SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 31
14. ágúst 2011 31 neysluvörum, sérstaklega íþróttaskóm og flatskjám, úr verslunum,“ sagði hann við fréttastofuna AFP. „Það er ekki póli- tísk yfirlýsing, jafnvel þótt stjórn- málamenn þurfi að átta sig á hvers vegna þetta gerðist og bregðast við. En þetta voru ekki með neinu móti pólitísk upp- þot eða mótmæli.“ Gus John, prófessor við London- háskóla, sem hefur sérhæft sig í mál- efnum svartra, segir að sú aðferð lögreglu að stöðva blökkumenn og leita á þeim hafi alið á óvild í garð lögreglunnar, sér- staklega hjá ungum blökkumönnum. „Mjög margt af þessu unga fólki, sem sést í myndefni [frá óeirðunum] hefur reglu- lega sætt leit af hálfu lögreglu og sumt af því er í miklu uppnámi þess vegna. Að miklu leyti er held ég um að ræða losun á niðurbældri reiði gegn lögreglu, en einn- ig algera örvæntingu fólks vegna að- stæðna þar sem því finnst það enga fram- tíð eiga.“ David Lammy, þingmaður frá Totten- ham og sonur innflytjenda frá Karíbahaf- inu, segir hins vegar að skilin séu ekki á milli svartra og hvítra: „Þau eru á milli þeirra sem eiga hlutdeild í samfélaginu og þeirra sem eiga hana ekki.“ Óeirðirnar hófust í Tottenham, bæj- arhluta í London, þegar fólk safnaðist saman til að mótmæla vinnubrögðum lögreglu þegar Mark Duggan, 29 ára gam- all fjögurra barna faðir, var skotinn. Lög- reglan kvaðst hafa brugðist við þegar á hana var skotið, en hefur nú viðurkennt að það sé ekki rétt. Breska lögreglan naut eitt sinn trausts, en allt frá því að hún drap svartan táning árið 1993 hefur verið að molna úr mynd- inni af breska lögregluþjóninum, sem er aðeins vopnaður kylfu og er í tengslum við hverfið sitt. Sótt í smiðju Bandaríkjamanna Lögreglan hefur sætt harðri gagnrýni vegna viðbragðanna við óeirðunum og hefur viðurkennt að hafa verið of hikandi í fyrstu. Cameron hefur boðað til víðtækra aðgerða og horfir í þeim efnum til Banda- ríkjanna. Hann ætlar að leita í smiðju Bill Bratton, sem var lögreglustjóri bæði í New York og Los Angeles og gat sér orð fyrir að draga þar úr glæpum. Árið 1992 brutust út óeirðir í Los Angel- es í kjölfar þess að lögreglumenn, sem höfðu náðst á myndband þar sem þeir misþyrmdu blökkumanninum Rodney King, voru sýknaðir. Í sex daga geisuðu eldar og ofbeldi. Líkt og í London hélt lög- reglan sig til baka í upphafi og síðan þurfti að kalla til aukinn mannafla þegar allt fór úr böndunum. Það kom í hlut Brattons að taka á málum eftir ósköpin. Cameron hefur meðal annars sagt að at- huga eigi hvort rétt sé að koma í veg fyrir samskipti fólks á félagslegum vefjum þeg- ar „við vitum að það er að leggja á ráðin um ofbeldi, glundroða og glæpi“, athuga hvort útvíkka beri vald til að setja út- göngubann og dreifa mannfjölda, gefa lögreglu rétt til að taka húfur og grímur af fólki sem hylur andlit sitt og veita dóm- stólum svigrúm til þyngri refsinga. Fyrirætlanir Camerons eru ekki óum- deildar. Umræðan um það hvernig bregð- ast eigi við óeirðunum er rétt að hefjast og þar munu takast á þeir, sem vilja láta herða löggæslu, og þeir, sem vilja leggja áherslu á félagslega þáttinn. Reuters Ræningjar flýja fataverslun í Peckham í London á mánudag. Rán og gripdeildir breiddust út um England eftir því sem leið á vikuna. Óeirðalögregla hleypur framhjá brennandi byggingum í íbúðargötu í Croydon í suðurhluta London á mánudag. Kveikt var í byggingum og grjóti kastað í lögreglu. Mörg hundruð litlir miðar voru festir á spónaplötu verslunar, sem var rænd í Peckham í suð- urhluta London á miðvikudag. „Hættið að brenna borgina mína,“ stóð á einum þeirra. Maður hreinsar til í stórmarkaði í Ealing í vesturhluta London eftir óeirðirnar á mánudag. Ærið starf er að koma lífinu í samt lag eftir óeirðir og skemmdarverk vikunnar. Kona með barnavagn gengur fram hjá versl- un þar sem rúður hafa verið brotnar og neglt fyrir, en þar er „opið eins og venjulega“.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.