SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 43

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 43
10. apríl 2011 43 í mólekúli blaðgrænu raða sér hundrað þrjátíu og sex atóm kringum eitt magnesíumatóm í miðju í runnanum bælir sig bráðin feiga hjartað lostið ofboðsótta laufblöð skjálfa fyrir angistaraugum valur hnitar háa hringi stendur byr undir báða vængi hvessir augun steypist ofan allar beittar klærnar þandar sé magnesíumatómið fjarlægt og járnatóm sett á sama stað í miðju hringsins breytist blaðgrænan í blóð of seint er að iðrast þegar að hjartanu er komið Úr Stöðum, ljóðabók Guðrúnar Hannesdóttur. Salka gaf út 2010. Guðrún Hannesdóttir efnafræði fyrir byrjendur ur verið staðið við skriftir og lestur. Þau skrifpúlt sem varðveist hafa í Þjóðminja- safninu eru mismunandi, allt frá því að vera mjög stór húsgögn með tveimur skápum sem standa samsíða með bili á milli eða minni færanleg púlt, svonefnd ferðaskrifpúlt, sem opnast með hjörum upp á gátt. Einkenni skrifpúlta er að þau voru jafnan með hallandi borði, svo- nefndu halloki á hjörum. Borðið sjálft, hallokið, var jafnframt lok á hirslunni, þar sem hægt var að geyma bækur, pappír og skriffæri. Á stærri púltunum sem varðveist hafa eru oft skápar ofan á skrif- púltinu til beggja handa og geta slík púlt verið allt að tveir metrar á hæð. Nokkur slík skrifpúlt frá nítjándu öld eru varð- veitt í safninu, sem eiga það flest sam- merkt að hafa verið í eigu efnafólks. Með- al þeirra er skrifpúlt frá 18. öld úr Viðey. Allnokkur ferðaskrifpúlt eru einnig varð- veitt í safninu, meðal annars frá Jóni Sig- urðssyni forseta, sem er meðal fjölmargra merkra muna úr fórum hans í Þjóðminja- safninu. Við skrifpúltið sem nú hefur verið skráð á þjóðminjaskrá hefur Sveinbjörn Eg- ilsson unnið að mörgum þeirra afburða- verka sem eftir hann liggja. Við afhend- ingu skrifpúltsins á Bessastöðum var haft á orði að skrifpúltið hefði verið mótsstaður forn-grískrar há- menningar og ís- lenskrar gullald- armenningar og er það vart ofsögum sagt. Á meðan Svein- björn Egilsson gegndi kennara- og rektors- embætti vann hann mik- ið að þýðingum. Má þar nefna skólaþýðingu á Menón eftir Platón. Fyrir Fornfræðafélagið, sem hann var stofnfélagi að, þýddi hann Íslendingasögurnar á latínu. Hann þýddi einnig Snorra-Eddu á latínu og tók saman orðabók yfir ís- lenskt skáldamál sem varð mikilvægt uppsláttarrit á því sviði. Með þýð- ingum sínum á latínu hefur hann án efa opnað erlendum fræðimönnum aðgang að menningararfi Íslendinga. En fleira hefur Sveinbjörn fengist við er hann stóð við skrifpúltið. Vitað er að hann frum- samdi sálminn Heims um ból og áhuga- vert er til þess að hugsa að þar hafi hann skrifað og þýtt ýmsar perlur á borð við Fljúga hvítu fiðrildin og vögguvísuna Nú legg ég augun aftur. Margt fleira mætti nefna til marks um þá sögu sem gæðir púltið óáþreifanlegu gildi, sem án efa mun verða mörgum innblástur. Eftir daga Sveinbjarnar eignuðust skrifpúltið Benedikt Gröndal sonur hans og síðar Einar Benediktsson skáld. Bene- dikt var mikilvirkur fræðimaður eins og faðir hans og þegar Sveinbjörn lést var hann enn að vinna að þýðingu Ilíonskviðu í bundnu máli, sem sonur hans, Benedikt, lauk við. Benedikt var fyrsti Íslending- urinn sem lauk meistaraprófi í norrænum fræðum og stundaði auk þess nám og rannsóknir á sviði náttúrufræða og málvísinda. Hann var ljóðskáld í rómantískum anda og samdi leikrit og sögur. Þá liggur eftir hann einstakt safn teikninga af villtum dýrum Íslands, fiskum, fuglum og spendýrum, sem kom út árið 1976 en Benedikt var af- burðateiknari. Benedikt og Einar unnu báðir að ýmsum hinna þjóð- þekktu verka sinna við skrifpúltið góða. Eftir þeirra daga var skrifpúltið í eigu Ragnars Ásgeirssonar, bróður Ásgeirs Ásgeirssonar forseta, sem keypti skrifpúltið af Einari Benedikts- syni skáldi. Haft er eftir Ragnari að Einar hefði ,,haldið púltinu til haga af því að hann vissi hvað hafði verið skrif- að á því“, en Ragnar var málkunnugur Einari. Ragnar Ásgeirsson var maður ís- lenskrar menningar. Hann safnaði lista- verkum og þjóðlegum fróðleik og liggja eftir hann nokkrar bækur. Síðustu ár ævi sinnar helgaði hann byggðasöfnum landsins krafta sína og fer vel á því að skrifpúltið sem hann átti sinn þátt í að varðveita skuli nú vera á þjóðminjaskrá. Afkomendur hans hafa nú af velvilja og rausn afhent þjóðinni púltið til eignar. Gestir Bessastaða geta nú virt fyrir sér hinn merka grip og íhugað sögu hans og menningararfleifð. Án efa mun skrifpúlt- ið verða fræðimönnum, rithöfundum og skáldum innblástur. Hver veit nema hús- gagnahönnuðir og völundarsmiðir sam- tímans fái einnig nýjar hugmyndir og skáldi í tré í anda skrifpúlts Sveinbjarnar Egilssonar. ’ Við afhendingu skrifpúltsins á Bessastöðum var haft á orði að skrifpúltið hefði verið mótsstaður forn-grískrar hámenningar og íslenskrar gullaldarmenningar og er það vart ofsög- um sagt. Skrifpúlt Sveinbjörns Egilssonar Morgunblaðið/Kristinn af þessu tagi til haga en snýr jafnframt nokkuð haganlega út úr þeim, eða upp á þær. Þarna má finna spilltan stjórnmála- mann – sem fær samviskubit og segir af sér. Tálkvendið reynist vera siðsemin uppmáluð. Heimska löggan er sam- viskusemin holdi klædd og yfirmaðurinn útsmogni nýtur almennrar virðingar. Og það er eitthvað mannlegt við allar per- sónurnar, jafnvel skúrkana. Skemmtilegasti útúrsnúningurinn er þó á minninu um Dr. Watson, aðstoð- armanninn Assad. Hann er ráðinn til að hella upp á kaffi og vera bílstjóri Mørks en er í raun sá sem leysir gátuna og breytist síðan í arabískan Jackie Chan í ofbeldisfullum lokakafla sem minnir á enska spennusagnameistarann Dick Francis í sínu besta formi. Og gengur raunar lengra því Francis datt aldrei í hug að láta tannfyllingar springa. Þessi glæpasaga er fyllilega fjögurra stjarna virði. Jussi Adler-Olsen er margverðlaunaður fyrir reyfara sína um lögregluforingjann Carl Mørk sem starfar í Q-deild dönsku lögreglunnar. Konan í búrinu var fyrsta bókin í þeirri röð. Guðmundur Sv. Hermannsson

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.