SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 30
30 14. ágúst 2011
B
yggingar í ljósum logum, átök á
götum úti, innbrot, þjófnaðir
og skemmdarverk. Þannig var
ástandið á Englandi kvöld eftir
kvöld í liðinni viku. Rósturnar hófust í
London og breiddust síðan út til borga á
borð við Manchester og Birmingham.
Eftir vikuna lágu fimm í valnum. Nú er
ofbeldið að fjara út og umræðan um
ástæðurnar komin á fullt skrið. Má rekja
glundroðann til fátæktar og félagslegrar
misskiptingar eða var einfaldlega um
hreinræktaða glæpamennsku að ræða?
Sjúkt samfélag?
David Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur verið ómyrkur í máli um
óeirðirnar. „Í samfélagi okkar eru hlutar,
sem eru ekki bara brotnir, heldur, hrein-
skilnislega, sjúkir,“ sagði hann og neitaði
að fallast á að ofbeldið kæmi fátækt við
eða óeirðirnar væru sprottnar af pólitísk-
um mótmælum. Samkvæmt skoð-
anakönnunum taka 42% Breta undir það
að óeirðirnar megi rekja til glæpa-
mennsku.
Hegðun þátttakenda í óeirðunum hef-
ur verið fordæmd með mjög afgerandi
hætti og spurt hverjir hafi brugðist, for-
eldrar, kennarar eða fyrirmyndir á borð
við poppstjörnur og fótboltamenn.
Skrif Max Hastings, fyrrverandi rit-
stjóra The Daily Telegraph og Evening
Standard, eru sláandi. „Þeir eru af-
sprengi menningar, sem gefur þeim svo
mikið án nokkurra skilyrða að þau þurfa
ekki að læra að verða manneskjur,“
skrifaði Hastings í The Daily Mail.
„Hundarnir mínir hegða sér betur og
fylgja æðra gildismati en hinir ungu þátt-
takendur í óeirðunum í Tottenham,
Hackney, Clapham og Birmingham.“
Skortur á ábyrgðartilfinningu
Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórn-
arandstöðu, hefur að mestu forðast að
skella skuldinni á niðurskurð stjórnar
Íhaldsflokksins og frjálslyndra demó-
krata. Ed Miliband, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagðist vilja forðast ein-
feldningslegar lausnir. „Ég stóð mig að
því að hugsa með mér að þetta væri
glæpsamleg hegðun einstaklinga og ekki
væri til nokkur afsökun eða réttlæting
fyrir henni,“ sagði hann í samtali við
breska ríkisútvarpið, BBC, „en ég veit að
við verðum að fara dýpra en það. Er þetta
menning eða er þetta fátækt og skortur á
tækifærum? Sennilega hvort tveggja.“
Miliband tengdi gripdeildirnar banka-
kreppunni og símahlerunarhneyksli
götublaðsins News of The World, sem
hvort tveggja sýndi skort á ábyrgð-
artilfinningu og það hugarfar að hver sé
sjálfum sér næstur. Allir í samfélaginu
þyrftu að „horfa inn í sál sína“.
Líður ekki sem hluta af samfélaginu
Kjartan Páll Sveinsson, mannfræðingur
við bresku fjölmenningarstofnunina
Runnymede, sagði í samtali við Morg-
unblaðið á fimmtudag, að óeirðirnar
mætti rekja til jafns til stéttaskiptingar og
mismununar kynþátta. „Þetta kemur
mönnum ekki á óvart,“ sagði hann þegar
hann var spurður hvers vegna reiðin og
skemmdarfýsnin virðist koma mönnum í
opna skjöldu. „Einn æðsti yfirmaður lög-
reglunnar gaf Theresu May [ráðherra
jafnréttis- og innanríkismála] viðvörun í
fyrrahaust um að þetta væri yfirvofandi.“
Kjartan Páll segir að menn verði að
velta fyrir sér hvers vegna ungmennum
sé nákvæmlega sama þótt myndir náist af
þeim rænandi og ruplandi og bætir við að
ungmennum, sem hann talaði við í Birm-
ingham, líði eins og ekki sé hlustað á þau
og þau séu ekki hluti af samfélaginu.
Þegar Miliband fór í hverfið Brixton í
London á föstudagsmorgun mætti hon-
um Lionel Owusu, stuðningsmaður sam-
taka, sem nefnast Friður á götunum: „Við
fordæmum alfarið ofbeldið, en þið verðið
að líta á ástæðurnar – ástæður eru ekki
afsakanir. Fólk á ekkert og vill frekar
vera á toppnum í glæpaheiminum en á
botninum í samfélaginu. Það þarf að taka
á menntun þess og væntingum.“
Ekki pólitísk yfirlýsing
Tony Travers, fræðimaður við London
School of Economics, segir ekki koma á
óvart að stjórnmálamenn eigi í vandræð-
um með að færa viðbrögð sín við óeirð-
unum í orð: „Atburðirnir snerust um að
fólk braut hluti og eyðilagði og stal
„Hundarnir
mínir hegða
sér betur“
Úr hvaða jarðvegi spruttu óeirðirnar í Englandi í
liðinni viku? David Cameron sagði að hlutar
bresks samfélags væru sjúkir og Ed Miliband að
Bretar þyrftu að horfa inn í sál sína. Gamal-
reyndur ritstjóri sagði að hundarnir sínir hefðu
sterkari siðferðiskennd en þeir, sem þátt tóku í
óeirðunum.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Mikill eldur kviknaði í vöruhúsi fyrirtækisins
Sony í Enfield í norðurhluta London í óeirð-
unum í vikunni. Engan sakaði en skemmdir
voru þó nokkrar.
Lögreglan í Birmingham hefur sett upp skjái þar sem fólk, sem grunað er um rán og grip-
deildir, sést athafna sig. Skjáirnir eru á fjölförnum stöðum og hefur lögregla fengið þó nokk-
uð af ábendingum frá almenningi.