Morgunblaðið - 07.04.2010, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
MAKRÍLLINN er
flökkustofn sem hefur á
síðustu árum komið
tímabundið í miklu
magni inn í íslenska
lögusögu. Svo ótrúlegt
sem það kann að sýnast
hafa ýmsir velt því fyrir
sér, hvort hægt sé að
stýra veiðum á makríl
utan gildandi laga en
því fer víðs fjarri.
Gildandi lög kveða á
um stjórn veiða úr deilistofnum sem
ekki eru settir í kvóta. Annars vegar
er um að ræða ólympískar veiðar, en
þá veiða skipin hvert í kapp við annað
uns ákveðnu heildarmagni er náð.
Hins vegar er um að ræða tíma-
bundna veiðistjórnun.
Veiðistjórn á makríl
og nýbreytni
Eftir umfjöllun, sem byggðist m.a.
á skýrslu sem gerð var um nýtingu
makríls af Íslandsmiðum og málstofu
sem haldin var nýlega, var það mat
ráðuneytisins að taka bæri upp tíma-
bundna veiðistjórnun á makríl í stað
ólympískra veiða undanfarinna ára.
Þá er lagt til það nýmæli að hluti afla-
heimilda er tekinn frá fyrir önnur
skip og fjölbreyttari veiðifæri.
Ólympískar veiðar hafa verið gagn-
rýndar þó þær geti verið réttlæt-
anlegar til að afla þjóð veiðireynslu
og samningsstöðu um flökkustofn
gagnvart öðrum þjóðum. Þær eru
ekki taldar ábyrgar til lengri tíma
vegna innbyggðrar óhagkvæmni
sinnar og eru yfirleitt illa séðar af
samningsaðilum. Strandríkin svoköll-
uðu, ESB, Noregur og Færeyjar hafa
nú boðið okkur aðild að viðræðum um
skipan makrílveiðanna og verður
fundur um málið hér í Reykjavík í lok
apríl. Víst er að talsvert ber á milli
um hlutdeild Íslands. Eitt er þó
öruggt að með góðri veiðistjórn
styrkjum við samningsstöðu Íslands.
Að mörgu að hyggja
1. Makríllinn er flökkustofn sem
komið hefur inn í íslenska lögsögu
einkum á síðustu 2-3 árum og
dvalið hér miðsumars, aðallega
austanlands. Vinnsluhæfni mak-
rílsins til manneldis er síðan tak-
mörkunum háð fyrrihluta sumars
vegna þess hve bráðfeitur hann er.
2. Veruleg óvissa fylgir
þessum veiðum.
Enginn getur fullyrt
hvort eða hvenær
makríllinn komi í
lögsöguna. Sama á
við um dreifingu
hans kringum landið
og hversu lengi hann
dvelur hér.
3. Veiðarnar eru enn á
þróunarstigi. Út-
gerðir hafa undaf-
arin tvö ár aflað
kostnaðarsamrar
reynslu í veiði- og vinnslutækni.
Árið 2008 var undir 5% makrílsins
unnið til manneldis en á síðasta ári
20%. Vonir standa til a.m.k. tvö-
földunar vinnslunnar á þessu ári.
Með nýsettum lögum hefur ráð-
herra heimild til að kveða á um
aukna manneldisvinnslu.
4. Veiðireynsla annarra en stóru
uppsjávarveiðiskipanna er lítil
sem engin. Til þess að þróa fjöl-
breyttar veiðar á makríl líkt og er í
Noregi, verður að skapa rými fyrir
veiðar annarra sem stundað geta
þessar veiðar á minni skala út frá
ströndinni.
5. Veiðarnar gætu hafist innan
tveggja mánaða. Tíminn er naum-
ur og óvissan veruleg.
6. Mikilvægt er samningsstöðu okk-
ar vegna að það takist að veiða til-
tekið magn á næstu vertíð.
Stærstur hluti af þessu magni
verður ekki veiddur af öðrum en
hinum afkastamikla uppsjáv-
arveiðiflota okkar. Veiði okkar sl.
tvö ár hefur verið 112 þús. tonn
2008, 116 þús. tonn 2009 og fyrir
árið í ár höfum við einhliða ætlað
okkur 130 þús. tonn.
Tímabundin veiðileyfi
og framsal óheimilt
Ákvörðun ráðuneytisins um fyrir-
komulag makrílveiða á þessu ári felur
í sér þrjú meginatriði:
a. Engin varanleg úthlutun afla-
hlutdeildar. Veitt eru veiðileyfi
sem hægt er að fella úr gildi með
skömmum fyrirvara.
b. Framsal milli útgerða er óheimilt.
Engin fénýting aflaheimilda án
veiða getur átt sér stað.
c. Tekin eru frá 3.000 tonn fyrir veiði
á króka, net og í gildrur og 15.000
tonn til veiða annarra skipa sem
hugsanlega geta veitt makríl.
Hér skal nefnt að nú þegar er lagt
á 9,5% veiðigjald sem miðast við
framlegð, sbr. V. kafla laga um stjórn
fiskveiða. Þetta gjald er lagt á makríl-
veiðarnar líkt og aðrar fiskveiðar.
Áætlað er að það skili um 1.250 m.kr.
í ár.
Vinnuhópur mun
skila valkostum
Ég skipaði sl. sumar vinnuhóp um
endurskoðun fiskveiðistefnunnar.
Hann hefur það hlutverk að setja
fram valkosti um framtíðarfyrir-
komulag fiskveiðistjórnunarinnar á
Íslandi. Einn af þeim valkostum sem
hópurinn fjallar um er að taka upp
samræmt viðbótarveiðigjald á allar
aflahlutdeildir. Meðan vinnuhópurinn
er að störfum, í umboði beggja
stjórnarflokka og með víðtækri að-
komu ólíkra aðila, verður vart ráðist í
viðamiklar breytingar á fisk-
veiðistjórnunarkerfinu. Þegar vinnu-
hópurinn var settur á laggirnar síð-
asta sumar tiltók ég þó strax að
tímabundið yrði gripið til annarra að-
ferða við veiðistjórn á skötusel. Fyrir
þessari ákvörðun voru efnisleg rök og
hún var þá gerð öllum kunnug.
Fara verður að gildandi lögum
Hinar róttæku breytingar um
skötusel og strandveiðar eru óræk
sönnun þess að ég mun beita mér fyr-
ir breytingum á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu í samræmi við stefnu rík-
isstjórnarinnar og míns flokks. En
hversu brátt sem fólki kann að vera í
þessum efnum, verður á hverjum
tíma að fara að gildandi lögum. Al-
þingi fer með löggjafarvaldið í land-
inu og getur sett ný lög frá grunni um
stjórn fiskveiða. Slíkt hefur ekki enn
verið gert en að þeim málum er unnið
í samræmi við þegar ákveðið vinnu-
lag.
Eftir Jón Bjarnason » Svo ótrúlegt sem það
kann að sýnast hafa
ýmsir velt því fyrir sér,
hvort hægt sé að stýra
veiðum á makríl utan
gildandi laga en því fer
víðs fjarri.
Jón Bjarnason
Höfundur er sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra.
Aukin verðmæti og fjöl-
breyttari veiðar á makríl
NÚ ERU vatnaskil
hjá Sjálfstæð-
isflokknum á lands-
vísu. Meginþorri kjós-
enda þessa stærsta
stjórnmálaflokks á Ís-
landi er andvígur inn-
göngu Íslands í Evr-
ópusambandið (ESB
), en forysta flokksins
og fólk í lykilstöðum
endurspeglar ekki
skýrt þá sannfæringu
kjósenda sinna. Varaformaðurinn
er yfirlýstur ESB-aðildarsinni og
því miður hyggst formaðurinn að-
spurður ekki draga aðildarumsókn
Íslands að ESB strax til baka,
komist flokkurinn til valda. Þessi
afstaða er einn helsti dragbítur
framfara síðustu árin, þar sem
undanlátssemin við ESB kemur ís-
lensku þjóðinni í æ dýpri vand-
ræði, því meiri sem eftirgjöfin er.
Verið getur að flokksforystan hafi
framan af talið ESB-umsóknina í
línu við óskir samtaka atvinnulífs-
ins, en það á sannarlega ekki við
núna, þar sem atkvæði þar falla
gegn umsókninni. Flokkurinn er
fólkið og forystunni ber að fylgja
hug kjósenda sinna í þessu yf-
irgnæfandi mikilvæga máli.
Rétt stefna
Sjálfstæðisflokksins
Meirihluti íslenskra kjósenda
kysi gegn ESB-aðild ef kosið væri
í dag. Sjálfstæðisflokkurinn er
hæfastur flokkanna til þess að
leiða sjálfstæða stefnu í anda
ályktunar síðasta landsfundar
hans:
Sjálfstæðisflokkurinn telur það
meginmarkmið utanríkisstefnu Ís-
lands að standa vörð um fullveldi
og sjálfstæði þjóðarinnar jafnframt
því sem vinna ber með öðrum þjóð-
um að því að efla frið, frelsi, lýð-
ræði, mannréttindi og velmegun.
Samfylking ein
með ESB-aðild
Kjósendur Samfylkingar vilja
ákveðið ESB-aðild og flokkurinn
hefur hana á stefnuskrá sinni.
Kjósendur Vinstri grænna eru
harðir gegn ESB-aðild en forysta
þess flokks hunsar í framkvæmd
ítrekað vilja síns fólks. Sönnum
fylgismönnum stefnu
VG er bolað úr rík-
isstjórn og frá áhrif-
um. Framsóknarflokk-
urinn virtist líklegur
til ákveðinnar and-
stöðu gegn ESB, en
nýtur ekki almenns
fylgis og hefur linast
full mikið í andstöðu
sinni, trúlega til þess
að reyna að auka fylg-
ið með ESB-höllum
kjósendum, en stefnan
virkar ekki. Andstaða annarra
flokka við ESB-aðild er skýr, en
fylgi þeirra mælist lítið.
Kjósendur skýrir
en forystan ekki
Yfirleitt má segja að a.m.k. 70%
kjósendur annarra flokka en Sam-
fylkingar (þ.e. þeir sem taka af-
stöðu) standa gegn ESB-aðild sam-
kvæmt skoðanakönnunum. Líklegt
er að ESB-fylgjandi kjósendum
Samfylkingar fari fækkandi nú
þegar ýmiss ESB-sannleikur kem-
ur smám saman í ljós, t.d. afstaða
gegn Íslandi í Icesave-málinu og
Grikklandi í efnahagsóförum
þeirra með evruna. En þótt afstaða
kjósenda allra flokkanna sé skýr,
þá er forysta þeirra það ekki að
sama skapi. Svo virðist sem ná-
lægðin við alla ESB-forkólfana og
óendanleg kerfi þeirra glepji for-
ystufólki okkar svo illilega sýn að
það missir sjónar á aðalatriðinu
sem gæta þarf, sjálfstæði Íslands.
Krefjumst skýrrar andstöðu við
ESB-aðild af forystu þess flokks
sem við kjósum. Þetta verklag
gengur ekki lengur.
Eftir Ívar Pálsson
»Meirihluti lands-
manna vill ekki
ESB-aðild. Forystu
hvers flokks ber að
fylgja vilja kjósendanna.
Sjálfstæðisflokkurinn
ætti að leiða þessa
andstöðu.
Ívar Pálsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
frá Boston University, með eigið
útflutningsfyrirtæki.
Að hrökkva eða
stökkva
Ljósahaf Eldur og ís hafa leikið stórt hlutverk í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Náttúran hefur endurspeglað litrófið og meðal annars hafa norðurljósin vísað ferðalöngum veginn inn í Þórsmörk.
hag