SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 38

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 38
38 10. apríl 2011 G amanmyndin Arthur var frumsýnd í Bandaríkjunum á föstudag en í henni fer breski grínistinn Russell Brand með titilhlutverkið sem Dudley Moore fór á kostum í fyrir þrjátíu árum. „Arthur er frábær mynd og leikur Dudleys Moores í henni stórkostlegur. Ég fann ekki pressu heldur knúði skyldan dyra. Skylda sem við tókum mjög al- varlega,“ sagði Brand í samtali við fréttastofu AFP í Beverly Hills og útskýrir nánar: „Ég þekki myndina mjög vel, hún var ein af uppáhaldsmyndum mínum þegar ég var strákur. Þetta voru því í raun frekar forréttindi en pressa.“ Arthur er ungur milljónamæringur sem er of upptekinn við veisluhöld í New York, að eltast við stelpur eða detta í það til þess að velta fyrir sér heiðri fjölskyldunnar. Hann neyðist þó til að taka skyldur sínar alvarlega þegar móðir hans vill að hann kvænist hinni ríku og fínu Susan (Jennifer Garner) en á sama tíma kynnist hann sannri ást Naomi (Greta Gerwig), sem er hvorki með rétt seðlaveski né ættartré. Hlutverkið virðist hæfa Brand vel en hann kvæntist bandarísku poppstjörnunni Katy Perry í október. Áður hafði hann langt í frá verið við eina fjölina felldur. Hann var valinn „Shagger of the Year“, sem þýðist í barnvænni útgáfu „Kvennaljómi ársins“, árin 2006, 2007 og 2008 af breska götublaðinu The Sun. Brand fæddist 4. júní 1975 (sama dag og ár og Angelina Jolie) í Essex á Englandi og er því 35 ára. Hann ólst upp hjá móður sinni Barböru Elizabeth en faðirinn yfirgaf fjölskyldunna þegar Brand var sex mánaða gamall. Hann átti að mörgu leyti erf- iða æsku, móðir hans þurfti nokkrum sinnum að berjast við krabbamein, hann lenti í margs konar vandræðum og ánetjaðist loks eiturlyfjum, áfengi og kynlífi. Auk þess barðist hann við lotugræðgi. Hann hefur þó algjörlega breytt um lífsstíl, verið hreinn frá árinu 2002 og sækir AA- og NA-fundi reglulega. Brand er grænmetisæta og stundar jóga. Aftur að Arthur en Brand útskýrir í viðtalinu að sagan eigi sér ákveðna hliðstæðu í hans eigin ævi. „Ég varð ástfanginn, gifti mig og varð fullorðinn á endanum. Svo, já, ég skil af hverju ég tengi sér- staklega við þetta þema núna. Ég held að það sé mikilvægt í myndum yfirhöfuð, þroskasaga ungs manns sem fullorðnast,“ segir hann og bætir við að það að verða ástfanginn og hjónabandið hafi breytt sér heilmikið. Arthur frá 1981 fékk tvenn Óskarsverðlaun, John Gielgud fékk verðlaun sem besti leikari í aukahlutverki sem brytinn Hobson og lag Burts Bacharachs, „Best That You Can Do“, var verðlaunað. Í mynd- inni hefur Hobson skipt um kyn og er núna í færum höndum bresku Óskarsverðlaunaleikkonunnar Helen Mirren. Samstarf Mirren og Brands var gott og lofa þau hvort annað. Hefur Mirren lýst yfir ánægju með að leika loksins í gamanmynd. Kvikmyndin Arthur verður frumsýnd hérlendis 20. apríl. Breski grínistinn Russell Brand bregð- ur sér í hlutverk Arthurs þrjátíu árum eftir að Dudley Moore lék drykkfellda, ríka partístrákinn. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Russell Brand kvæntist söngkonunni Katy Perry 23. október 2010. Athöfnin fór fram að hefðbundnum sið hindúa á Indlandi. Reuters Með mömmu á Óskarnum. ’ Ég varð ást- fanginn, gifti mig og varð fullorðinn á end- anum. Svo, já, ég skil af hverju ég tengi sérstaklega við þetta þema núna. Partístrákur verður fullorðinn Með samleikkonum sínum. Brand hefur breytt um lífsstíl. Frægð og furður Danska knattspyrnuliðið FC Kaupmannahöfn hefur fund- ið upp á nýrri leið til að skemmta aðdáendum sín- um með því að leyfa liðs- mönnum sínum að spila uppáhaldstónlistina sína. Leikmenn FCK fá að velja tónlistina sem spiluð er fyrir leiki og í leikhléi á Parken. Fyrstur í röðinni er hin sænskættaði Oscar Wendt en lagalisti hans verður notaður nú um helgina, á leiknum við Randers á laugardags- kvöld. Þá er bara eins gott að leikmennirnir séu með góðan tónlistarsmekk og velji tónlist sem komi aðdáendunum í rétta skapið á heimaleikjunum! Boltaplötusnúðar Stjörnuleikur. Egypska kóbraslangan sem slapp úr Dýragarðinum í Bronx í New York og varð fræg fyrir hefur fengið nafnið Mia, sbr. „Missing in action“ sem vís- ar til þess að hún var týnd í heila viku. Dýragarðurinn í samvinnu við New York Daily News efndi til samkeppni og bárust 33.000 tillögur. Fjögur nöfn til viðbótar komust í úrslit, Agnes, Amaunet, Cleopatra og Subira. Fleiri þekkja samt áreiðanlega Miu undir nafninu @BronxZoos- Cobra á Twitter, þar sem ímyndað ævintýralíf slöngunnar er rakið. Nýleg færsla segir: „Búið að kjósa. Þau vilja kalla mig Miu. En í hjarta mínu mun ég alltaf vita að rétt nafn mitt er Mrs. Justin Bieber.“ 240.000 manns eru áskrifendur að síðu slöngunnar á Twitter. Kóbra á Twitter Slangan fræga.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.