SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Side 41

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Side 41
14. ágúst 2011 41 LÁRÉTT 1. Sjá Hall fá gramm í MS fyrir að kyrkja að sögn í stórri byggingu. (15) 7. Kýti einfaldlega aftur við pól í stjórn- málum. (7) 8. Ókosturinn við gráðu er að henni fylgir stafurinn. (9) 10. Klára drykk fyrir bardagaíþrótt. (6) 11. Óvirða kaupmann út af verslun. (7) 12. Lést haf út af úrskurðum? (5) 13. Náði í ánauðarmann út af hræðslu (9) 14. Þvo blett í auga með bólstri. (8) 16. Poki sem flýtur ekki. (6) 18. Skriðdýr jötna. (8) 21. Já, hyggur á að flækja sig í vandamálum (8) 24. Vandlærða má flækja í erfiðleikum. (11) 25. Segir frá þrautgóðum (6) 26. Kennari getur sýnt okkur festarnar. (7) 27. Kyssileg Ína er berlega fær um að gerast gæðablóð. (11) 28. Óskynsamleg ráðabreytni rændi með rugli. (8) 29. Iðkar eyðu í stuttan tíma. (10) LÓÐRÉTT 1. Skaðaði veröld út af vitlausum. (8) 2. Flakkari nær að mála. (5) 3. Erlendur lemur alltaf við urg. (10) 4. Skælandi fær svölun. (7) 5. Imba öll þvælist fyrir skepnum. (7) 6. Spakur fær síst rugl frá fötluðum. (10) 9. Nýtir roð ennþá til að búa til þjappaða. (9) 13. Þý skal og erlent landsvæði finna. (9) 15. Fullyrtir að þú hittir pláss. (10) 17. Hestur með hestinum í hafinu. (7) 19. Skrúbbum skála úr sandi. (10) 20. Mont ljósálfs og Hannesar er bara rugl. (9) 22. Ys alheims breytist í stjórnleysi. (9) 23. Borgunin í hárinu. (9) 24. Hví takast í refsingu við broti? (8) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morg- unblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 14. ágúst er fyrir hádegi 19. ágúst. Nafn vinn- ingshafans birtist í blaðinu 21. ágúst. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi 7. ágúst er Borghildur Sigurbergs- dóttir, Blómvöllum 23, 221 Hafnarfirði. Hlýtur hún að launum bókina Ævintýri góða dátans Svejks eftir Jaroslav Hasek. Mál og menning gefur út. Krossgátuverðlaun Bandaríski stórmeistarinn Ro- bert Byrne notaði þennan titil fyrir greinar sem hann skrifaði í tímaritið Chess life. Það mátti skilja hann þannig að hér hefði verið átt við reit eða leik sem fellur utan sjónsviðs áhorfand- ans. Þegar leikurinn birtist á sýningarborðinu kom hann kannski öllum viðstöddum á óvart og sumir bölvuðu í hljóði yfir því að hafa ekki látið sér detta þetta í hug. „Á hvað bát eru þið?“ Við Hannes Hlífar vorum á fjöltefla- og fyrirlestraleiðangri um land- ið og gátum ekki svarað þessari eilífðarspurningu sjómannsins í Neskaupstað en kváðumst hafa valið landleiðina að þessu sinni þó það lægi kannski ekki í aug- um uppi. Skákirnar sem Byrne tók fyrir innhéldu yfirleitt a.m.k. einn vel falinn leik; þegar venjuleg leiðsögn dugar ekki, þekkt mynstur, kennileiti eða almenn speki talar ekki lengur til manns, þá er tími til kominn að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. Ég var að fylgjast með hinum 17 ára gamla Garrí Kasp- arov á heimsmeistaramóti ung- linga í Dortmund í V-Þýskalandi sumarið 1980 og þessi staða var uppi: Kasparov – Akesson Leikurinn 27. e5 lá í augum uppi, áhrif biskupanna aukast þá til muna. Kasparov sat hinsvegar sem fastast og var dálítið óróleg- ur í sætinu eins og hann væri að reyna að rekja slóðina til enda. Eftir hálftíma umhugsun skellti hann biskupnum á „65-reitinn“: 27. Bxf6! Hxf6 28. e5 Síðar var upplýst að Kasparov hefði notast við „öryggisnet“ við útreikninga sína. Hann komst að þeirri niðurstöðu að með bestu taflmennsku væri niðurstaðan jafntefli en fórnin væri samt áhættunnar virði. Akesson var sleginn út af laginu og fann ekki bestu vörnina. 28. … Hh6? Betra var 28. … Hf7 29. f6 Hcf8! og svartur á að gera varist. 29. …Dd8 30. e7 Hxe7 31. fxe7 dxe7 32. Hbc1Dd8 33. Df5! Db8 Kasparov hugðist svara 33. … Kh8 með 34. Hc7! t.d. Dxc7 35. Df8+ og mátar. 34. Df7+ Kh8 35. Hc7 - og svartur gafst upp. Einhver magnaðasta „aflepp- unarflétta“ sem um getur kom fyrir í eftirfarandi skák. Það má lengi velta fyrir sér hvað leiðsögn „Dzindzi“ – betur þekktur á ICC undir nafninu Roman – hafði í þessum tafllok- um; riddarinn á a7 er ekki með, staða manna hvíts verður ekki með góðu móti bætt, strategískt er svarta staðan mun betri. Tiblisi 1973: Dzindzihasvili – Tseshkovskí 31. Hxg7! Rxg7 Hér var best að stinga hausn- um i gin ljónsins og leika 31. .. Kxg7 t.d. 32. Rd7+ Rd4 33. Bxd4 cxd4 34. De5+ með jafn- tefli. 32. Kg1! Hd4 Ekki 32. … Rxe6 33. Rf7+ og 34. Rh6 mát. 33. Bxd4 cxd4 34. Dh6! Kg8 Eftir 34. … Hc8 35. f5! er hvíta sóknin stórhættuleg. 35. Hh3 Rf5 36. De6+ Kg7 37. Rd7! Magnaður leikur. Svartur er varnarlaus. 37. … Dc8 38. Rxf8 Dc1+ 39. Kf2 Dd2+ 40. Kg1 Dd1 41. Kf2! – Besti reiturinn. Skákin fór í bið og svartur gafst upp því eft- ir 41. … Dd2+ 42. Kf3 Dxd3+ 43. Kg4! Re3+ 44. Kg5 er eftirleik- urinn auðveldur. Helgi Ólafsson helol@simnet.is 65-reiturinn Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.