SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Síða 2
2 14. ágúst 2011
Við mælum með
13. ágúst
Lífrænn dagur á Sólheimum. Íris
Hera Norðfjörð frá veitinga-
staðnum Kryddlegnum hjörtum
verður gestakokkur. Hátíðin
verður í Grænu könnunni og
verða söluaðilar, framleiðendur
og aðrir sem tengjast þessum
lífsstíl á staðnum. Þá verða af-
urðir úr bakaríi, matvinnslu,
jurtastofu, skógrækt og gróð-
urhúsum Sólheima í boði.
Lífrænt á Sólheimum
4-8 Vikuspeglar
Hálf öld frá því Berlínarmúrinn var reistur, saga Abu Graib-fangelsisins
og enski boltinn að hefjast.
13 Fantasíuveröld
Í vor birtist óþekktur höfundur með þrjár 500 síðna fantasíu-
skáldsögur á dyraþrepinu hjá forlaginu Sögum.
16 Notaðu ímyndunaraflið
Grænmetisbændur á Flúðum sóttir heim á sólríkum degi, nýjungar í
ræktun á grænmeti og vöruvali, sumarið og
lífsstílsbreyting þjóðarinnar.
22 Lífið er fiskur
Kolbrún Bergþórsdóttir með viðtal við Bylgju
Hauksdóttur um líf í ölduróti.
30 Óeirðir í London
Myndrík fréttaskýring Karls Blöndals um eld-
ana og ólguna í Lundúnum.
33 Myndaalbúmið
Söngkonan ástsæla og kraftmikla Bryndís Ásmundsdóttir.
38 Frægð og furður
Viðtal dregið fram úr læstum hirslum við forsetafrúna Jackie Ken-
nedy.
Lesbók
42 Bókmenntahátíð
Það koma margir fínir höfundar til landsins á bókmenntahátíð í
Reykjavík.
44 Bókaopnan
Allt sem þú vilt vita um bækur.
26
34
Reynir Pétur tekur til
hendinni á Sól-
heimum í myndaröð
Særúnar Norén.
Efnisyfirlit
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Þ
að bíður fullt af fólki á flugvellinum í Al-
meria á Spáni sem á bókað flug heim til
Íslands með Iceland Express. Fluginu hef-
ur ítrekað verið seinkað og nemur seink-
unin nokkrum klukkutímum. Sú skýring er gefin
að flugvélin hafi bilað og nú hafa þær fregnir borist
að búið sé að útvega aðra leiguvél.
Og fólkið er komið í flughöfnina á fallegum sól-
ardegi í yfir 30 stiga hita, eins og vant er á þessum
slóðum. Vel tímanlega fyrir brottför er það beðið
um að fara út í vél, það sest í sætin sín og spennir
sætisólar.
Svo gerist ekki neitt. Þegar komið er hálftíma
fram yfir áætlaðan brottfarartíma er fólk farið að
ókyrrast. Þá eru lítil börn farin að gráta út af hit-
anum og aðrir segja brandara og reynslusögur um
seinkanir Iceland Express. „Ætli við verðum komin
heim um miðjan dag á morgun?“
Tíminn líður. Áhöfnin kemur með innpakkaðar
brauðsneiðar og litlar vatnsflöskur. Enn veit fólk
ekki hvað er að gerast, en því finnst þetta ekki góð-
ur fyrirboði.
Enn líður tíminn. Þá fer að spyrjast út að vesenið
sé út af bensíni á vélina og stuttu síðar heyrist flug-
stjórinn segja á lélegri ensku að vandræði séu með
eldsneytið, ekki sé til nóg af því til að flytja farþeg-
ana til Íslands, af því að flugfélagið sem átti að flytja
farþegana hafi átt að borga bensínið og ekki sé búið
að greiða fyrir það alla leið til Íslands. En unnið sé í
því að ná sambandi við það.
Það líður og bíður og hitnar í vélinni. Fólk ókyrr-
ist enn meira. Þá kviknar sú hugmynd í gríni að
safnað sé samskotum meðal farþega. „Menn ættu
kannski að losa sig við klinkið, þá verður hægt að
kaupa bensín og komast heim.“
Flugstjórinn kemur aftur í kallkerfið og segir að
greiðsla hafi borist, en hún dugi ekki til og beðið sé
eftir frekari greiðslu. Allt er þetta óskýrt, af því
hann talar slæma ensku og það heyrist illa í kall-
kerfinu.
Tveir klukkutímar eru liðnir síðan vélin átti að
fara í loftið. Þá heyrist í kallkerfinu að greiðsla hafi
borist sem dugi fyrir bensíni til Íslands, en það vanti
VAT-númer til að hægt sé að ganga frá reikningi og
dæla bensíni. Einhver í vélinni sér ástæðu til að
fagna þessum tíðindum.
Skömmu síðar tilkynnir flugstjórinn sigri hrós-
andi að greiðsla hafi borist og VAT-númerið og
bensínbíllinn sé á leiðinni. Er hann rennir í hlað
grípur um sig gleði meðal farþeganna, en þá til-
kynnir flugstjórinn að ekki sé æskilegt að dæla
bensíni á vélar sem séu fullar af fólki. En það sé í lagi
ef allir slökkvi á farsímum og fartölvum og öllum
öðrum tækjum, setjist í sætin en alls ekki með belt-
in spennt. Einhverjum finnst þetta ekki traustvekj-
andi. En vélin er fyllt og tekst á loft, fólki til mikils
léttis.
Þá kemur á daginn að ekkert er hægt að fá að
borða í vélinni og nánast ekkert að drekka. Þarna
hafa flestir farþegarnir verið í vélinni í næstum þrjá
tíma og fjögurra og hálfs tíma flug er eftir til Íslands.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Seinkanir flugfélagsins Iceland Express hafa verið til umræðu í þjóðfélaginu. Ekkert lát er á.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Saga úr háloftunum
13. ágúst
Systurnar Elma
Lísa og Nína
Björk halda
fatamarkað
laugardaginn
næsta frá 12 til
18 á Lindargötu 6. Til sölu verð-
ur fullt af fíneríis fötum og
fylgihlutum fyrir stelpur og
stráka á góðu verði.
13. ágúst
Dikta rokkar á
Pönk á Patró í
Sjóræningja-
húsinu á Pat-
reksfirði. Dikta
stjórnar tónlistarsmiðju og
heldur tónleika.
14. ágúst
Sunnudagsleiðsögn um Kjar-
valssýninguna klukkan 14 í
fylgd Dagnýjar Heiðdal listfræð-
ings.
www.noatun.isn o a t u n . i s
Nammibarinn
50%
afsláttur
AF NAMMIBARNUM
LAUGARDAGA:
ALLAN SÓLARHRINGINN
SUNNUDAG - FÖSTUDAG:
MILLI KL 20 - 24