SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Qupperneq 8
8 14. ágúst 2011
Á meðan Arsenal og Barcelona hafa karpað um
kaupverð sem talið er að muni nema á milli 35 og 40
milljónum punda, hefur lítillega verið rætt um hlut-
verk Fabregas í liði Barcelona. Margir eru þeirrar
skoðunar að leikmaðurinn eigi eftir að eyða drjúgum
tíma á tréverkinu líkt og hann hefur gjarna þurft að
gera með spánska landsliðinu.
Miðjuspil Barcelona-liðsins hefur einmitt verið að-
all liðsins þar sem Andres Iniesta, Xavi Hernandez,
ásamt varnarsinnaðri mönnum á borð við Sergio Bus-
quets, Seydou Keita og Javier Mascherano eru í að-
alhlutverkum. Unglingurinn Thigo Alcantara hefur
líka verið í frábæru formi með liðinu á undirbúnings-
tímabilinu og lék stórt hlutverk með sigurliði Spán-
verja í Evrópukeppni U-21 árs landsliða í Danmörku.
Það er því ljóst að Fabregas mun ekki valsa inn í liðið
átakalaust. Xavi er orðinn 31 árs gamall og líklega
er Fabregas hugsaður sem arftaki hans til lengri
tíma litið. Ef jafnframt er litið til þess að liðið leikur
líklega um 60 leiki á tímabilinu ætti að vera hægt að
finna Fabrégas hlutverk.
Er ekki nóg fyrir af
skapandi miðjumönn-
um í liði Barcelona?
Farnir að eldast Iniesta er 27 ára en Xavi er orðinn 31
árs. Fabregas mun án efa falla vel að leikstíl liðsins.
Reuters
E
ftir langa og á köflum
leiðigjarna sögu lítur nú
allt út fyrir að Cesc
Fabregas snúi aftur til
æskuslóðanna í Barcelona og leiki
þar á næsta tímabili. Fabregas sem
nú er tuttugu fjögurra ára gamall
kom til Arsenal árið 2003 og hefur
á þeim tíma leikið ríflega 300
leiki. Hann var á sínum tíma
yngsti leikmaður Arsenal sem
leikið hafði fyrir aðalliðið og jafn-
framt sá yngsti til að skora fyrir
liðið. Ári síðar skrifaði Fabregas
undir atvinnumannasamning
einungis sextán ára gamall. Ar-
sene Wenger hefur krækt í marga
frábæra leikmenn á sínum ferli en
Fabregas sýndi fljótlega að hann
er einstakur leikmaður. Á tíma-
bilinu 2006-2011 hefur enginn
leikmaður skapað jafn mörg
marktækifæri fyrir samherja sína í
fimm bestu deildum Evrópu.
Fabregas hefur lagt upp 466 færi á
tímabilinu en næstur á lista er til-
vonandi samherji hans Xavi Hernandez með 455
upplögð færi. Þegar farið er yfir tölfræði leik-
mannsins sést af hverju Börsungar hafa gengið á
eftir leikmanninum í svo langan tíma en fyrsta til-
boðið var lagt fram fyrir ári síðan þó mun lengur
hafi verið rætt um að Fabregas sneri aftur til upp-
eldisfélagsins í Barcelona.
Höfuðlaus her
Margir Arsenal-aðdáendur hafa líklega verið orðn-
ir langþreyttir á vangaveltunum sem náðu há-
marki síðastliðið sumar þegar spánska landsliðið
var að fagna heimsmeistaratitli sínum inni í klefa
eftir að hafa borið sigurorð af Hollendingum í úr-
slitaleik keppninnar. Þar hafði Fabregas lagt upp
sigurmarkið fyrir annan væntanlegan samherja,
Andres Iniesta, en liðsfélagar hans klæddu hann í
Barcelonatreyju eftir leikinn við
hóflega hrifningu Arsenalmanna.
Hugsanlega eru einhverjir
aðdáendur Lundúnaliðsins fegnir
því að sagan sé á enda en ljóst er að
leikmaðurinn skilur eftir skarð
sem erfitt verður að fylla. Á vef
BBC hefur verið birt góð sam-
antekt á frammistöðu Arsenal-
liðsins sem gefur góða mynd af
mikilvægi Fabregas innan liðsins.
Frá því að miðjumaðurinn útsjón-
arsami vann sér fastan sess í liði
Arsenal hefur liðið bæði skorað
meira og unnið fleiri leiki þegar
hann hefur verið inni á vellinum.
Eitt og sér ætti það að gera mik-
ilvægi hans skýrt en þegar við
bætist að liðið hefur fengið á sig
fleiri mörk og safnað færri stigum í
fjarveru Fabregas er ljóst að Wen-
ger stendur frammi fyrir miklum
vanda.
Frá byrjun tímabils 2004 hefur
liðið skorað 2,04 mörk að með-
altali í leik með Fabregas í liðinu
en 1,52 án hans. Að sama skapi hefur liðið fengið
0,92 mörk á sig þegar hann hefur verið með en 1,07
án hans. Liðið hefur unnið 59% leikja með hann í
liðinu en einungis 44% í fjarveru hans.
Litið hefur verið til Samirs Nasri sem næsta leið-
toga liðsins en nú er útlit fyrir að hann færi sig yfir
til bláa helmings Manchesterborgar á næstunni.
Líkt og áður er talið að Wenger líti til franskra leik-
manna með það í huga að finna staðgengil. Þar
hafa Eden Hazard leikmaður Lille og Mathieu Val-
buena leikmaður Marseille verið nefndir. Arsenal
var þó löngum stundum án Fabrégas á síðasta
tímabili vegna meiðsla Spánverjans. Liðið hefur í
sínum röðum þá Jack Wilshire, Aron Ramsey,
Abou Diaby og meiðslapésann Rosický og er því
ekki algerlega á flæðiskeri statt hvað miðjumenn
varðar.
Útlit er fyrir að Cesc Fabregas hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal
en hann var ekki valinn í leikmannhóp liðsins gegn Newcastle.
Reuters
Undrabarnið snýr
aftur á heimaslóðir
Útlit fyrir að Fabregas fái loks
að leika með Barcelona
Vikuspegill
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Í Barcelona hittir Fabregas fyrir
átrúnaðargoð sitt úr æsku: þjálf-
arann sigursæla Pep Guardiola.
ENN MEIRI m.mbl.is
- V I L T U V I T A M E I R A ?
Fleiri efnisflokkar, vefsjónvarp mbl, Smartland
og margt fleira er meðal nýjunga sem þú
getur nálgast í símanum þínum.
Fáðu fréttirnar þegar þú vilt.
www.m.mbl.is
m.mbl.is var valinn farsímavefur ársins fyrir árið 2010.
NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ENN BETUR 2011.