SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 12
12 14. ágúst 2011 Mánudagur Fjölnir Þorgeirsson Í dag hefði Gunni bróðir orðið 52 ára! Munum að njóta lífs- ins á meðan við er- um lifandi því maður veit aldrei hvort þessi dagur er sá síðasti !!!!!!!! Eigið góðan dag. Þriðjudagur Sigurður Svavarsson trúir því ekki að ís- lensk stjórnvöld hyggist fagna heið- urssessi íslenskra bókmennta á Bóka- messunni í Frankfurt og útnefn- ingu Reykjavíkur sem Bókmennta- borgar UNESCO með því að hækka virðisaukaskatt á bók- um … Miðvikudagur Ragna Árnadóttir Hugsið ykkur það, að það þykir feimn- ismál að vera með geðsjúkdóm, til dæmis þunglyndi (sem þó margir þjást af á ein- hverju skeiði ævinnar) og það er árið 2011! Breytum þessu! Fésbók vikunnar flett Bryndís Sumarliðadóttir og Kristinn Ásmundsson K eppendur sem fóru til Aþenu á Special Olympics upplifðu ótrú- legt ævintýri, samtals 36 kepp- endur ásamt 15 þjálfurum og fararstjórum. Keppt var í átta greinum, boccia, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, keilu, knattspyrnu, lyftingum og sundi. Keppendur sýndu mikið æðruleysi og yf- irvegun í öllum þessum hita og breyttum aðstæðum. Ferðalagið var mjög langt, sam- tals 27 tímar. Þegar komið var til Grikklands tók við 9 tíma ferðalag í rútu til vinabæjar Íslands sem var Halkidiki (www.halki- diki.com) þar sem þau voru í fjóra daga í góðu yfirlæti. Síðan tók alvaran við og keppendur komu til Aþenu og skiptust á þrjá staði. Keppendur náðu mjög góðum árangri í öll- um keppnisgreinum, sem er afar eftirtekt- arvert. Við foreldrarnir sem stóðum á hlið- arlínunni og horfðum stolt á fólkið okkar keppa fyrir Íslands hönd upplifðum magnaðar stundir, sérstaklega yfirveg- unina og hversu róleg þau voru í þessum hita og á svo stórum leikvangi. Sannarlega má ekki gleyma því hversu ótrúlegt það er að fólk sé tilbúið að leggja á sig ómælda vinnu til þess að þetta geti gerst. Að taka þátt í jafn stórkostlegum leikum og Special Olympics, er lífsreynsla sem á eftir að nýtast alla ævi. Það var í raun ótrúlegt hve unga og óreynda íþróttafólkið í hópnum stóð sig vel og var jákvætt og duglegt í sinni fyrstu ferð til útlanda með ókunnu fólki. Er ástæða til að þakka þjálfurum og liðs- mönnum sem með yfirvegun og mikilli vinnu skiluðu keppendum heim lífs- reyndari og með sterkari sjálfsmynd. Þrátt fyrir að Grikkir væru að stríða við erfiða tíma tókst þeim að standa að fram- kvæmd þessa stærsta íþróttaviðburðar ársins með miklum sóma. Höfundar eru foreldrar Sigríðar Ernu, sem var ein keppendanna á mótinu. Stórkostlegt ævintýri í Aþenu Íslenski hópurinn sem fór á Special Olympics í Aþenu. VITA er lífið Alicante VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is Flugsæti, 17. og 24. ágúst Verð frá 29.900 kr. Innifalið: Flug til Alicante og flugvallarskattar. Vikulegt flug út október 2011.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.