Morgunblaðið - 26.04.2010, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.04.2010, Qupperneq 6
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ICELANDAIR hefur flutt millilendingar í Am- eríkuflugi sínu tímabundið til Glasgow í Skot- landi vegna öskufalls frá eldgosinu í Eyjafjalla- jökli. Að öðrum kosti hefði verið viðbúið að flugið legðist af, segir framkvæmdastjóri fyr- irtækisins. Strax á fimmtudag, þegar spár bentu til þess að Keflavíkurflugvöllur myndi lokast fyrir milli- landaflugi, kom neyðarhópur Icelandair saman, að sögn Birkis Hólms Guðnasonar, fram- kvæmdastjóra Icelandair, en í hópnum situr framkvæmdastjórn félagsins auk fulltrúa frá flugdeild, sölu- og markaðssviði og stjórnstöð- inni í Keflavík. „Við gerðum okkur fljótt grein fyrir því að flugvellirnir á Akureyri og Egils- stöðum myndu aldrei ráða við þann fjölda far- þega sem við erum með í Ameríkufluginu, bæði vegna húsnæðisins en einnig út af kröfum sem gerðar eru til öryggisleitar í flugi til Bandaríkj- anna. Í framhaldinu settum við í raun upp nýtt leiðakerfi með millilendingu í Glasgow í stað Keflavíkur og svo flugi milli Glasgow og Ak- ureyrar til að sinna farþegum til og frá Íslandi,“ en þeir eru um helmingur allra farþeganna í Ameríkufluginu. Alls flytur Icelandair um 30 þúsund farþega vikulega milli Evrópu og Ameríku eða um fjög- ur þúsund manns daglega á þessum árstíma. Mikið er því í húfi. „Áður en þetta fór af stað vorum við farin að sjá mikla fjölgun farþega hjá okkur yfir hafið.Það hefði aldrei gengið að halda þessu úti frá Akureyri svo við hefðum nánast þurft að stöðva Atlantshafsflugið og þá værum við farnir af þeim markaði. Þetta var því eina leiðin til að halda úti leiðakerfinu í heildina. Við vorum líka hræddir um að við gætum ekki flogið neitt ef allir flugvellir á Íslandi lokuðust.“ Hann segir flutninginn á tengifluginu til Glas- gow hafa gengið ótrúlega vel. „Með þessu höf- um við náð að fljúga um 75% af áætluninni. Við áttum von á töluverðum afbókunum og að fólk nennti ekki að ferðast svona en það kom okkur á óvart að nánast allar vélar hafa verið þéttbók- aðar frá því við byrjuðum. Vissulega hafa verið einhverjar afbókanir en við höfum líka fengið bókanir á síðustu stundu frá ferðamönnum og fjölmiðlafólki sem vill koma hingað með stuttum fyrirvara út af gosinu.“ 150 starfsmenn fluttir um set Það er þó meira en að segja það að flytja tengiflug félagsins á milli landa. „Við þurftum til að mynda að skrá ný flugnúmer, senda starfs- fólk út og vélarnar á sína staði,“ segir Birkir en um 150 starfsmenn, þ.e. áhafnir og vallarstarfs- menn, hafa verið fluttir til Glasgow og til Ak- ureyrar vegna þessara breytinga. „Áhafnir og framlínufólkið okkar í símaþjónustu og á sölu- skrifstofu hefur unnið frá sjö á morgnana til miðnættis síðustu tíu daga og komið inn um helgar og á kvöldin til að vinna. Starfsfólk í inn- tékki, hlaðmenn og aðrir hafa svo farið norður, svo það er aðallega starfsfólkinu að þakka hversu vel hefur tekist til.“ Hann segir þó umtalsverðan kostnað og tap fylgja þeim röskunum og breytingum sem hafa orðið á flugleiðum félagsins, sem nemi 50-100 milljónum daglega. „Okkar stærstu áhyggjur núna eru af því hversu lengi þetta varir og hvort ferðamenn vilji koma hingað í sumar. Við höfum séð töluvert af afbókunum nú þegar. Þess vegna var lykilatriði að halda leiðakerfinu gangandi – ef Ísland hefði lokast hefði skaðinn orðið mjög mikill.“ Keflavíkurflugvöllur opnist í dag Áætlanir Icelandair gera ráð fyrir að flogið verði um Glasgow til morguns. Samkvæmt öskuspám í gær var gert ráð fyrir að öskufall yrði suður af landinu í dag. Gangi það eftir verð- ur hægt að fljúga blindflug frá öllum millilanda- flugvöllum landsins, þar á meðal Keflavíkur- flugvelli. Að sögn Kristínar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Iceland Express, er því stefnt að því að fljúga til og frá landinu í gegnum Keflavík í dag, en áætlað er að fljúga til London, Kaupmannahafnar, Berlínar og Brussel. „Spárnar koma á sex tíma fresti og við fylgj- umst vel með þeim,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Þetta getur breyst með skömmum fyrirvara svo við verðum að haga seglum eftir vindi. Við biðjum farþega sem eiga bókað far um að fylgjast vel með og svo sendum við þeim sms og tölvupóst um leið og ástæða er til.“ Tengiflugið flutt vegna gossins  Icelandair setti upp nýtt leiðakerfi fyrir Ameríkuflugið þar sem millilent er í Skotlandi  Farþegar á leið til og frá Íslandi ferjaðir milli Akureyrar og Glasgow  Búist við opnun Keflavíkurflugvallar í dag Tengiflug Sjá mátti sjö af flugvélum Icelandair samtímis í flugstæðum á Glasgow–flugvelli. Ljósmynd/Orri Eiríksson 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 UM hundrað sjálfboðaliðar á vegum Rauða kross Íslands, Slysavarna- félagsins Landsbjargar, jeppa- klúbbsins 4x4 og hóps af Fésbókinni aðstoðuðu bændur undir Eyjafjöll- um við hreinsunarstörf í gær. Bónd- inn á Önundarhorni segir mikinn andlegan stuðning í slíkri aðstoð vandalausra. Það var mikið um að vera hjá Sig- urði Þór Þórhallssyni, bónda á Ön- undarhorni, um helgina við öskuþrif og annað hreinsunarstarf eftir gosið. Kollegar hans úr Austur-Landeyjum lögðu honum lið á föstudag og laug- ardag og í gær fékk hann aðstoð frá sjálfboðaliðum Rauða krossins. „Við erum búin vera þrjá síðustu daga að hreinsa úr garðinum með því að raka, moka og sópa öskunni upp og þá kemur grasið ágætlega upp úr því sem eftir er. Reyndar var versti dag- urinn í dag [í gær] vegna bleytu. Þá verður þetta svo mikil drulla sem er bæði erfitt að raka og þungt að moka, enda eins og steypa að þyngd.“ Slíkar aðgerðir duga þó aðeins á minni fleti. „Þetta er svo hrikaleg vinna að þetta er bara gert í kringum húsið. Ef eitthvað á að gera á tún- unum held ég að þau verði plægð. Ég þarf hins vegar að byrja á því að skafa drullu af túnum og upp úr skurðum eftir aurflóðin svo við höf- um svo sem eitthvað við að vera.“ Og ekki virðist standa á Sigurði að drífa sig í verkin. „Það er ekki hægt annað þegar hrúgast svona að manni ókunnugt fólk sem vill gera eitthvað. Það hringja margir til að bjóða fram aðstoð og veita móralskan stuðning, og það skiptir miklu máli að finna þennan samhug.“ Tilbúið að koma aftur Jóhanna Róbertsdóttir, svæðis- stjóri Rauða krossins á Suðurlandi, sagði hreinsunarstarfið í gær hafa gengið vel. „Eins og oft er þegar margir vinna saman þá var bara stemning og mér heyrðist á fólki að það væri alveg tilbúið til að gefa kost á sér aftur ef út í það færi.“ Hún seg- ir þó ekkert hafa verið ákveðið með framhaldið – það yrði gert eftir út- tekt á starfinu í gær. ben@mbl.is Ljósmynd/ Jónas Erlendsson Hreinsunarstarf Bændur úr Landeyjum tóku til hendinni á Önundarhorni og víðar undir Eyjafjöllum um helgina. Samhugurinn skiptir miklu  Um hundrað sjálfboðaliðar aðstoðuðu bændur undir Eyja- fjöllum í gær  Erfitt að hreinsa upp öskuna vegna bleytu ÞÓTT gosið í Eyjafjallajökli sé nú aðeins brot af því sem það var þegar mest var eru engin merki um að því sé að ljúka. Gosórói er svipaður nú og undanfarna daga. Samkvæmt upplýsingum sem Jarðvísindastofnun HÍ og Veður- stofan hafa tekið saman er gosvirkn- in áfram bundin við nyrðri gíginn og ef marka má vatnsrennsli niður Gígjökul rennur hraun áfram til norðurs. Gögn frá því á laugardag sýna að geilin til norðurs frá gígnum er um 700 metra löng og hafði hraun náð 400 til 500 metra norður frá gígnum. Ekki var athugað með kvikuflæði í gær en talið var að það væri svipað og undanfarna daga, eða 20 til 40 tonn á sekúndu. Í gær sást eingöngu til gossins frá Hvolsvelli og heyrðust dynkir frá því í Fljótshlíð. Athuganir jarðfræðinga á gjóskunni sem upp hefur komið í vikunni sýna að hún er mun grófari en hún var fyrstu daga gossins. Gjóskufall var lítið í gær, en þó grán- uðu þök á innstu bæjum í Fljótshlíð. Þótt ekki séu merki um að gosinu sé að ljúka virðist gosmökkurinn sjálfur fara heldur dvínandi. Engin merki um að gosinu sé að ljúka LEIKSKÓLABÖRN í Bláskógabyggð verða að taka sér frí frá skólastarfinu í dag þar sem kennarar þeirra eru nær allir strandaglópar í Kaupmannahöfn. Að sögn Kristínar Ingunnar Haralds- dóttur, leikskólakennara á Laugarvatni, eru 13 af 16 starfsmönnum leikskólanna tveggja í Bláskógabyggð staddir í Kaupmannahöfn eftir heimsókn í danskan leikskóla en hóp- urinn átti bókað flug aftur til Keflavíkur með Iceland Express um hádegisbilið í gær. Vegna gosöskunnar varð ekki af því flugi en hópurinn beið lungann úr gærdeginum á Kastrup-flugvelli eftir flugi sem átti að lenda seint í gærkvöldi á Akureyri. Þaðan stóð til að fara með rútu til Reykjavíkur og svo áfram til Laugarvatns og Reykholts, þannig að hópurinn næði til vinnu í tæka tíð í dag. Sú áætlun gekk þó ekki eftir því um hálf- ellefu í gærkvöldi var hópnum snúið aftur á hótel ytra með þeim skilaboðum að ekki yrði flogið til Íslands fyrr en klukkan eitt í dag. Leikskólabörn án kennara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.