SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Qupperneq 20

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Qupperneq 20
20 10. apríl 2011 Þ að var öll vikan undir hjá okkur,“ segir Hildur M. Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Brúðuheima í Borgarnesi, en hún stóð fyrir alþjóðlegri brúðuhátíð sem náði hápunkti um liðna helgi. Hátíðin hófst á námskeiði í samstarfi við UNIMA, félag áhugafólks um brúðuleiklist á Íslandi. Og svo var fjög- urra daga hátíð upp úr því, frá fimmtu- degi til sunnudags, með fjölda við- burða, brúðuleiklistarsýningum, brúðukabarett, tónleikum og loka- athöfn með brúðugjörningi, bálkesti í fjörunni og kjötsúpu, en athöfnin var tileinkuð fórnarlömbum hörmunganna í Japan. Hildur áætlar að þúsund manns hafi sótt hátíðina, sem verður árlegur við- burður, og er undirbúningur þegar haf- inn að þeirri næstu. Og enn má skoða sýningu á verkum Michaels Meschke, sem stendur yfir fram í byrjun maí í nýuppgerðu húsi, sem nefnist Mjólkursamlagið. Meschke kom tvívegis til landsins fyrir nokkrum áratugum og þjálfaði íslenska brúðuleik- ara sem voru að taka sín fyrstu skref í greininni, til dæmis Helgu Steffensen og Hallveigu Thorlacius. Brúðuheimar í Englendingavík eru bakhjarl Brúðulistahátíðarinnar BIP. Konstantín Shcherbak frá Rússlandi leikur á Mandolin undir kjötsúpuslafri. Brúðurnar tóku á sig ýmsar myndir á brúðuleikhúshátíðinni BIP í Borgarnesi. Úr sýningunni Lilith í flutningi Astrid Kjær Jensen. Nicolas Gousseff hélt námskeið um notkun á líkamanum sem sviðsmynd. Brúður halda hátíð Bak við tjöldin Í Borgarnesi var fyrir skemmstu hleypt af stokk- unum alþjóðlegri brúðuhátíð sem stendur til að halda árlega. Óhætt er að segja að líf hafi verið í tuskunum. Texti Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmyndir Þorkell Þorkelsson Bryndís Hlöðversdóttir rektor gæðir sér á heitri kjötsúpu á lokahátíðinni.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.