SunnudagsMogginn - 01.05.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 01.05.2011, Blaðsíða 31
Kæru verkalýðsleiðtogar, um leið og ég óska ykkur og íslenskum verkalýð til hamingju með daginn, vil ég vekja athygli á eftirfarandi: Greidd iðgjöld í Lífeyrissjóð verzlunarmanna, annan af tveimur stærstu lífeyrissjóðum landsins árið 2010, voru tæpir 16 milljarðar. Fjárfestingartekjurnar voru rúmir 18 milljarðar. Alls voru tekjurnar því um 34 milljarður en útgreiddur lífeyrir var hins vegar aðeins rúmir 6,8 milljarðar. Aðeins um einn fimmti af tekjunum var því greiddur út. Hrein eign Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um áramót var um 310 milljarðar. Sú upphæð ein, og án vaxta, myndi duga til útgreiðslu lífeyris í 45 ár og 3 mánuði. Væri því ekki nær að HÆKKA lífeyrinn frekar en lækka? Hvaða þýðingu hefur það að safna í digra sjóði meðan eldri borgarar þessa lands svelta? Hér er á ferðinni alvarleg hugsanaskekkja. Ég hvet ykkur til að berjast fyrir leiðréttingu á þessu, íslenskum verkalýð til heilla. Helgi Vilhjálmsson, íslenskur eldri borgari PI PA R \T BW A -S ÍA \1 11 16 8 Upplýsingar teknar úr ársreikningi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. IÐGJÖLD 15.946 FJÁRFESTINGARTEKJUR 18.124 SAMTALS TEKJUR 2010 34.070 ÚTGREIDDUR LÍFEYRIR -6.839 EFTIR AF TEKJUM ÁRSINS 27.231 HREIN EIGN TIL GREIÐSLU Í LOK 2010 309.932 HREIN EIGN Í LOK ÁRS ENDIST Í 45 ÁR OG 3 MÁN. 2010 MILLJÓNIR LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA SETJUM HNEFANN Í BORÐIÐ!

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.