SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Blaðsíða 14
14 17. júlí 2011
F
jölmargt hefur áhrif á geð-
heilsu fólks t.a.m: erfðafræði-
legir, félagslegir, efnahagslegir
og umhverfisþættir. Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin (WHO) skilgreinir
getu til að takast á við eðlilegt álag í lífi
sínu sem mikilvægan þátt í geðheilsu
einstaklinga. Ekki síður eru möguleikar
á nýtingu hæfileika og möguleikar til að
sýna fram á árangur eða afköst í vinnu
afar mikilvægir fyrir geðheilsu fólks. Nú
þegar um 13. þúsund manns eru á at-
vinnuleysisskrá er ljóst að í íslensku
samfélagi hefur orðið forsendubrestur
hvað þetta grundvallaratriði í geðheilsu
fólks varðar. Eftir 18-24 mánuði án
fastrar vinnu þrefaldast tíðni geðrask-
ana. Í lok júní voru hátt í þrjú þúsund
manns í þeirri stöðu að hafa verið án
vinnu um svo langt skeið.
Árangur heilbrigðiskerfisins í baráttu
við geðraskanir gefur einnig ástæðu til
að fjalla um hvernig tekist er á við geð-
vandamál. Á síðustu árum hefur að-
gengi að þjónustu batnað ásamt fjölgun
meðferðarúrræða. Þá jókst tauga- og
geðlyfjaneysla um 9% á milli ára 2009-
2010. Kostnaður við notkun tauga- og
geðlyfja hefur aukist úr 1.645 milljónum
króna árið 2003 upp í 3,7 milljarða árið
2010. Þrátt fyrir stóraukna lyfjanotkun
og fjölgun úrræða hefur örorka vegna
geðfatlana þó tvöfaldast á síðustu tveim
áratugum.
Hér á landi höfum við þó að mörgu
leyti verið framsýn á ýmsum sviðum
geðheilbrigðismála. Hér tíðkast ekki að
óla niður fólk og stofnanavæðing náði
aldrei jafn mikilli útbreiðslu hér og víða
annarsstaðar. Afstofnanavæðing tók
jafnframt stórt skref fyrir nokkrum ár-
um þegar peningar sem fengust fyrir
sölu Landssímans voru nýttir í Straum-
hvarfa-verkefnið þar sem rúmlega 130
manns komust í studda búsetu.
Ekki er allt sem sýnist
Á undanförnum tíu árum hefur umræða
um geðheilbrigðismál opnast upp á gátt.
Að hluta til má rekja þetta til skrifa
bandaríska blaðamannsins Roberts
Whitakers um geðlyf og áhrif markaðs-
afla á meðhöndlun geðraskana. Þá hefur
mikið verið ritað um upptök geð-
sjúkdóma og því hefur verið haldið
fram með sannfærandi hætti að uppruni
geðsjúkdóma sé ekki í efnaójafnvægi í
heila. Vísindamenn og geðlæknar á borð
við Daniel Fisher, Irving Kirsch, David
Healy, Daniel Carlat auk Whitakers hafa
haft mikil áhrif á umræðu um eðli geð-
sjúkdóma. Í grunninn er því haldið fram
að ekki hafi verið sýnt með óyggjandi
hætti fram á að geðsjúkdómar stafi af
efnaójafnvægi í heila sem lyf geti lækn-
að. Whitaker og Healy halda því raunar
fram að lyfin geti gert illt verra. Geð-
læknisfræðin hefur því átt undir högg
að sækja og ekki hefur umræða um ítök
lyfjaiðnaðarins við gerð flokkunarkerfa
geðsjúkdóma bætt stöðu hennar.
Ekki síður hafa grasrótarsamtök fólks
sem hefur átt í baráttu við geðraskanir
náð að vekja athygli á sinni hlið málsins
sem vantaði tilfinnanlega. Þar hefur
mikið unnist og verður seint metið til
fulls.
Eðlilegt að fólk sé ringlað
Daniel Fisher sem kom hingað til lands
fyrir stuttu og hélt fyrirlestur, er líf-
efnafræðingur og geðlæknir. Hann
greindist með geðklofa en hefur náð
fullum bata með samtalsmeðferð án
lyfja. Þrátt fyrir það mælir hann ekki
með því að fólk hætti að nota lyfin sín.
Raunar gerir enginn það, margir af
hörðustu gagnrýnendum geðlyfjanotk-
unarinnar eru sammála um að í mörg-
um tilfellum séu þau nauðsynleg. Að
sama skapi eru flestir sammála um að sú
lyfjamenning sem virðist vera búin að
skjóta rótum í samfélagi okkar sé afar
óæskileg. Þversagnir af þessu tagi ein-
kenna umræðu um geðraskanir og með-
ferðir við þeim. Vísindagreinar hafa
verið birtar sem styðja afar ólík sjón-
armið í þessum efnum.
Eðlilega kemur mörgum á óvart að nú
sé verið að deila um upptök og eðli geð-
raskana. Fólk hefur almennt mikla trú á
vísindum og ekki síst læknavísindunum
þar sem ótrúleg afrek hafa verið unnin.
Upp úr 1980, með tilkomu flokk-
unarkerfisins DSM-III, varð sú skoðun
ríkjandi að geðraskanir ættu rætur sínar
í efnaójafnvægi í heila. Þessi skýring
byggðist á vísindalegum grunni og
skapaði grundvöll fyrir trú á því að
hægt væri að laga raskanir með vísinda-
legum hætti. Að margra áliti hefur of
mikið verið leitað til vísindanna til að
útskýra og leysa vandamál sem eru í eðli
sínu mannleg eða félagsleg. Eftir stend-
ur að þrátt fyrir alla okkar tækni og
kunnáttu vitum við alls ekki nægilega
mikið um geðraskanir.
Önnur þversögn sem flækir málið enn
frekar er sú að allt að fimmtungur
þeirra sem þjást af geðklofa og helm-
ingur þunglyndra er ekki greindur og
meðhöndlaður, með tilheyrandi kostn-
aði fyrir samfélagið. Jafnvel þó að á
sama tíma sé talað um of margir fái
greiningu.
Hvar liggur vandinn?
Vandamálið er stórt og erfitt er að ná
fyllilega utan um það. Enda hefur fólk
með vandamál í gegn um tíðina gjarnan
fallið á milli félags- og heilbrigðiskerf-
isins eða kastast á þar í milli.
Almennt er talið að um 22-25% (ca.
75.200 manns á Íslandi) fólks glími við
geðheilbrigðisvandamál og geðfatlaðir
séu um 2,7% íbúa (8.640 manns á Ís-
landi). Geðraskanir mynda annan
stærsta heilbrigðisvanda í Evrópu. Einn
af hverjum fjórum Evrópubúum er tal-
inn glíma við geðraskanir á einhverjum
tímapunkti og 2/3 þeirra glíma við
kvíða- og þunglyndisraskanir.
Áreitið sem fólk býr við í hversdags-
legu lífi gerir lyfjanotkun vissulega að
augljósum kosti til að bregðast við slík-
um vandamálum og hefur hún án vafa
hjálpað mörgum. Fólk sem er að berjast
við að ná endum saman og þarf að sjá
Geðheilsa er einhver mikilvægasti þáttur í lífi fólks og verði hún fyrir áföllum geta afleiðingar verið
miklar og langvarandi. Þetta á við einstaklinga jafnt sem þjóðir. Í dag birtist fyrsta umfjöllunin af
þremur þar sem ætlunin er að fjalla um málefnið frá víðu sjónarhorni og ólíkar raddir fá að heyrast.
Í þetta skiptið verður athygli beint að þeim farvegi sem geðheilbrigðismál hafa verið í. Í næstu viku
verður fjallað um heim þeirra sem hafa átt við vandamál að stríða og fólks sem starfar í því um-
hverfi. Þriðja greinin verður svo helguð stefnu stjórnvalda.
Hallur Már hallurmar@mbl.is
Lyfjakostnaður sjúkratrygginga árin 2008-2010
Heimild: Sjúkratryggingar Íslands
millj. kr.
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
A. Meltingarfæra- og efnaskiptalyf
B. Blóðlyf
C. Hjarta- ogæðasjúkdómalyf
D. Húðlyf
G. Þvagfæralyf, kvensjúkdómalyf og kynhormónar
H. Hormónalyf, önnur en kynhormónar
J. Sýkingalyf
L. Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar
M. Vöðvasjúkdóma- og beinagrindalyf
N. Tauga og geðlyf
P. Sníklalyf (skordýraeitur og skordýrafælur)
R. Öndunarfæralyf
S. Augn og eyrnalyf
V. Ýmis lyf
A B C D E F G H J M N P R S V
2008
2009
2010
Geðheilbrigði og
geðheilsa á tímamótum