SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 41
10. apríl 2011 41
LÁRÉTT
2. Gerum eyðandi einfaldlega reiðan út af þeim
sem eru móðgandi. (11)
6. Segi frá LÍN og loðskinn. (8)
7. Aðalkæna inniheldur hauskúpu. (9)
8. Klifi á list kenndri við þekktan bæ. (9)
9. Hjartanleg hvíld ekki úti. (8)
11. Þvælist Lars í Afríkuríki? (5)
12. Aumar með hendur (5)
13. Held að óp sé í byggingu. (5)
14. Ó, ja, fersk nær að lenda í skrímsli. (8)
16. „Tak til“ segir tæki. (9)
18. Fleskbitar eru á mörkum þess að vera fyrir
margar. (7)
21. Fer úr augsýn með hár til að hitta óstöðugan.
(8)
22. Hvað er að ske? Ýti berlega þessu að orði. (8)
25. Ná með mataráhaldi að komast í kennslu. (8)
27. Ósködduð brigði á það að vísa í heilsu. (10)
29. Meðferð er beitt á matjurt. (8)
30. Minntist á hópa. (7)
31. Hefur minn andi verið ávítandi? (9)
LÓÐRÉTT
1. Skamm! Mál snýst við hjá Ferðafélagi Íslands
út af lifnaðarhætti. (9)
2. Hæsin hjá Gurru nær að sýna ólgu. (7)
3. Mínu stal sá fyrsti með númeri. (9)
4. Í Dublin hverfur Bjarni og Finnur birtist í stað-
inn með baujurnar. (6)
5. OK, erlend frænka frá Los Angeles fær mat á
eldsneyti. (9)
7. Drit kínverskrar ættar er uppkast. (7)
10. „Klukka er klukka.“ Brjálaðir og menntaðir
segja það. (11)
13. Brjálaður án skinns. (8)
15. Króna ættingja verður að heimtingu. (5)
17. Flækjumst einkar mikið um götu. (6)
19. Leggst einn við grjót að sögn. (9)
20. Metti slæm sig með peninga. (6)
21. Hinrik V fær ekkert blandað te úr mjöli. (10)
23. Lítill spotti í líkama okkar. (8)
24. Lofa æsta. (5)
26. Hefur sál heimili hjá bónda. (7)
28. Bóndakona er á mörkum þess að vaxa. (4)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 10. apríl
rennur út 14. apríl. Nafn vinnings-
hafans birtist í blaðinu 17. apríl.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinnings-
hafi krossgátunnar 3. apríl er Sigrún Sighvatsdóttir,
Fífuseli 15, Reykjavík. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Dávaldurinn eftir Lars Kepler. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Íslensku skákmennirnir sem
tefldu á Evrópumeistaramóti
einstaklinga í Aix Le Bains í
Suðaustur-Frakklandi sem lauk
um síðustu helgi, Hannes Hlífar
Stefánsson, Bragi Þorfinnsson
og Lenka Ptacnikova, náðu sér
aldrei almennilega á strik í
stóru og öflugu móti þar sem
tefldu tæplega 400 skákmenn,
þar af 163 stórmeistarar. Hann-
es var með á þessu móti í fyrra
og er á svipuðum slóðum og þá,
hlaut 6½ v. af 11 mögulegum og
varð í 119. sæti. Bragi hlaut 5 v.
og varð í 260. sæti og Lenka
fékk sama vinningafjölda en
raðast í 265. sæti.
Á Evrópumótinu var keppt
um 23 sæti á heimsbikarmóti
FIDE. Fjórir skákmenn tylltu
sér í efsta sætið en stigaút-
reikningur úrskurðaði að Evr-
ópumeistari 2011 sé rússneski
stórmeistarinn Vladimir Potkin:
1.-4. Potkin ( Rússlandi),
Wojtaszek (Póllandi ), Judit
Polgar ( Ungverjalandi ) og
Moissenko ( Rússlandi ) 8 ½ v.
Í 5.-15. sæti með 8 vinninga
komu ýmsir þekktir meistarar
þ. á m. Peter Svidler og sá sem
mesta athygli vakti, franski
stórmeistarinn Sebastian Feller
sem varð í 7. sæti. Dimmur
skuggi hvíldi yfir þátttöku hans
eftir svindlmálið frá síðasta
Ólympíumóti en keppnisbann
franska skáksambandsins er
ekki gengið í gildi. Mikil tor-
tryggni ríkti á skákstað í
Frakklandi og búast má við því
að gerðar verði sérstakar ráð-
stafanir á mótum í framtíðinni
til að girða fyrir svindl af þessu
tagi.
Sól skákdrottningarinnar
Juditar Polgar skein skært. Hún
hefur fyrir nokkru stofnað fjöl-
skyldu, eignast tvö börn og
ekki verið jafn mikið í sviðs-
ljósinu og áður. Hefur þó engu
gleymt og ýmislegt lært og
tefldi af miklum krafti. Þessi
sigur hennar markar í raun
endurkomu hennar á leiksvið
þeirra allra bestu. Í hverju ligg-
ur svo styrkur hennar? Margir
þættir leika þar saman en alltaf
skín í gegnum taflmennsku
hennar hversu mikils hún met-
ur frumkvæðið og er ævinlega
tilbúin að láta liðsafla af hendi
til þess að geta ráðið ferðinni.
Að þessu leyti á hún samleið
með sínum gamla erkifjanda,
Garrí Kasparov. Eftirfarandi
skák sem tefld var í 10. umferð
er gott dæmi um þetta. Strax í
16. leik setur Judit af stað at-
burðarás þar sem hún er við
stjórnvölinn frá byrjun til enda:
Judit Polgar – Viorel Jorda-
seschu
Caro-Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4.
Rd2 e6 5. Rb3 Rd7 6. Rf3 Bg6 7.
Be2 Rh6 8. O-O Rf5 9. c3 Hc8
10. Bf4 c5 11. dxc5 Bxc5 12.
Rxc5 Rxc5 13. Bb5+ Rd7 14. Bg5
Dc7. 15. c4 a6.
16. cxd5!? axb5 17. Hc1 Db8
18. dxe6 fxe6 19. Db3 Rf8?!
Hér var 19. … Kf7 eða 19. …
Hc4 betra.
20. Dxb5+ Kf7 21. Hxc8 Dxc8
22. Hc1 Db8 23. g4 Rh6 24. Db4!
Það er aldrei friður!
24. … Kg8 25. Bxh6 gxh6 26.
De7 De8 27. Dxb7 Da4 28. b4
Ekki 28. Hc7 vegna 28.
…Dxg4+ og svartur vinnur!
28. … Be8 29. De7 Dd7 30.
Hc7!
Manni undir getur hvítur
leyft sér drottningakaup.
30. … Dxe7 31. Hxe7 Bc6 32.
Rd4 Bd5 33. b5 Rg6 34. Hc7
Rxe5 35. f4 Rf7 36. f5 exf5 37.
Rxf5 Be6 38. b6 Bxf5 39. gxf5
Kg7 40. b7 Hb8 41. a4!
Eftir óaðfinnanlega tafl-
mennsku rennur a-peðið af
stað. Svartur er varnarlaus. 41.
… Kf6 42. a5 Rd6 43. a6 Kxf5
44. a7 Hg8 45. Kf2 Rxb7 46.
Hxb7 Ha8 47. Ke3Ke5 48. Hxh7
Hc8 49. Kd3 Kd5 50. Hxh6 Kc5
51. Ha6 Ha8 52. h4 Kb5 53. Ha1
Kb6 54. Ke4
- og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Endurkoma skákdrottningarinnar
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta