Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 7

Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010     Sléttuvegur 29-31, 58 íbúðir. Sléttuvegur 19-23, 70 íbúðir. Sléttuvegur 11-13, 51 íbúð. Nokkrar íbúðir eru lausar.Nánari upplýsingar á skrifstofu Síðumúla 29 sími 5526410 og á heimasíðu samtakanna www.aldradir .is. Framkvæmdir við nýju húsin á Sléttuvegi 29-31 ganga mjög vel. Vilja minna félagsmenn sína á að 38 aðalfundur samtakanna verður á morgun 27 apríl kl. 13.30 í safnaðarheimili Grensáskirkju Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is KREPPAN setur mark sitt á skipt- ingu fjármagns til samgöngu- framkvæmda í samgönguáætlun til ársins 2012, sem samgönguráðherra mun væntanlega mæla fyrir á Al- þingi í vikunni. Framlögin eru að- eins lítill hluti þess sem var fyrir fá- einum árum. Þannig er nú t.d. gert ráð fyrir að stofnkostnaður til vega- gerðar verði aðeins 7,5 milljarðar á næsta ári og 7 milljarðar 2012. Fjár- framlög til framkvæmda í einstökum kjördæmum verða því vel innan við tveir milljarðar. 10% niðurskurður verður á framkvæmdafé Siglinga- stofnunar og sömuleiðis til flugmála. Öll áætlunin um mögulegar stór- framvæmdir er bundin við að sam- komulag náist við lífeyrissjóði eða aðra fjárfesta um sérstaka fjár- mögnun þeirra. „Ef Alþingi sam- þykkir upptöku veggjalda til að flýta vegaframkvæmdum munu [tiltekin] verkefni eða hluti þeirra bætast við lista þeirra verkefna sem ætlað er að koma í framkvæmd á næstu miss- erum […],“ segir í áætluninni. Ekki er gert ráð fyrir því að nein breyting verði á mörkuðum tekjum til samgöngumála. Bensíngjaldið, sem var síðast hækkað í desember 2008 og er nú rúmar 37 kr. á hvern lítra, á að skila 7,4 milljörðum á þessu ári og rúmum 7,5 milljörðum bæði á næsta og þarnæsta ári. Olíu- gjaldið sem síðast var hækkað í jan- úar sl. og hafði þá hækkað um 28,7% á einu ári, á að skila rúmum 6,3 millj- örðum á árinu 2011. Björn Valur Gíslason, formaður samgöngunefndar, leggur áherslu á að ef notendagjöld verða tekin upp með sérstakri fjármögnun í vega- málum, komi sú gjaldtaka ekki sem viðbót við núverandi gjaldtöku, sem byggist á mörkuðum tekjustofnum Vegagerðarinnar. „Mér sýnist stefna í þá átt að við munum þurfa að fjármagna vega- framkvæmdir með þessu móti eins og gert er víða um heim en á móti hlýtur að koma minni gjaldtaka ann- ars staðar þegar fram líða stundir,“ segir hann. Björn Valur leggur áherslu á að gæta verði jafnræðis svo hugsanleg notendagjöld falli t.d. ekki með auknum þunga á þann hóp fólks sem sækir atvinnu milli byggð- arlaga og fara í gegnum gjaldhlið. Á annan milljarð í jarðgöng Gerð Dýrafjarðarganga verður seinkað, eins og fram kom í blaðinu um helgina. Í nýrri samgönguáætlun er þó einni stórri framkvæmd ýtt úr vör en það gerð Norðfjarðarganga, sem talið er að muni kosta 9,5 milljarða. Þó hægara verði farið í sakirnar en áður var ráðgert er lagt til að á næsta ári hefjist undirbúnings- framkvæmdir fyrir 220 milljónir en síðan er gert ráð fyrir tæplega 1,2 milljörðum á vegaáætlun vegna jarðganganna á árinu 2012. Verkefni skorin niður og traustið lagt á lífeyrissjóði  „Notendagjöld verði ekki viðbót“  Norðfjarðargöngum ýtt úr vör Morgunblaðið/RAX Vegaframkvæmdir Gert er ráð fyrir að stofnkostnaður til vegagerðar verði aðeins 7,5 milljarðar kr. á næsta ári og 7 milljarðar króna árið 2012.  Lögð er til fjárveiting til áframhaldandi vegagerðar við Dettifossveg, milli hringveg- arins og Vesturdals, 560 millj- ónir á þessu ári og 90 milljónir á næsta ári.  Framkvæmdum við Suður- strandarveg verður haldið áfram. Fjárveiting er ætluð til að ljúka við þá vegagerð sem þegar er hafin á kaflanum milli Þorlákshafnar og Sel- vogs. Einnig er gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir við kaflann á milli Ísólfsskála og Selvogs.  Gert er ráð fyrir áfram- haldandi vegaframkvæmdum milli hringvegarins og Vopna- fjarðar. 517 milljónum verði varið á þessu ári til annars áfanga á milli Vopnafjarðar og Brunahvammsháls. Á Norðausturvegi er einnig gert ráð fyrir áframhaldandi fram- kvæmdum við nýjan veg um svokallaða Hófaskarðsleið og Raufarhafnarleið.  Fjárveiting er ætluð til gerðar nýrrar brúar yfir Stað- ará og nýs vegar frá Djúpvegi í botni Steingrímsfjarðar.  Það fé sem lagt er til að veitt verði til Vestfjarðavegar er vegna endurgerðar veg- arins frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði og til áframhaldandi uppbyggingar vegar milli Kjálkafjarðar og Vatnsfjarðar. Ekki er tekin af- staða til þess í áætluninni hvort vegur verður lagður yf- ir Mjóafjörð og Kjálkafjörð, annan eða báða, eða farið fyr- ir þá.  Gert er ráð fyrir fjárveit- ingu til breikkunar Vestur- landsvegar í Mosfellsbæ milli Hafravatnsvegar og Þing- vallavegar. Fjárframlögum skipt á verkefni Náist samkomulag um aðkomu lífeyr- issjóðanna eða annarra fjárfesta að fjármögnun vegaframkvæmda verður hægt að hefja fram- kvæmdir við breikkun Vestur- landsvegar að Hólmsá og frá Hólmsá að Hvera- gerði strax á þessu ári. „[…] auknar framkvæmdir verður að fjármagna með veggjöldum,“ segir í samgönguáætluninni. Hafist yrði handa við breikkun Vesturlandsvegar 2013 en á næsta ári er ráðgert að hefja framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng. Samgöngumiðstöð, stækkun flugstöðvar á Akureyri og framkvæmdir við flughlöð eru nú taldar kosta 3,8 milljarða og eru í áætluninni bundnar vonir við að lífeyrissjóðir komi að fjármögnuninni. Stórframkvæmdir næstu missera og veggjöld Verkefni Kostnaður Lengd Hægt að [millj. kr.] verkefnis byrja Suðurlandsvegur Vesturlandsv.–Hólmsá 3.450 5 ár 2010 Hólmsá–Hveragerði 5.200 4 ár 2010 Hveragerði–Selfoss 4.400 3 ár 2012 Ný brú á Ölfusá 2.800 2 ár 2013 Vesturlandsvegur 2 + 1 og mislægt 2.840 2 ár 2013 Reykjanesbraut 6.000 4 ár 2011 Vaðlaheiði 8.600 3 ár 2011

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.