Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010
Gunnar Rögnvaldsson skrifarleiftrandi greinar um málefni
Evrópusambandsins. Vefur hans er
hafsjór af fróðleik. Nú síðast ræðir
hann um spádómsgáfu virtra nor-
rænna stjórnmálamanna, sem fór
fyrir lítið. Og hann lýsir stöðunni,
eins og hún blasir
nú við:
Grikkland á leiðí ríkisgjald-
þrot. Portúgal
fylgir í humátt á
eftir. Írland er í
tætlum. Spánn
riðar, Eystra-
saltsríkin [eru] í
djúpri neyð og
Ítalía lifandi grafin í skuldum. Á
meðan myntbandalag Evrópusam-
bandsins sprengir lönd þess í loft
upp sitja evrufíklar Brussel niðri í
kjallara og sjúga þumalputta með
lokuð augu. Skjálfandi af hræðslu
eins og óvitar sem kveikt hafa í húsi
nágrannans um miðja nótt. Þeir
vona að pabbi og mamma vakni ekki.
Vona að þau taki ekki eftir að hús
nágrannans verður horfið á morgun.
Seðlabankastjórinn sem stjórnaði
sprengjuhleðslunum á evrusvæði
þorir varla að láta sjá sig opinber-
lega lengur. Hann er skjálfandi af
hræðslu. Seðlabanki Evrópusam-
bandsins er orðinn seðlabanki þar
sem öll bankastjórnin mætir með
magapínu í vinnuna á hverjum
morgni af ótta við að myntin sem
þeir eiga að passa muni hrynja við
hvert einasta fótatak þeirra á pen-
ingagólfi heimsins. Það sem stýrir
ECB núna er óttinn einn.“
Og það skrítna er að á Íslandi eruenn menn, og margir þeirra
prýðilegir, sem vilja komast í þennan
hóp. Þá langar til að sitja í samfélagi
frækinna fýra, og sjúga með þeim
þumalputtana með lokuð augun og
harka af sér magapínuna í hjartan-
legu hópefli örvæntingafullra skriff-
inna. Þeir eiga sér draum.
Þeirra draumur er þjóðarmartröð.
Gunnar
Rögnvaldsson
Ekki er staðan beysin
Veður víða um heim 25.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 rigning
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri 2 alskýjað
Egilsstaðir 2 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 6 rigning
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 9 skúrir
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 9 skýjað
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 13 skúrir
Glasgow 13 skúrir
London 17 léttskýjað
París 20 léttskýjað
Amsterdam 14 skýjað
Hamborg 21 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 22 skýjað
Moskva 3 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 23 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 20 skýjað
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 12 léttskýjað
New York 9 alskýjað
Chicago 14 skýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
26. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:17 21:35
ÍSAFJÖRÐUR 5:08 21:54
SIGLUFJÖRÐUR 4:51 21:37
DJÚPIVOGUR 4:43 21:08
ENGINN annar en dr. Bæk var mættur við Nor-
ræna húsið í gær í tilefni af degi umhverfisins.
Þar bauð hann fólki upp á þá þjónustu að skoða
og votta reiðhjólin. Margir notfærðu sér þetta
einstaka tækifæri til að láta hjólalækni líta á
gripi sína og ástandsskoða, enda eins gott að allt
sé í lagi þegar brunað er á hjóli um stræti borg-
arinnar.
Hjólandi vegfarendum hefur fjölgað mjög í
borginni og má gera ráð fyrir að þeim fjölgi enn
frekar með hækkandi sól og hlýnandi veðri.
Heilmikið má spara í útgjöldum heimilisins með
því að hjóla á milli staða frekar en að aka á bif-
reið, því bensín- og olíuverð hefur hækkað mjög
undanfarið.
REIÐHJÓLALÆKNIR ÁSTANDSSKOÐAR FÁKANA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skattskrár vegna álagningar 2009 sem og
virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins 2008
verða lagðar fram 26. apríl 2010
Skrárnar, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi,
liggja frammi á skattstofum eða á sérstaklega auglýstum stöðum
í hverju sveitarfélagi dagana 26. apríl til 7. maí 2010 að báðum
dögum meðtöldum.
Framlagning skattskrár er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga
nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988.
26. apríl 2010
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri
MATTHILDUR Edda Pétursdóttir
fékk 1. verðlaun er Erróverðlaun
reykvískra ungmenna voru veitt á
laugardag. Dagur Hall hlaut 2.
verðlaun og Birta Júlía Sturludóttir
3. verðlaun. Öll þóttu þau sýna
frumleika, sköpunarkraft og leikni
í listsköpun sinni.
Óskar Bergsson, formaður borg-
arráðs, afhenti verðlaunin sem veitt
voru börnum sem tóku þátt í sér-
stakri Errósmiðju í Ævintýrahöll-
inni undir stjórn Ilmar Stefáns-
dóttur listamanns í tengslum við
Barnamenningarhátíðina í Reykja-
vík. 320 börn unnu þar verk í anda
Errós.
Sýndu frumleika
og sköpunarkraft
Ungir listamenn Erróverðlaun
reykvískra ungmenna veitt.
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | EFTIR um það bil þúsund ára
fjarveru er Þórdís spákona á Spákonufelli
komin heim aftur. Þórdís, sem var landnáms-
kona á vestanverðum Skaga, bjó á Spákonu-
felli á Skagaströnd og bar beinin í fjallinu ofan
við bæinn.
Nú hefur fyrirtækið Spákonuarfur nýlokið
við að láta gera vaxmynd af Þórdísi í fullri
stærð og verður henni komið fyrir í spáhofi
fyrirtækisins þegar það verður tilbúið.
Það var leikmunagerð sögusafnsins, eða
Ernst Backman, sem skapaði Þórdísi fyrir
Spákonuarfinn. Þeir sem til þekkja á Skaga-
strönd munu að öllum líkindum kannast við
svip Þórdísar því fyrirmynd hennar er þriggja
barna móðir á staðnum sem lék Þórdísi í upp-
færslu á leikriti um hana haustið 2008. Eins og
sést á myndinni er Þórdís svipmikil og hnar-
reist enda er henni þannig lýst í Vatns-
dælasögu.
Þórdís spákona snýr aftur
Morgunblaðið/Ólafur Bernódus
Snýr aftur Þórdís spákona þótti hnarreist kona og svipmikil.
Vaxmynd spákonunnar í fullri stærð sem gerð var af Ernst
Backman verður komið fyrir í sérstöku spákonuhofi
HÓPUR fólks
hefur ákveðið að
efna til framboðs
í Reykjavík í
borgarstjórnar-
kosningunum 29.
maí undir nafn-
inu Reykjavíkur-
framboðið.
Stofnfundur
framboðsins
verður haldinn þriðjudaginn 27.
apríl nk. í Iðnó, 2. hæð.
„Tilefni framboðsins er að innan
fjórflokksins svokallaða er vonlaust
að vinna að mörgum helstu verk-
efnunum í borginni með hagsmuni
Reykvíkinga að leiðarljósi. Oft
skarast hagsmunir flokkanna og
Reykvíkinga. Augljósasta dæmið er
flugvöllurinn, sem Reykvíkingar
kusu burt úr Vatnsmýri,“ segir í
fréttatilkynningu.
Reykjavíkur-
framboð býður
fram í borginni
Reykjavík-
urflugvöllur