Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„AUÐVITAÐ er það ljóst að það hef-
ur verið hreyfing á þessum kröfum.
Þær hafa gengið kaupum og sölum.
Síðast þegar ég vissi var þessi eign
mjög dreifð,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra, spurð-
ur um áhuga erlendra vogunarsjóða
á skuldabréfum í bönkunum.
Fram kom í fréttum Ríkissjón-
varpsins í gær að bandarískur vog-
unarsjóður sæti um 2 milljarða kröfu
kröfuhafa í Glitni en viðkomandi,
Hlín Sturludóttir, var sögð velta því
fyrir sér hvað vekti fyrir sjóðnum.
Inntur eftir því hvort hann telji
ósækilegt að vogunarsjóðir séu að
seilast til áhrifa á Íslandi kveðst
Steingrímur
„gjarnan vilja sjá
að í þessum
kröfuhafahópi
séu það stóru
bankarnir sem
haldi sínum hlut“.
„Ég held að
menn séu nú ekk-
ert spenntir fyrir
þeim. Ég segi nú
það eins og er,“
segir hann um vogunarsjóðina.
Hafa ekki veitt upplýsingar
Spurður um áhuga sjóðanna segir
Árni Tómasson, formaður skila-
nefndar Glitnis, því hafa verið rang-
lega haldið fram í frétt RÚV að
nefndin hefði veitt vogunarsjóðum
upplýsingar um einstaka skuldara.
„Þetta er ekki rétt. Skilanefnd
hefur ekki heimildir til að veita upp-
lýsingar um stöðu einstakra skuld-
ara. Hitt er rétt að allir kröfuhafar í
Glitni fá leyniorð til þess að opna
kröfuskrá á heimasíðu bankans og
þannig getur hver og einn kröfuhafi
fengið allar upplýsingar í kröfulýs-
ingu Glitnis,“ segir Árni.
Hvað snertir möguleika erlendra
vogunarsjóða á að seilast til áhrifa í
íslensku athafnalífi bendir Árni á að
langur tími sé þar til kröfur breytist í
eignir. „Það er mat skilanefndar að
það muni líða að minnsta kosti 5 ár
þangað til nauðasamningar geta átt
sér stað sem breyti rétti kröfuhafa
yfir í eign. Þangað til þetta gerist
fara skilanefnd og slitastjórn með
málefni Glitnis, þ.m.t. málefni Ís-
landsbanka, en eins og kunnugt er á
Glitnir 95% í Íslandsbanka.“
Ekki vör við slíkan áhuga
Spurður um áhuga erlendra vog-
unarsjóða á skuldabréfum í Kaup-
þingi sagði Ólafur Garðarsson, að-
stoðarmaður Kaupþings í greiðslu-
stöðvun, að slitastjórnin „hefði ekki
orðið mikið vör við slíkan áhuga“, en
hann á sæti í slitastjórn bankans.
„Við vitum ekki hvort þeir hafa
mikinn eða lítinn áhuga. Það er hins
vegar alveg ljóst að fyrst eftir hrunið
skiptu skuldabréf um hendur. Þau
gengu kaupum og sölum. Ég held
miklu frekar að vogunarsjóðir hafi
tekið sér stöðu fyrst eftir hrunið,“
segir Ólafur Garðarsson.
Óþarft að óttast vogunarsjóði
Fjármálaráðherra telur ekki tilefni til áhyggna af vogunarsjóði sem girnist kröfur Kröfuhafar í
bönkunum myndi dreifðan hóp Hlutur margra smár Fulltrúar skilanefnda benda á lagaramma
Í HNOTSKURN
»Skuldabréf í íslenskubönkunum hafa hækkað
mikið á skömmum tíma.
»Þau hafa verið eftirsótt áerlendum mörkuðum.
»Þessi eftirspurn hefur leittaf sér umræðu um áhuga
vogunarsjóða.
»Það er af þeim sökum semýmsir hafa velt fyrir sér
möguleikum þeirra til að seil-
ast til áhrifa í íslensku at-
hafnalífi í gegnum skuldabréf
í bönkunum.
Steingrímur
J. Sigfússon
HALLGRÍMSKIRKJUTURN hefur lengi sett
svip sinn á borgarlandslagið og trónað yfir aðrar
byggingar höfuðstaðarins.
Eins og sést á þessari mynd er Harpa, nýja tón-
listarhúsið, hins vegar byrjuð að ógna veldi hans
séð frá Granda. Þaðan virðist þetta einkennis-
tákn Reykjavíkurborgar nú varla vera nema
svipur hjá sjón þótt kirkjuturninn njóti sín enn
frá öðrum sjónarhornum.
HARPAN HEFUR SIG HÁTT TIL HIMNA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÓSKAÐ hefur verið eftir tilboðum í byggingu Gufubaðs-
ins á Laugarvatni og er ráðgert að verkinu verði lokið 31.
maí á næsta ári. Sigurður Grétar Ólafsson, formaður
verkkaupans Gufu ehf., segir að öll hönnun sé tilbúin og
menn hafi fullan hug á að opna gufubaðið fyrir næsta
sumar. Hann segir fjármögnun verksins að mestu vera
lokið og að það verði fjármagnað til helminga með inn-
lendu hlutafé og lánsfé úr íslenskum bönkum. Farið sé
eftir sömu áætlunum og til voru fyrir bankahrun en með
einhverjum breytingum þó. „Það var farið í gegnum
hönnunina og hagkvæmari lausnir fundnar til þess að
spara. Það hefur aðeins verið slegið af en annars er þetta
sama hugmyndin og áður,“ segir Sigurður Grétar.
Hann segir menn ánægða með að verkefnið sé loks að
verða að veruleika eftir margra ára undirbúning og með
þau jákvæðu viðbrögð sem hugmyndin hafi fengið. „Við
höfum fengið mjög jákvætt viðmót hvar sem við höfum
kynnt verkefnið, bæði hjá bönkum og hluthöfum. Það lít-
ur vel út með framhaldið.“ kjartan@mbl.is
Gufubaðið á Laugarvatni
opnað næsta sumar?
Morgunblaðið/RAX
Gufubaðið Gamla aðstaðan var rifin 2007 og áætlað hafði
verið að opna þá nýju ári síðar. Enn hefur ekkert gerst.
Opnað fyrir tilboð í fram-
kvæmdina á þriðjudag
ENGAR formlegar viðræður um
lausn Icesave-deilunnar hafa verið
ákveðnar milli Íslendinga, Breta
og Hollendinga. Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra segir
að tölvusamskipti hafi þó átt sér
stað á milli samninganefndar-
manna í síðustu viku. Ekkert sér-
stakt hafi þó komið fram um fram-
gang málsins í vikulokin. „Menn
hafa verið í sambandi en það hefur
ekki leitt til þess að viðræður færu
í gang.“
Fram hefur komið að Norður-
löndin muni greiða út lán í kjölfar
annarrar endurskoðunar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (AGS), í trausti
þess að samningar um Icesave ná-
ist. Í viljayfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar til sjóðsins lýsa stjórnvöld
því yfir að þau geri ráð fyrir að
lausn á málinu fáist „fljótlega“.
Óformleg
samskipti
um Icesave
Morgunblaðið/Golli
Óvissa Engar viðræður ákveðnar.
VÍSINDAMENN telja sig hafa
komist nær skilningi á því hvers
vegna sumum reynist örðugra að
hætta að reykja en öðrum.
Þannig benda nýjar rannsóknir
til að gen geti verið orsakavaldur í
því hversu mikið sumir ánetjast
nikótíní í tóbaki og að það geti ver-
ið þeim mun erfiðara fyrir þá sem
hafa þetta gen að hætta að reykja.
Niðurstöður þriggja rannsókna
voru birtar í gær í vefútgáfu vís-
indatímaritsins Nature Genetics en
þær sýna tengsl á milli erfðaþátta
og þess hversu margar sígarettur
eru reyktar á hverjum degi.
Hópur vísinda-
manna á vegum
Íslenskrar erfða-
greiningar stóð
að baki einni af
rannsóknunum
þremur. Þeir
notuðu gögn frá
ríflega 70.000
reykingamönn-
um sem stað-
festu að erfða-
vísar á litningi 15 tengdust notkun
tóbaks.
Niðurstöðurnar kunna að
gagnast við meðferð á tóbaksfíkn.
Sýna tengsl erfða
og tóbaksfíknar
Íslensk erfðagreining stóð fyrir einni
af þremur alþjóðlegum rannsóknum