SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Blaðsíða 30
30 17. júlí 2011 F jölmiðlahneykslið í Bretlandi ristir að rótum lýðræðislegra stjórnarhátta og er af þeim sökum eitt athyglisverðasta samfélagsmál sem upp hefur komið á Vesturlöndum um langt árabil – og allt of lítið um það fjallað í íslenzkum fjöl- miðlum. Þótt málið snúist um samskipti stjórnmálamanna, fjölmiðla, við- skiptaveldis og lögreglu í Bretlandi má sjá endurspeglun þess í mörgum löndum með einhverjum hætti – þar á meðal hér á Íslandi. Ástralíumaðurinn Rupert Murdoch fékk í arf dagblað í Adelaide í Ástralíu frá föður sínum. Hann ávaxtaði þann arf á þann veg að það fyrirtæki er nú orðið eitt mesta fjölmiðlaveldi heims með lyk- ilstöðu í Bretlandi og Bandaríkjunum en áhrif um heim allan. Þetta er auðvitað af- rek. Á undanförnum árum og áratugum hefur Murdoch ráðið um 40% af fjöl- miðlamarkaðnum í Bretlandi. Fyrir þremur áratugum eignaðist hann dag- blaðið The Times, eitt virtasta blað í brezkri sögu, eftir mikil átök við stjórn- völd um hvort hann teldist hæfur til að eiga blaðið. Hann lofaði öllu fögru, skrif- aði undir alls konar skuldbindingar og sveik allt eins og lesa mátti um í bók Har- olds Evans, fyrrverandi ritstjóra Sunday Times og síðar The Times, í bókinni Good Times, Bad Times, sem út kom fyrir rúm- um aldarfjórðungi og er áhugaverð lesn- ing fyrir þá, sem á annað borð hafa áhuga á samspili fjölmiðla, viðskipta og stjórn- mála. Hvernig nýtti Murdoch sér þessa stöðu á fjölmiðlamarkaðnum í Bretlandi? Hann gerði það með tvennum hætti. Annars vegar með því að deila og drottna í brezk- um stjórnmálum. Stundum studdi hann Íhaldsflokkinn og stundum Verka- mannaflokkinn. Hann er maðurinn á bak við valdatöku Tony Blair í Bretlandi undir lok síðustu aldar og átti mikinn þátt í að Íhaldsflokkurinn komst aftur til valda undir forystu David Cameron. Þessum árangri náði hann ekki sízt með því að beita götusölublaðinu The Sun ýmist með eða á móti þessum flokkum og for- ystumönnum þeirra. Hins vegar virðast völdin og áhrifin hafa blindað samstarfsmenn hans með þeim hætti að þeir sáust ekki fyrir og töldu sér leyfilegt að gera hvað sem var. Hvað hefur komið fram í umræðum í Bretlandi að undanförnu? Blöð Murdochs með News of the World í fararbroddi hófu að brjótast inn í farsíma fræga fólksins svokallaða og íþróttahetja. Það virðist öllum hafa þótt sjálfsagt. Síðar kom í ljós að símahleranir voru ekki tak- markaðar við þann hóp. Þær beindust að meðlimum brezku konungsfjölskyld- unnar, að helztu stjórnmálaleiðtogum Bretlands, að aðstandendum fólks sem beið bana í stórslysum og skemmd- arverkum. Upp úr sauð þegar í ljós kom að News of the World hafði brotizt inn í síma unglingsstúlku sem hvarf og var myrt og hafði breytt skilaboðum í síman- um á þann veg að það gaf foreldrum stúlkunnar von um að hún væri á lífi. Svo kom í ljós að forsætisráðherra Bret- lands, Gordon Brown, hafði ekki verið látinn í friði. Reynt var að brjótast inn í síma hans, bankareikninga hans, per- sónuleg gögn hans og upplýsinga aflað með sama hætti um heilsufar barna hans og þær birtar. Gordon Brown gerði grein fyrir þessu öllu og bakgrunni samskipta sinna við Murdoch-útgáfuveldið í áhrifamikilli og sterkri ræðu í brezka þinginu sl. þriðju- dag sem setti allt á annan endann í þeirri virðulegu stofnun og ljóst að gífurlegar tilfinningar voru að baki. Ræðan er þeirr- ar gerðar að hana ætti að birta í heild í mörgum löndum – þar á meðal hér. Hún sýndi að árásirnar á Gordon Brown tengdust augljóslega ákvörðunum stjórn- valda í Bretlandi á þeim tíma sem skiptu máli fyrir viðskiptahagsmuni útgáfufélags Murdochs. Í ræðunni fullyrti Brown að News International, sem er dótturfyr- irtæki Murdoch-samsteypunnar í Bret- landi, hefði haft bein tengsl við glæpa- menn þar í landi. Það er fyrrverandi forsætisráðherra Breta, sem setur slíka fullyrðingu fram. Loks liggur fyrir að útgáfufélagið hefur mútað háttsettum lögreglumönnum og keypt þögn sumra fórnarlamba sinna með háum peningagreiðslum. Fyrir liggur að þagnargreiðslurnar voru samþykktar af syni Murdochs. Nú eru vaxandi kröfur í Bandaríkjunum um að FBI rannsaki starfsemi Murdochs vestan hafs og ummæli öldungadeild- arþingmanna benda til þess að þeir viti eitthvað sem aðrir viti ekki. Engum dettur í hug að þorri blaða- manna á blöðum Murdochs hafi tekið þátt í glæpsamlegu athæfi. Hins vegar hefði ekki verið hægt að framkvæma þessi verk nema með þátttöku einhverra í þeirra hópi. Þetta ótrúlega mál vekur upp grund- vallar spurningar um samskipti fjöl- miðlamanna og stjórnmálamanna og áhrif viðskiptavelda á stjórnmál í lýðræð- isríkjum. Davið Cameron sjálfur hefur sagt: Við vorum allir í þessu en með því átti hann við að forystumenn í stjórn- málum þar hefðu keppst við að viðra sig upp við Murdoch og hans menn til þess að njóta góðs af í blöðum þeirra. Svo gerðust þau tíðindi að allir flokkar í Bretlandi sameinuðust gegn Murdoch. Hvað gerði hann þá? Það sama og hers- höfðingjar gera þegar þeir standa frammi fyrir ofurefli. Hann hörfaði en fáum dett- ur annað í huga en að það sé tímabundið undanhald. Stóra spurningin er þessi: Er hægt að kaupa fólk og skoðanir þess með því að beita fjölmiðlum og fjármagni að því marki? Frammi fyrir þessari spurningu standa Bretar og eru að reyna að svara henni. Það standa fleiri frammi fyrir þeirri spurningu og hafa gert. Um það verður fjallað hér á þessum vettvangi að viku lið- inni. Er hægt að kaupa skoðanir fólks? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is B andaríski kvikmyndaleikarinn og söngvarinn Bing Crosby kom hingað til lands á þessum degi fyrir 42 árum til að veiða lax á vegum ABC-sjónvarpsstöðvarinnar en þátturinn „American Sportsman“, þar sem frægt fólk reyndi sig við hinar ýmsu útivistaríþróttir, var eitt helsta tromp stöðvarinnar á þessum tíma. Blaðamaður Morgunblaðsins var í móttökunefndinni á Reykjavíkurflugvelli árla dags og lá vel á stjörnunni sem kvaðst hafa flogið hring yfir Reykjavík og virtist borgin vera falleg. Þá lýsti Crosby yfir því að hann hlakkaði til dvalarinnar hér á landi og að veiða íslenskan lax. Þótti blaðamanninum mikið til þess koma þegar hann kom fyrst auga á „hinn fræga stráhattkúf Crosbys“. Síðdegis sama dag var efnt til blaðamannafundar á Hótel Loftleiðum með Crosby og föruneyti hans og lék söngvarinn þar á als oddi, að því er fram kemur í Morg- unblaðinu daginn eftir. Kvaðst hann hafa kynnt sér sitt- hvað um Ísland fyrr um daginn en ýmislegt vissi hann víst fyrir. Mun Crosby hafa fengið staðgóðan fróðleik um stjórnmál, efnahagsmál og fleira, auk þess sem hann sýndi leikhúslífinu áhuga og spurði um golfiðkun land- ans. Þá mun hann hafa rabbað fjálglega um íslenska bjórinn og dáðst að lopapeysu sem félagi hans, blaða- maðurinn Bud Boyd, hafði fest kaup á. Fram kom á blaðamannafundinum að Crosby og Boyd kæmu endur- gjaldslaust fram í sjónvarpsþættinum. „Við fáum ánægj- una að ferðast á fallega staði, skoða okkur um og kynn- ast nýju fólki,“ sagði Crosby en athygli vakti að hann var búinn að taka ofan hattinn. Ennfremur upplýsti Crosby að héðan lægi leið hans til Lundúna, þar sem hann myndi hitta eiginkonu sína, Katherine, en þaðan ætluðu hjónin ásamt nokkrum vinum í safarí í Kenía. Eins og hver annar veiðimaður „Bing Crosby var eins og hver annar veiðimaður sem ég hafði kynnst. Ég skynjaði ekki að hann væri neitt merkilegri en aðrir enda kom hann ekki þannig fram,“ sagði Axel Gíslason, sem fylgdi Crosby við veiðar á Nes- svæðinu í Laxá í Aðaldal, í samtali við Einar Fal Ingólfs- son í Morgunblaðinu fyrir tæpum tveimur árum. „Það var mjög gaman að taka þátt í þessu. Þótt Bing Crosby birtist í þættinum sem frægur maður hafði hann gaman af stangveiði en hafði aldrei átt við svona stóra fiska. Heima í Bandaríkjunum var hann fyrst og fremst að fást við silung,“ sagði Axel. „Þegar tökum var lokið var Bing laus í einn dag og ég bauð honum með mér upp í Mývatnssveit að veiða urr- iða. Við fórum upp að Helluvaði og vorum þar allan dag- inn, það var mjög gaman að veiða með honum þar. Hann sagði margoft að þetta væri líkara því sem hann þekkti í veiði – bara fallegra.“ Það vakti athygli að Crosby söng lag um Laxá, þar sem hann dásamar ána og land miðnætursólarinnar. „Ég man alveg hvernig það bar til,“ sagði Axel. „Ein- hvern tímann undir lok dags var hlé. Þá labbaði Bing frá hópnum en hafði gleymt að slökkva á upptökutækinu. Við gátum því heyrt þegar hann var að semja lagið og textann. Hann var með einhverja grunnlaglínu og var að reyna útfærslur og texta. Þegar Bing kom aftur var lagið tilbúið og hann söng það fyrir okkur, en við sögðum honum ekki fyrr en eftir á að við værum þegar búnir að heyra það!“ Bing Crosby var jafnvígur á leik og söng. Hann var einn vinsælasti söngvari 20. aldarinnar, með um hálfan milljarð platna í umferð, og fékk Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni Going My Way árið 1944. Frægasta lag hans fer enn í spilun um hver jól, sjálft White Christmas. Crosby fæddist árið 1903 og var því 66 ára þegar hann sótti Ísland heim. Hann andaðist árið 1977, 74 ára að aldri. orri@mbl.is Crosby veiðir á Íslandi Hjartaknúsarinn Bing Crosby á hátindi frægðar sinnar. ’ Bing Crosby var eins og hver annar veiðimaður. Crosby var eldhress við komuna til Reykjavíkur 1969. Á þessum degi 17. júlí 1969

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.