SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Blaðsíða 25
17. júlí 2011 25
það hver hefði unnið, konan með kringlulaga andlitið eða mað-
urinn sem gat gleypt á sér hausinn. Árni stóð hjá með frosið bros
á andlitinu og hló af og til með háum rokum eins og Svarti Pétur í
Andrés Önd-blöðunum. Það var eins og það væri hrífuhaus fastur
uppí Árna, brosið bara hvarf ekki. Grænlendingar eru sprellfjörugt
fólk, þeir störðu á Árna og glottu við tönn, það var eitthvert plott
í gangi hjá þeim.
Ooog sigurvegarinn er: Stóri maðurinn með ísbjarnarhausinn í
hvítu peysunni með brosið sem nær þvert yfir Grænland.
Árni leit í kring um sig til að sjá hver hefði unnið en áttaði sig á
því sér til skelfingar að hann sjálfur væri sigurvegarinn. Óskar
Pétursson stórsöngvari og annálað glæsimenni var við það að
lenda í öðru sætinu með óvenjulega grettu þar sem hann var að
borða kleinuhring, en datt úr keppni þegar þeir áttuðu sig á því að
kleinuhringurinn var ekki hluti af andlitinu.
Það er nú ekki amalegt að vinna grettukeppni í útlöndum bara
með því að ganga brosandi fyrir húshorn – og hafa ekkert fyrir
því.
Hvernig er það annars, er ekki keppni í því hver er hrikalegasta
fuglahræðan? Maður gæti kannski unnið með því að vera eðlilegur
eins og Árni í Grænlandi.
eð. Sigrugrettan hvarf ekki af andlitinu.
purnar lögðu sig allar fram en við ofurefli var að etja.