SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Qupperneq 17
10. apríl 2011 17
Ballettstjörnur skipa veglegan sess í menningarlífi San Francisco-
borgar. En hvernig eru launakjörin?
„Nú orðið eru kjörin nokkuð góð, verð ég að segja, en kannski ekki
miðað við íþróttafólk,“ segir Helgi og brosir. „Þetta er mikið meira en
það var. Ég myndi ætla að aðaldansararnir hérna hafi 110.000 til
120.000 dollara í árslaun. Dansarar sem eru að byrja í dansflokknum
eru með á bilinu 65.000 til 70.000 dollara á ári.
Því til viðbótar eru peningar lagðir inn í sjóð sem dansarar geta sótt
um þegar þeir hætta til að hjálpa sér að komast í einhverja aðra at-
vinnu, hvort sem það er til að komast í skóla eða eitthvað annað.
Dansararnir sjá sjálfir um sjóðinn. Þeir ráða því hvað hver fær úr
sjóðnum og hvað mikið. Svo eiga þeir kost á ferðastyrkjum.
Átta til tíu ára þjálfun
– Hvað er dæmigerður dansferill langur?
„Það þarf að stunda dans í 8 til 10 ár til að eiga kost á að komast í
dansflokk. Þá er viðkomandi um eða yfir 18 ára. Ef líkaminn heldur
sér og ekkert kemur upp á, hvort sem það er bakið eða hnéð sem gef-
ur sig, geta dansarar í kórnum dansað til þrítugs. Aðaldansararnir
geta oft haldið áfram upp undir fertugt. Þá er ferlinum lokið. Nýir
dansarar koma upp og það er erfitt um fertugt að halda sér í formi eins
og þegar maður var 20 ára.“
– Hvað tekur þá við?
„Við í danshópnum eigum í samvinnu við háskóla sem býður döns-
urum að útskrifast á til dæmis sex árum í staðinn fyrir fjögur. Tvær
eða þrjár stúlkur hafa orðið lögfræðingar. Einn eða tveir dansarar eru
læknar og svo eru margir sem verða þjálfarar. Það eru hins vegar ekki
margir sem geta farið út í að verða danshöfundar eða kennarar.“
– Hvað eru margir danshöfundar á þessum markaði í Bandaríkj-
unum?
„Það eru mjög fáir danshöfundar sem komast á toppinn og geta
samið balletta fyrir stóran dansflokk eins og okkur. Þeir eru sárafáir.“
Fámennur hópur
– Eru þetta 100 manns í Bandaríkjunum?
„Já, ríflega, ef þú telur með nútímadansana. Það eru margir sem
skilgreina sig sem danshöfunda og hafa eigin flokk með tveimur til
þremur dönsurum. Ég skil ekki hvernig þeir geta borgað fyrir æf-
ingasali og annan kostnað. Það hlýtur að vera mikið basl.
Þeir eru hins vegar færri sem geta samið fyrir klassískan ball-
ettflokk eins og hjá mér. Ég hef lagt þremur fyrrverandi dönsurum hjá
okkur lið og hefur þeim tekist að semja þó nokkuð góða balletta. En á
toppnum í dag sem balletthöfundar fyrir nýklassískan ballettflokk
myndi ég ætla að væru 8 til 10.“
Í hópi þriggja bestu
– Hvað eru margir ballettar í sama gæðaflokki og San Francisco-
ballettinn í Bandaríkjunum?
„Þeir eru tveir, báðir ballettflokkar í New York, New York City Bal-
let og American Ballet Theatre. Við erum númer þrjú í stærð en erum
á sama stigi og þessir tveir. Svo fyrir neðan eru dansflokkar í Seattle,
Chicago, Houston, Philadelphia, Boston og Miami. Þar fyrir neðan eru
kannski flokkar í Portland, Tulsa, Cincinnati ásamt fleiri flokkum sem
eru á þriðja stigi fyrir neðan okkur.“
– Þannig að það eru um 20 til 30 ballettar í Bandaríkjunum?
„Já, ég myndi segja það.“
Agi og meinlætalíf
– Nú þurfa dansararnir að vera afar vel á sig komnir líkamlega. Fylgir
þessu meinlætalíf?
„Já, það gerir það. Dansarinn er að mörgu leyti eins og íþrótta- eða
fimleikamaður. Hann þarf að vera í góðu formi og líkaminn þarf að
vera sterkur til að geta staðið undir öllu því álagi sem lagt er á hann,
hvort sem það eru stökkin eða að lyfta dömunum upp og halda þeim
uppi.“
– Þannig að áfengi og tóbak eru ekki inni í myndinni?
„Jú, það er ábyggilega það. Það eru hins vegar mjög fáir dansarar
sem reykja lengur. Það eru aðallega þeir sem koma frá Evrópu.
Bandarískir dansarar eru flestir hættir því.
Ég hef heldur aldrei hitt dansara sem er ofdrykkjumaður eða rekist
á dansara sem er mikið fyrir sterk vín. Svoleiðis líferni og það álag
sem fylgir dansinum fer ekki saman.“
Dansarar færa fórnir
– Þannig að þetta krefst fórna?
„Já.“
– Eru einhver efri mörk í þyngd?
„Nei. Það fer eftir vexti hvers og eins. Dansararnir finna út úr því
sjálfir. Dansari finnur það undir eins í stökkunum ef hann hefur bætt
á sig tíu pundum.“
– Er ballettinn áhugamál elítunnar í San Francisco eða hefur stærri
hópur áhuga á að sjá sýningar?
„Það held ég ekki. Það er stór hópur sem hefur gífurlegan áhuga á
dansinum. Ég veit til þess að unga fólkið kemur frekar til að sjá okkur
en óperuna. Við erum mikið með yngra fólk í salnum. Ég myndi segja
að það væri mikill áhugi í borginni.
Sá áhugi er afrakstur þess sem ég hef skapað hérna. Ég hef komið
San Francisco-ballettinum á toppinn, þannig að fólk veit að það fær
fyrsta flokks danssýningar hérna. Íbúar San Francisco eru mjög stoltir
af dansflokknum og hversu langt hann hefur náð og hvert orðspor
hans er orðið í dag – svo ég get ekki kvartað yfir neinu.“
Örfáir ná
að verða
danshöfundar
San Francisco-ballettinn í tölum
110.000 til 120.000 dalir
Algeng árslaun helstu ballettstjarna
(12,54 til 13,68 milljónir króna)
65.000 til 70.000 dalir
Algeng árslaun annarra dansara
(7,41 til 7,98 milljónir króna)
3.200
Sætafjöldi í sal ballettsins
Um 100
Fjöldi sýninga á dansári
385
Fjöldi nemenda í dans-
skóla ballettsins
3
Ballettar í hæsta gæða-
flokki í Bandaríkjunum
6
Ballettar í næsta
gæðaflokki
20 til 30
Heildarfjöldi ballettflokka
vestanhafs
100%
Hlutfall seldra miða á
vinsælustu ballettana
85-90%
Hlutfall seldra miða á
aðrar sýningar
8 til 10
Danshöfundar á toppnum
í Bandaríkjunum
100+
Fjöldi danshöfunda í
Bandaríkjunum
55-65%
tekna frá miðasölu
Hlutur tekna frá miðasölu
35-45%
Hlutur fjárframlaga
af tekjum
Nutnaree Pipit-Suksun og Pierre-François Vilanoba í hlutverkum
sínum í ballettinum 7 For Eight eftir Helga Tómasson.
Ljósmynd/Erik Tomasson
Frances Chung og Taras Domitro í hlutverkum sínum í Theme and Variations eftir George Balanchine.
Ljósmynd/Erik Tomasson