Morgunblaðið - 07.04.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Til sölu Dverg Schnauzer hvolpar
Yndislegir hvolpar, tilbúnir til afhend-
ingar. HRFÍ ættb. + hvolpapakki að
verðmæti 60.000 kr. fylgir með.
2 rakkar, 1 tík. Uppl. s. 898 8567 eða
bjarndis@simnet.is
Pomeranian tík til sölu!
Tilb. til afhendingar með ættbók frá
REX. VISA raðgr.í boði. Uppl.
http://www.skeljapommar.com/ og
892 7966.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is
Leó, s. 897- 5300.
Húsnæði óskast
Reglusöm og skilvís fjölskylda
að vestan óskar eftir 3-4 herbergja
íbúð með bílskúr eða bílageymslu á
höfuðborgarsvæðinu frá og með
1. júní. Upplýsingar í síma 661 2865
eða á netfangið vidarorn@internet.is
Sumarhús
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Verslun
YRSA armbandsúr, tilvalin
fermingargjöf - Japönsk sjálfvinda
og vönduð leðuról. Frábært verð
29.500,- Eigum einnig úrval vasaúra,
skarts og silfurbréfahnífa. ERNA,
Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Bókhald
Bókhald, ráðgjöf, skattaskil
Bókhald, launavinnslur, VSK uppgjör,
innheimta og greiðsla reikninga.
Getum bætt við okkur verkefnum.
Fagleg og vönduð vinnubrögð.
TEMP ehf., Bæjarlind 14-16, S. 555
3311, www.temp.is - temp@temp.is
Skattframtöl
Skattar 2010
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga,
rekstraraðila og félög. Sæki um frest.
HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977.
framtal@visir.is
FRAMTAL 2010
Skattframtöl, uppgjör og ársreikn-
ingar fyrir einstaklinga og rekstrar-
aðila. Fagleg og vönduð vinnubrögð.
TEMP ehf., Bæjarlind 14-16, S. 555
3311, www.temp.is, temp@temp.is
FRAMTAL 2010
Framtalsaðstoð fyrir einstaklinga og
rekstraraðila. Vönduð og góð vinna.
Sæki um viðbótarfrest fram í maí.
Ódýr þjónusta. Opið einnig um helgar.
Framtalsþjónustan,
Ármúla 19. S. 533 1533.
Ýmislegt
Teg. Romance - "push up" fínlegur
og flottur í BCD skálum á kr. 6.885,-
Teg.Romance - "push up" mjög
glæsilegur í D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 6.885,-
Laugavegi 178, sími 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Létt og þægileg dömustígvél úr leðri.
TILBOÐ: 5.000.
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Heitir pottar
Sími 565 8899
GSM 863 9742
www.normx.is
normx@normx.is
Fóðraðir, dömukuldaskór úr leðri.
Stærðir: 36 - 42. Litir: svart og brúnt.
Verð: 18.750.
Vönduð, gæruskinnfóðruð
dömustígvél úr leðri.
Stærðir: 36 - 42. Litir: svart og brúnt.
Verð: 28.850.
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bátar
Útvega koparskrúfur á allar
gerðir öxla
Beint frá framleiðanda. Upplýsingar á
www.somiboats.is eða oskar@somi-
boats.is Óskar 0046704051340
Bílar
Range Rover Supercharged,
2006. Ekinn 80 þús. km. Með öllum
fáanlegum búnaði. Þessi bill er á ¼ af
því verði sem nýr kostar. Tækifæri til
að gera kaup ársins. Verð aðeins
8.790 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Ökukennsla
krökkunum og heimilinu og alltaf
leystir þú úr öllum þeim vanda-
málum sem ég kom með til þín, sama
hvort mig vantaði kennslu í handa-
vinnu, bakstri eða öðru. Þolinmæði
þín var einstök, eins og þegar ég
keypti pínulítið hljóðfæri í Englandi
og hamaðist á því öllum stundum
heima við eldhúsborðið, þér datt
ekki í hug í eitt skipti að biðja mig að
fara inn í herbergi, nei, alltaf hjálp-
aðir þú mér að finna rétta tóninn. Og
þær voru margar stundirnar sem við
eyddum í eldhúsinu við að hlusta
saman á útvarpið. Þú kenndir mér
svo ótalmargt um tónlist og skipti þá
engu hvort það var klassísk tónlist,
sinfóníutónlist eða dægurlög, þú
varst vel að þér í öllu.
Eftir að ég eltist og ef ég bjó ekki
hjá ykkur pabba, var ég dugleg að
koma í heimsókn og við gerðum ým-
islegt saman, vorum til dæmis dug-
legar að baka og núna eru það upp-
skriftabækurnar, sú bláa og sú
brúna, sem ylja mér um hjartaræt-
ur.
Ferðalögin sem við fórum í saman
voru líka alltaf frábær og Edinborg-
arferðin er þar efst í huga mér, þeg-
ar pabbi og Hlynur fengu Edinborg-
arverkinn fræga og flugferðin heim
varð að rússíbanaferð.
Elsku mamma, ég vildi að ég hefði
haft meiri tíma með þér en sá tími
sem við áttum var yndislegur og
minningarnar óteljandi og því kveð
þig með miklum söknuði og mikilli
ást. Því miður eru litlu tvíburarnir
mínir of ungir til að muna eftir þér
en minningunni verður haldið á lofti
og þeir munu því oft heyra um þig og
vitna í þig.
Þín,
Sigríður (Sigga.)
Elsku amma. Mikil sorg ríkir í
hjörtum okkar, en friðsæld ríkti yfir
þér þar sem við kvöddum þig. Við
vitum að þú ert á betri stað. Þó við
sjáum þig ekki vitum við að þú verð-
ur hjá alltaf okkur. Nú ertu farin í
nýtt ferðalag með afa. Þið voruð svo
dugleg að ferðast og komist nú sam-
an á ykkar draumaáfangastað með
Gretti í afturglugganum á bílnum
ykkar.
Þú hugsaðir alltaf vel um aðra.
Svo lengi sem við munum eftir okk-
ur varstu virk í Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs. Einnig ef veislur voru í
gangi, þá voru allir aðrir númer eitt í
þínum huga. Engan mátti vanta
neitt. Það var alltaf líf og fjör á
Kópavogsbrautinni og þegar við
komum þangað var allt annað en að
vera heima hjá sér. Maturinn var
betri þó hann væri eins, bara því
þetta var ömmu-matur. Helst mun-
um við eftir ömmu-rabarbarasultu
og ömmu-kæfu, sem var heimatilbú-
in. Það sem var yndislegt við að
koma í heimsókn var að skoða gömul
myndaalbúm eða fá að horfa á vídeó.
Þú varst svo skipulögð. Öll albúm í
hillu og allar vídeómyndir skrifaðar
niður í bók og númeraðar. Það var
gaman að skoða stóra og fallega
safnið þitt af teskeiðum frá ýmsum
löndum, margar sem við höfðum
keypt fyrir þig á ferðalögum um
heiminn.
Þú kunnir ýmsar sögur af fólki og
sagðir frá öllu eins og það hefði
gerst í gær. Það sem var fyndnast
við þær sögur var, þegar við þekkt-
um fólkið ekki neitt en þú lést eins
og við vissum nákvæmlega um
hvern þú varst að tala. Nú verða
sögurnar sem sagðar verða ekki um
Jón Jónsson heldur um þig og afa.
Amma, þú varst gæfukona, eins
og ein komst svo vel að orði um
daginn. Alltaf varstu til staðar fyr-
ir okkur og studdir okkur í því
hver við erum og hvað við gerum í
lífi okkar. Aldrei var að finna for-
dóma frá þér, við erum ævinlega
þakklát fyrir stuðning þinn. Við
óskum þér góðrar ferðar hvar sem
þú hefur komið þér fyrir.Við elsk-
um þig. Þín barnabörn
Kolbrún Nadira, Friðrik og
Valdimar Árnabörn.
Birna Árnadóttir var heiður-
skona. Hún var einn af máttar-
stólpum Framsóknarflokksins í
flokksstarfi um langt skeið. Hún
var m.a. virk í Reykjaneskjör-
dæmi, síðar Suðvesturkjördæmi, í
Freyju, félagi framsóknarkvenna í
Kópavogi, og í sveitastjórnarmál-
um í Kópavogi. Birna var ein af
stofnfélögum Freyju, félags fram-
sóknarkvenna í Kópavogi. Hún var
góð og gegn Freyjukona, en þær
konur hafa yfir sér sérstakan blæ
og kraft. Freyjukonur hafa ávallt
látið jafnréttismálin mjög til sín
taka og aðstæður kvenna og barna
á Íslandi almennt. Birna var þar í
fararbroddi og beitti sér fyrir því
að fleiri konur væru virkar í stjórn-
málum, bæði á sveitarstjórnar- og
landsvísu. Það var gott að eiga
stuðning hennar. Birna lét sér líka
annt um þá sem stóðu höllum fæti.
Hún var virk í Kvenfélagasam-
bandi Kópavogs og mæðrastyrks-
nefnd Kópavogs um langt skeið.
Man ég eftir opnu húsi hjá mæðra-
styrknefndinni þar sem Birna
sýndi okkur aðstöðuna, fötin og
varninginn. Þar var hún í essinu
sínu og öllum hnútum kunnug. Hún
lét gott af sér leiða. Birna var einnig
virk í orlofsnefnd Kvenfélagasam-
bands Kópavogs og var þar formað-
ur í mörg ár, þar til hún féll frá.
Birna var skelegg og ákveðin í
málflutningi og átti létt með að
koma orðum sínum til skila í pont-
unni á fundum hvort sem var á
Freyjufundum, kjördæmisþingum,
fundum í Landssambandi fram-
sóknarkvenna eða við önnur tæki-
færi í flokksstarfinu. Hún var rök-
föst málafylgjumanneskja og ávallt
með hjartað á réttum stað. Ræður
hennar voru góðar og oft lúmskt
fyndnar því Birna bjó yfir þeim eig-
inleika að vera gædd hárfínum
húmor sem komst oft vel til skila.
Birna vann mikið og óeigingjarnt
starf fyrir Framsóknarflokkinn og
fyrir það vil ég sérstaklega þakka.
Við framsóknarmenn munum sakna
Birnu úr flokksstarfinu og minnast
hennar með sérstakri hlýju og virð-
ingu.
Fjölskyldu Birnu, vinum og ætt-
ingjum öllum votta ég innilega sam-
úð mína vegna fráfalls Birnu. Megi
Guð blessa minningu hennar.
Siv Friðleifsdóttir
alþingismaður.
Fleiri minningargreinar um Birnu
Árnadóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
auðsýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts
móður okkar,
ÞÓRU FRÍMANNSDÓTTUR
úr Grímsey,
lengst af búandi á Siglufirði.
Sérstakar kveðjur eru til lækna, hjúkrunarfólks og
annars starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Fjalla-
byggðar á Siglufirði fyrir einstaka umönnun hennar og þægilegt viðmót
í alla staði.
Guð blessi ykkur.
Frímann Ingimundarson,
Ríkey Ingimundardóttir,
Þorsteinn Ingimundarson,
Gylfi Ægisson,
Lýður Ægisson,
Jón Ægisson,
Sigurður Ægisson,
Matthías Ægisson.