SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Qupperneq 39

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Qupperneq 39
14. ágúst 2011 39 Þ að var bylting að vera þurr í fæturnar,“ var haft eftir Guðrúnu Jónsdóttur hér í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag en rætt var við hana í tilefni 105 ára afmælis hennar. Guðrún var spurð að því hvaða breytingar í gegnum árin henni hafi fundist eftirminnilegastar. Koma raf- magnsins hafði mikil áhrif en koma gúmmístígvélanna á sínum tíma gjörbreytti lífi fólks. Ótrúlegar breytingar hafa orðið á lífs- háttum Íslendinga undanfarin 100 ár, sennilega meiri en 900 árin þar áður. Það hefur alla tíð verið erfitt að stunda landbúnað á Íslandi. Einkum var erfitt að afla heyja fyrir veturinn. Bændur urðu að slá engjar, oft fjarri byggð, og flytja töðuna heim á hestum. Reynt var eftir megni að rækta tún nálægt bæjunum en taðan af þeim dugði sjaldnast. Það var því ekki lítil bylting fyrir bændur landsins þegar fyrstu gröfurnar og önnur jarðvinnslutæki voru flutt til lands- ins skömmu eftir heimstyrjöldina fyrri. Veittir voru styrkir úr opinberum sjóðum til að grafa skurði og ræsa fram mýrar. Það má geta þess að framfærsla votlendis var styrkt af ríkinu til 1987. Á einum mannsaldri voru grafnir um það bil 32.000 km af skurðum til framræslu mýrar. Talið er að flatarmál þess vot- lendis sem hefur verið framræst sé yfir 4000 ferkílómetrar. 1996 var hafið átak til að endurheimta votlendið, moka ofan í skurðina, ekki var lengur þörf fyrir öll þessi tún, sauðfjárrækt hafði dregist verulega saman og margar jarðir farið í eyði. Framræsla mýranna hafði ýmis neikvæð áhrif á náttúruna. Búsvæði fugla eyðilögðust og ásýnd landsins breytist verulega. Núna er það skylda okkar að moka ofan í skurðina og endur- vinna votlendið. Á undanförnum árum hefur koldíoxíð í and- rúmslofti aukist til muna og meðal annars orsakað hlýnun jarð- ar. Með því að endurheimta um fimm ferkílómetra af votlendi má stöðva árlega losun á um það bil 2.500 tonnum af koldíox- íði. Þetta jafngildir útblæstri frá um 600 einkabílum. Á sínum tíma var nauðsynlegt að ræsa fram mýrarnar svo að byggð héldist í landinu og hægt væri að stunda hér landbúnað. Nú er hinsvegar jafn brýnt að moka ofan í skurðina og end- urvinna aftur sem mest af votlendinu. Til að styrkja byggð í landinu og auka gjaldeyristekjur var árið 1931 hafin minkarækt hér á landi. Minkarnir sluppu fljótlega úr búrum sínum og að- löguðust íslenskri náttúru. Fyrsta minkagrenið fannst 1937 og fljótlega kom í ljós að minkurinn var skelfilegur skaðvaldur í náttúrunni. Segja má að innflutningur minks hingað til lands hafi verið eitt mesta um- hverfisslys í sögu landsins. 1939 var farið að greiða fyrir eyð- ingu minks og 1975 var talið að minkurinn væri búin að nema land alstaðar á landinu. Framræsla votlendis á sínum tíma átti hvaða mestan þátt í að flórgoðinn nánast hvarf og með komu minksins má segja að honum hafi verið útrýmt. Fyrir utan flórgoðann hefur mink- urinn haft afgerandi áhrif á fækkun fugla eins og keldusvíns og teistu. Þá er hann vágestur við veiðiár, étur ógrynni af laxa- og silungsseiðum. Í dag er mikill meðbyr með skógrækt hér á landi. Stjórnvöld hafa á undanförnum árum látið talsvert fé renna til skógræktar, frá 1990 eru þetta líklegast hátt í 10 miljarðar. Skógrækt hér á Íslandi hefur ýmsa kosti, hún hefur veruleg jákvæð áhrif á líf- fræðilega fjölbreytni þar sem hún er notuð til landgræðslu á lítt grónu landi. Skógurinn býr til kærkomið skjól hér í nepjunni. Hinsvegar verður að hafa í huga að ekki er sjálfsagt að planta trjám alstaðar í íslenskri náttúru. Með síaukinni skógrækt hér á landi þrengir að búsvæðum mófugla. Mófuglar og raunar nokkrar aðrar tegundir fugla þrífast ekki í skóglendi. Tómas Gunnarsson fuglafræðingur bendir réttilega á í viðtali hér í Morgunblaðinu að „töluvert hefur verið plantað af trjám í út- haga sem eru mikilvæg búsvæði fuglanna. Íslenski úthaginn er mófuglaland á heimsmælikvarða, en sé þar ræktaður skógur eyðileggjast búsvæðin. Á Íslandi eru tiltölulega fáar tegundir fugla. Ísland er hinsvegar gríðarlega mikilvægur varpstaður fyrir margar þær tegundir sem hér eru, til dæmis vaðfugla. Um 40% af heimsstofni spóa verpir hér á landi og um 50% lóu og sendlings.“ Framræsla votlendis á sínum tíma var gerð af illri nauðsyn á erfiðum tímum, á tímum þegar mat manna á fegurð og verð- mæti náttúrunnar var annað en það er í dag. Þegar minkurinn var fluttur hingað til lands þá vissu menn hreinlega ekki betur, gerðu sér ekki grein fyrir hverskonar skaðvaldur hann var. Nú vita menn betur og þess vegna á það ekki að líðast að eins og Tómas Gunnarsson segir að „skógrækt er drifin af staðbundn- um hagsmunum en fórnarkostnaður á landsmælikvarða [er] ekki metinn, heldur aðeins mögulegur ávinningur.“ Þetta eru orð í tíma töluð. Eftir bestu vitund Náttúruvernd Sigmar B. Hauksson manns Magnússonar. Dropinn holaði steininn. Norska álfyrirtækið dró í land og bar við að vilja ekki verða leiksoppur deilna. Var borið við að hyggilegra og hagkvæmara væri að reisa stærra álver á Reyðarfirði en það sem á teikniborðinu var. Endirinn þá varð virkjun Jöklu við Kárahnjúka og þá var bandaríska fyrirtækið Alcoa komið í spilið. Deilan um Þjórsárver árið 2002 var af svipuðum toga. Þar var tekist á um hvort fórna mætti fenjasvæðinu inn við Hofsjökul, þar sem Þjórsá á upptök sín, undir vatnsmiðlun svokallaðrar Norðlingaöldu- veitu. Af mörgum var sú fyrirætlun talin fráleit, enda náttúrufar á svæðinu fágætt. En hvað olli þeirri sterku viðhorfsbreytingu sem varð um aldamótin þannig að umhverfismál urðu stórmál í þjóðfélags- umræðunni – eins og best sást í Eyjabakka- og Þjórsárveramálum? „Ég hef frekar kallað þetta bakslag heldur en viðhorfsbreytingu,“ segir Andri Snær Magnason rihöfundur. Hann lét mjög að sér kveða í umræðum um orkumál, meðal annars með bókinni Draumalandið. „Á árunum 1989–1997 var lítil sem engin eftirspurn eftir íslenskri orku og á þeim tíma kynntust margir hálendinu í friði og sátt. Ísland var farið að monta sig af því að hafa misst af iðnbyltingunni þegar orkugeirinn kom með stórfengleg áform um nýtingu á mörgum helstu náttúruperlum landsins. Mörgum fannst við stefna að því að gera sömu mistök og margar þjóðir heims og það var í rauninni áfall að sjá hvað margir voru viljugir til að fórna miklu af fegurstu svæðum landsins. Náttúrufegurðin sameinaði marga en varð líka að eldfimu pólitísku hitamáli þegar ljósmyndarar voru jafnvel sakaðir um að falsa fegurð hálendisins sem væri eintóm auðn og grjót.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Náttúrufeg- urðin samein- aði marga en varð líka að eldfimu pólitísku hitamáli Andri Snær Magnason John F. Kennedy yngri fórst í flugslysi í einkaflugvél sinni ásamt eiginkonu sinni Carolyn Bessette. Sumir tala um Ken- nedy bölvunina en hér er John heitinn ásamt systur sinni. Reuters John F. Kennedy yngri heilsar að hermannasið yngri við hlið móður sinnar í útför föðursins.. Jackie er tískutákn enn þann dag í dag og tiplar hér í snjónum í glæsilegum kjól úr smiðju Cassini, í ársbyrjun 1961. AP Oleg Cassini var tískuhönnuður Jackie og um tíma trúlofaður Grace Kelly.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.