SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Page 26

SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Page 26
26 17. júlí 2011 A ftan á bókarkápu segir að bú- hættir hafi breyst með komu vélanna þar sem hestaverkfæri og afkastamikil, vélknúin verkfæri til ræktunar og heyskapar hafi tekið við af handafli og handverkfærum. Auk þessi hafi stórvirkustu vélarnar frá IHC tekið þátt í vegagerð og öðrum sam- göngubótum. Bókina prýða margar ljósmyndir víðs vegar að og að auki rifja fjórtán ein- staklingar upp minningar sínar um Far- mal og fleiri búvélar frá IHC. Áður hefur Bjarni gefið út metsölubók- ina … og svo kom Ferguson árið 2009 þar sem hann fjallar um vélvæðingu sveit- anna að nýlokinni heimsstyrjöld og hlut- verk heimilisdráttarvélanna í þeirri þró- un með Ferguson-vélar fremstar í flokki. Minning um bernsku Spurður að því hvort það hafi komið hon- um á óvart að … og svo kom Ferguson hafi orðið metsölubók játar Bjarni því. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá kom mér það á óvart. Eftir á að hyggja var það þó kannski ekki svo undarlegt. Það er svona fáhyggjustemning yfir okkur og var, ekki síst þá, og Ferguson er sá traktor sem var fyrstur á mörgum bæjum og var gríðarlega útbreiddur.“ Svo það má segja að vinsældir bók- arinnar byggist að miklu leyti á minn- ingum fólks um dráttarvélina? „Já, ég held það. Þú ert að leita uppi rætur þínar. Ég held að til séu tvenns- konar dæmigerðir kaupendur bók- arinnar, það eru annarsvegar vélakarlar, svona nördar, og hinsvegar eru það svo strákar sem voru í sveit og eiga minningar um sveitadvölina og Ferguson. Þetta er kannski minning um bernsku sem gljáir mest þegar menn fara að horfa yfir liðinn veg.“ Svo eru það lesendur eins og ég sem hef aldrei verið í sveit og fannst bæk- urnar stórskemmtilegar. Í þeim er lif- andi lýsing á þjóðfélagi þessa tíma og það þarf ekki að vera sérfræðingur í dráttarvélum til að njóta hennar. „Nei, nei. Ég segi fyrir mína parta að ef þú færir að spyrja mig út í einhver tækni- leg atriði þá myndirðu reka mig mjög fljótlega á stampinn. Bæði nenni ég ekki að setja mig inn í smáatriði og þau varða ekki málið heldur miklu frekar hvaða þáttur var þarna á ferðinni í þróun ís- lensks samfélags. Þessar vélar losuðu um gríðarlegt vinnuafl í sveitum og komu til móts við flóttann sem varð þegar herinn og aðrir buðu mikla vinnu suðureftir Flóa á sínum tíma. Þá var eina leiðin að kaupa sér rauð- an Farmal eða gráan Ferguson. Í dag getur einn bóndi unnið það sem 60 eða 100 manns unnu áður. Þetta eru ekki litlar þjóðfélagsbreytingar sem liggja í kringum þetta.“ Heimtuðu vélar Eru þessar miklu breytingar sem urðu í landbúnaði og þjóðfélaginu öllu ástæða þess að þú ákvaðst að skrifa bækurnar? „Já, það er það. Ég á mér svona pínu- litla passíu um það að því sé haldið til haga hvernig þjóðin breyttist og hvernig þessir atvinnuhættir til sveita breyttust. Fyrst og fremst þarf að halda til haga hvernig þetta var og hvernig við kom- umst í þessa stöðu sem við erum í núna. Í því samhengi vil ég vekja sérstaka at- hygli á bókaköflum sem nokkrir heið- ursmenn og -konur hjálpuðu mér að skrifa og eru svona augnabliksmyndir eða einsögur úr einstökum héruðum tengdar einstökum vélum og lýsa oft í smáatriðum þjóðfélagslegri stemningu einnar fjöl- skyldu eða í einni sveit.“ Í þeim köflum kemur skýrt fram hversu mikil áhrif dráttarvélarnar höfðu. Breyttu þær öllu? Jú, þær breyttu öllu. Ég ætla að taka þig með í smáferð aftur til 1942 eða 1943. Þá var mikið atvinnuleysi hér, alveg gríð- arlegt. Það var farið að tala um að fjölga býlum í sveit og fjölga þeim sem gætu haft framfæri af landbúnaði. Nokkrum mánuðum seinna þegar bandaríski herinn fer að koma sér fyrir og við förum að rétta aðeins úr kútnum í at- vinnutilliti þá er bara rífandi vinna við Flóann og síld líka. Bændur fá ekkert vinnuafl til að slá eða afla heyja og án þess geta þeir hvorki framleitt mjólk né kjöt og þá bara heimta menn og æpa á vélar. Þá vantar gjaldeyri og ríkisvaldið tekur sig til og skammtar hann og lætur ákveðinn skammt í að kaupa búvélar sem svo ryðjast yfir landið á svona fimm árum. Það þurfti að mæta þessari þörf sem þjóðfélagið hafði kallað fram í kjölfar breytinga.“ Fór á jólaball á Ferguson Það er greinilegt að bændur voru mjög hugvitssamir þegar kom að dráttarvél- unum. Þeir höfðu oft aðeins efni á vél- unum sjálfum en ekki þeim verkfærum og aukabúnaði sem hægt var að kaupa með, ekki satt? „Jú, jú. Svo var það líka að gjaldeyrir skammtaði hversu mikið þeir gátu keypt jafnvel þótt þeir ættu pening. Þjóðin átti ekki gjaldeyri. Til þess að bjarga sér brugðu sumir t.d. á það ráð að binda hestasláttuvélar aftan í Ferguson. Voru bændur svona duglegir að prófa sig áfram? Já, þeir voru það. Og þá erum við kom- in að minni kynslóð, svona gaurum sem eru að komast á eftirlaun núna. Það vor- um við stráktittirnir, kannski 10 eða 12 ára sem fengum að nota þessar vélar dag- inn langan vegna þess að það var enginn annar á bænum sem treysti sér í það eða kunni eða gat fórnað vinnu sinni í þetta. Það að sitja á traktor er mjög einfalt en bóndinn gat kannski slegið eða unnið eitt- hvert erfiðisverk á meðan.“ Þannig að öll fjölskyldan hefur keyrt traktorana og þetta verið hálfgert fjöl- skyldutæki? „Já, já, á þeim tíma. Líka samgöngutæki. Það var farið á þeim á ball og ég fór t.d. á jólaball á Ferguson með keðjum í hálkunni. Ég bauð nú ekki stelpunni minni sem ég var hrifin af þá með en ég er viss um að hún hefði þegið það ef ég hefði þorað að bjóða henni það. Þetta þótti ekki slæmur farkost- ur þá.“ Bændur virðast almennt hafa verið nokkuð tækjasinnaðir. Það þýðir kannski ekkert annað ef þú rekur bú? „Nei, það þýðir ekkert annað. Rétt eins og þú rekur ekki skrifstofu án þess að vera með tölvu og farsíma. Þú getur galað út í buskann og handskrifað eitthvað en það gengur ekki. Persónugerðu vélarnar Eins og þú segir höfðu dráttarvélar í för með sér miklar breytingar og fólk tengdist Dráttar- vélarnar breyttu öllu Í dag kemur út bókin Alltaf er Farmall fremstur eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Í bók- inni fjallar hann um Farmalinn og fleiri afl- og vinnuvélar frá vélasamsteypunni International Harvester Company sem kom við sögu á flestum býlum á Íslandi á síðustu öld og hafði mikil áhrif á framþróun í landbúnaði. Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is Jóhannes Ellertsson slær með rúmlega fimmtugum Farmal Cub á Hvanneyrarfit sumarið 2006. Guðmundur Waage herfar borgfirska nýrækt með IHC 10-20 traktor, líklega um eða skömmu fyrir 1940.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.