti 14, þar sem hóp- urinn beið óþolinmóður, en Hulda var búin að telja blöðin og merkja og skrifa á strákana. Ekki man ég til þess að at- hugasemdir hafi verið gerðar við efni blaðsins. Meðan strákarnir biðu eftir að fá blaðið afhent, var ég oftast á sprettinum í rit- skoðunina og kynntist því fáum þeirra. Þó eignaðist ég ágætan kunningja á mín- um aldri og fór nokkrum sinnum heim til hans. Hann var kallaður Jón Ben og átti heima í bakhúsi við Ingólfsstræti á milli húss Óskars Halldórssonar útgerð- armanns og Aðventistakirkjunnar. Jón Ben var hressilegur og ágætur strákur. Þegar ég fór að hugsa um það eftir á taldi ég víst að hann hefði þekkt vel til og jafnvel verið heimagangur í bragga- hverfinu sem var á svæðinu á horni Ing- ólfsstrætis og Hallveigarstígs, þar sem Hús iðnaðarins er nú. Mér brá því illilega eins og fleirum, þegar fréttist að laugardaginn fyrir hvíta- sunnu hefði hann verið að fikta í herbíl sem stóð við kirkjuna og vörðurinn skotið hann til bana. Seinna var sagt að vörð- urinn hefði verið settur á geðveikraspít- ala. Ekki vissi ég hvað var gert við her- manninn sem var á vakt á Skólavörðu- holtinu, þegar kærastan hans fór út úr kampinum í leigubíl (mig minnir að bíll- inn hafi verið R 1380) með öðrum og hann skaut á eftir bílnum. Skotið fór inn um afturrúðuna, í gegnum hatt bílstjórans og út um framrúðuna. Skipskaði í Reykjavík Hood, stærsta og öflugasta herskip í heimi. Í „mínum kömpum“ mátti enginn annar selja 1 Hafnarsvæðið 2 Nafta bensínstöðin 3 Sænska frystihúsið 4 Völundur 5 Kveldúlfur 6 Vöruskemmur við Barónsstíg 7 Við Hringbraut (Snorrabraut) á milli Laugavegar og Njálsgötu 8 Allt Skólavörðuholtið og nágrenni Byggt á korti útgefnu af herstjórninni Þarna var Rauðarárvík 1 2 3 4 5 6 78 Skúlagata Hverfisgata Laugavegur Grettisgata Njálsgata Bergþórugata Bar óns stíg ur Sn or ra br au t Ba ró ns st ígu r Vi ta st iíg ur Fr ak ka st ígu r Kl ap pa rs tíg ur Lindargata Sölvhólsgata In gó lfs st ræ ti Skólavörðustígur Óð ins ga taBe rg sta ða str æ ti Bald ursg ata Njar ðarg ata Eiríksgata Ka lko fn sv eg ur Freyjugata Va tn ss tíg ur Sonja Mærsk og Ourem á strandstað. Ljósmynd/Þorsteinn Jósepsson Þessi mynd úr Sjómannadagsblaðinu var tekin árið 1954, frá þeim stað þar sem Rauðarárvíkin var. Vinningar í Vöruhappdrætti DAS það ár, voru m.a. bátur og margir bílar. Víkin var horfin og vegur þar yfir sem skipin strönduðu. Lengst til vinstri sést í hús málningarverksmiðjunnar Hörpu. Ennþá sáust tveir af bröggunum sem ég seldi Daily Post í á horni Barónsstígs. Nóa-, Hreins- og Síríushúsið var óbreytt, en hefur nú hækkað um helming og er Hótel. Skúrinn neðan við Skúlagötuna, sem Kjarval stóð uppi á og málaði, stóð enn. Hús Kassagerðarinnar á horni Vitastígs er ennþá óbreytt. Hús kjötvinnslunnar Búrfells og Sláturfélagsins eru nú horfin. Hvíta húsið lengst til hægri á myndinni var Kveldúlfur og á bak við það sést í stóra reykháfinn í Völundi. Þar var allt fullt af hermönnum á stríðsárunum og þar seldi ég einnig Daily Post. Sjávarmegin við Skúlagötuna á móts við Völund voru olíutankar. Gluggar voru málaðir á þá, svo þýskir flugmenn myndu halda að það væru íbúðablokkir! Sæ- brautin og allt norðan við Skúlagötu er uppfylling. Rauðarárvík 13 árum seinna

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.