SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 35

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 35
um 1930 og skápur úr tóbaksbúð frá 1920. Þetta eru því hlutir með sögu. Þau fóru líka á markaði í Leipzig og Berlín í Þýskalandi og komu heim með ýmsa dýrgripi þaðan. Ein af fjöldamörgum skemmtilegum innréttingarhugmyndum í Kexi er að bú- ið er að veggfóðra tvo veggi með bingó- spjöldum. „Þau fundu gamalt „Vinabæj- arhúsnæði“ fullt af kössum með gömlum bingóspjöldum og tóku eitthvað með sér heim,“ segir hann en bingóspjöldin eiga líka mögulega eftir að fá framhaldslíf sem glasamottur. Sköpunargleðin er því í fyrirrúmi og sömuleiðis endurnýting og allt hjálpast þetta til við að gefa Kexi skemmtilegt og lífvænlegt yfirbragð. Eins og áður segir eru allar mublurnar gamlar, keyptar í utanlandsferðunum eða þá í góða hirðinum eða á Barnalandi. Það er reyndar ein undantekning á þessu, tveir leðursófar keyptir í Tekk Company en þeir eru að sjálfsögðu í gömlum stíl. Stór og skjólgóður pallur Fyrir aftan húsið verður stór pallur, sem verður meira og minna búinn til úr gömlum vörubrettum. Gólfið við barinn er sömuleiðis búið til úr þessu efni. Búið er að bera á viðinn og leggja hann þannig að gólfið minnir á stórgert fiskibeina- parket. Pallurinn vísar í suður og er mik- ið skjól í portinu, þar verður skyggni og hitalampar og því hægt að sitja úti stóran hluta ársins. Í Kexi verður hægt að fá sér að borða og drekka bæði fyrir gesti húss- ins og líka fólk af götunni. Á morgnana verður morgunverðarhlaðborð fyrir gesti eins og vera ber, kaffihús yfir daginn og svo veitingastaður á kvöldin þar sem lögð verður áhersla á að vera með fáa góða rétti á góðu verði. Barinn í Kexi er stór og vonast Pétur til þess að þar eigi eftir að myndast góð stemning. Hann er líka ánægður með nágrannana en í sama húsi er Nýlistasafnið og Dans- verkstæðið. Svo má ekki gleyma staðarmálaranum en Viðar Þór Guðmundsson listamaður verður með stúdíó í húsinu og verður líka húsvörður. Ennfremur verða tvær skrifstofur utanaðkomandi fyrirtækja í húsinu en allt á þetta að stuðla að skemmtilegra mannlífi fyrir gestina. Gamaldags líkamsrækt Eins og vera ber verður hægt að stunda líkamsrækt í húsinu en ekki á þrek- hjólum og hlaupabrettum. Í Gym & To- nic verða þungir leðurboltar, boxpúðar, hestar, kistur og stökkbretti. Eins og Pétur segir: „Það verður pínu Rocky stemning þarna.“ Gólfið í salnum er endurnýtt en um er að ræða gamla gólfið úr Valsheimilinu. Salurinn verður enn- fremur fjölnotarými og þá getur hest- urinn breyst í borð fyrir kokkteilglas yfir leiksýningu, ljóðalestri eða enska bolt- anum. Annað endurnýtt gólf á svæðinu er í litlu rakaraherbergi en þar eru uppruna- legar flísar úr kexverksmiðjunni, sem fundust í geymslu í Nýlistasafninu út- ataðar í smjöri og fitu. Þær fá að þjóna Kexi á ný. Fyrir þá sem vilja fylgjast með er Kex hostel með heimasíðuna www.kexhos- tel.is og er líka með virka Facebook-síðu. „Við viljum ekki fela að þetta hafi verið verksmiðjuhúsnæði, ekki fela að þetta hafi verið kexverksmiðja og heldur ekki fela að þetta hafi verið gamalt hús,“ segir Pétur Marteinsson, sem er hér við það sem verður móttakan í Kex hostel við Skúlagötu. Á einum veggnum geta gestir brugðið á leik með segulstafi. Staðarmálarinn Viðar Þór Guðmundsson er búinn að veggfóðra dýnubotna með göml- um tímaritum. Barinn er stór og flísalagður. ’ Það hafa allir lagt sitt í púkkið og komið með hugmyndir. Ef hug- myndin er góð er hún framkvæmd og það skiptir engu máli hver á hana.“ Kex vantar fleiri saumavélaborð með járnfótum.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.