Morgunblaðið - 26.04.2010, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.04.2010, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Atvinnu-málinverða al- gert forgangs- verkefni í Reykja- vík á næsta kjörtímabili að sögn Dags B. Eggertssonar, oddvita Sam- fylkingarinnar í borginni, sem í gær kynnti stefnu sína í þessum málaflokki. Í stefnu- yfirlýsingu Samfylkingar- innar í Reykjavík segir að tryggja þurfi 3,5% meðalhag- vöxt í Reykjavík á næsta kjör- tímabili til að standa undir velferð og lífskjörum. Þessu markmiði er fylgt eftir með langri upptalningu á marg- víslegum átökum, könnunum, stuðningi, áherslum, aðgerð- um og síðast en ekki síst fundahöldum sem borgin eigi að efna til á næsta kjör- tímabili. Sumt af því sem þarna er nefnt er ágætt en annað síðra, eins og gengur. Vandinn er hins vegar sá að trúverðug- leiki stefnu er ekki meiri en þess sem stefnuna kynnir og svo óheppilega vill til að sá er í þessu tilviki varaformaður Samfylkingarinnar. Afstaða Samfylkingarinnar til upp- byggingar atvinnulífsins hef- ur þegar verið sýnd í verki. Dagur B. Eggertsson, vara- formaður Samfylkingarinnar, hefur ekki aðeins að forminu til verið í forystu flokksins. Hann hefur á síðustu miss- erum beinlínis verið í forystu fyrir stefnumótun flokksins í atvinnumálum og hefur leitt svokallaða 20/20 sóknar- áætlun ríkisstjórnarinnar. Þá stefnu sem Dagur kynnir nú fyrir Samfylk- inguna í Reykjavík verður því að skoða í ljósi reynslunnar af at- vinnumálastefnu Samfylkingarinnar á landsvísu. Mark- mið Dags um 3,5% hagvöxt í Reykjavík verður ekki metið án þess að horfa til afstöðu Samfylkingarinnar til hag- vaxtar í landinu í heild. Það þýðir ekkert að segjast vilja hagvöxt í Reykjavík en vinna á sama tíma gegn honum á landsvísu. Staðreyndin er sú að undir forystu Samfylkingarinnar í ríkisstjórn hefur atvinnulífinu ekki verið veitt svigrúm til að vaxa. Þess í stað hefur verið reynt að þvælast fyrir at- vinnuuppbyggingu eftir því sem hægt er. Þetta á jafnt við um almennar aðgerðir á borð við skattahækkanir á atvinnu- lífið sem sértækar aðgerðir á borð við þá að tefja eða hindra einstakar leyfisveitingar stórra verkefna. Í ljósi slíkra hindrana sem Samfylkingin hefur staðið fyrir gagnvart einstökum fyrirtækjum á landsvísu verður loforð um að einfalda leyfisveitingar og umsóknarferli fyrir þá sem vilja stofna til reksturs í Reykjavíkurborg til að mynda einstaklega ótrúverðugt. Dagur B. Eggertsson, vara- formaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Reykja- vík, er lipur við að telja upp í löngu máli allt það sem hann vill bæta, efla og framkvæma. Reynslan af verkum hans er þó slík að orðin ein duga ekki til að vega hana upp. Ekki er trúverðugt að segjast vilja vöxt í Reykjavík en vinna gegn vexti á landsvísu} Samfylkingin og atvinnumál Reykjavíkur Ekki sér ennfyrir endann á eldsumbrot- unum. Enn hefur heildartjón sem betur fer verið óverulegt, en á til- teknum afmörkuðum svæðum hefur það verið tilfinnanlegt. Björgunarsveitarmenn og aðrir sjálfboðaliðar hafa brugðist við af miklum mynd- arskap. Yfirvöld hafa vísað til þess að Bjargráðasjóður, sem er óburðugur, verði efldur svo hann geti staðið undir lög- bundnu hlutverki sínu. Það er gott og blessað. En það er hægt að taka miklu fastar á með þeim sem fengið hafa að finna til tevatnsins, til að mynda undir Eyjafjöllum. Jarðvegs- verktakar hafa tækjabúnað og afl til að vera mönn- um þar á bæjum innan handar. Slíka aðila á að virkja þegar í stað og svo má gera dæmið upp síðar. Bjarg- ráðasjóður getur þá gert sitt og hitt er sjálfsagt að hinn sameiginlegi sjóður leggi til. Meginatriðið er að brugðist sé við fumlaust og af mynd- arskap. Og ekki má hanga helfast í lagabókstaf sem kemur í veg fyrir að aðstoða megi menn við að koma búfé sínu á beit í löndum sem eru vel girt og aflögufær. Það er óþarfi að hika og hinkra með aðstoð við bændur á öskusvæðinu} Notum það afl sem til er Þ að er skammt öfganna á milli í ís- lensku samfélagi. Nú þegar mál- efni þeirra eru til skoðunar, sem fóru offari í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum, skapast hætta á því að aðrir troðist undir, sem hafa ekki til þess unnið. Viðreisnin í efnahagslífinu byggist á því, að fólk hætti ekki að taka frumkvæði að at- vinnurekstri, þori og vilji hrinda hugmyndum í framkvæmd. Þannig verða störfin til og þannig skapast arður í samfélaginu, sem fer í að standa undir velferðarkerfinu. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú, að ekki sé alið á tortryggni í garð þeirra, sem fjárfesta í atvinnutækifærum. Það má heldur ekki verða þannig, að allir þeir sem hafa komið nálægt atvinnurekstri á undanförnum árum séu litnir hornauga. Ef við drögum þann lærdóm af bankahruninu, þá mun kreppan aðeins dýpka enn frekar á næstu árum. Það er sárgrætilegt að fylgjast með því, hvernig reynt er að sverta fólk, sem hefur það eitt sér til sakar unnið að leggja fjármuni í atvinnuuppbyggingu. Hvernig á að vera hægt að byggja upp öflugt atvinnulíf hér á landi, ef það fólk er dæmt úr leik, sem hefur áhuga, reynslu og þekk- ingu á því sviði? Ég nefni sem dæmi nafnlausa auglýsingu sem birtist í DV um helgina um Ármann Kr. Ólafsson, þar sem birtar eru lygar og óhróður undir yfirskini siðbótar. Ármann er einmitt dæmi um stjórnmálamann sem hefur reynslu af atvinnurekstri og það hlýt- ur að dýpka skilning hans á því hvernig umhverfi er heillavænlegt fyrirtækjum í landinu, til að virkja þá orku sem þar kraumar undir. Er ekki æskilegt að stjórnmálamenn hafi fjölbreytta reynslu og komi víðar að en úr opinbera geir- anum? Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis markar þáttaskil í umfjöllun um hrunið. Þar er gert upp við þá sem eru ábyrgir fyrir siðleysinu, glanna- skapnum og ofvextinum í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum og áfram verður unnið í þeirra málum innan dómskerfisins. En vonandi markar skýrslan líka upphaf. Það er löngu kom- inn tími til að hefja viðreisnina. Og þar hljótum við að byggja á lærdómi kyn- slóðanna. Hvergi á Vesturlöndum hafa stjórn- völd snúið baki við frjálsu markaðshagkerfi, sem byggir í eðli sínu á frumkvæði einstaklinganna. Þegar allt er eðli- legt, þá er framboðið drifið áfram af þeirri eftirspurn sem er fyrir hendi í þjóðfélaginu. Það er sama hvert litið er, alls staðar má finna þessa krafta. Þessi pistill er til að mynda skrifaður í notalegri stofu veitingahússins og gistiheimilis- ins Brekku í Hrísey, sem rekið er af harðduglegu fólki, en þar fékk blaðamaður kaffi og næði til að skrifa. Viðreisnin byggist á dugnaði og frumkvæði slíks fólks. Að fólk sé tilbúið að leggja allt undir – fjárfesta í hug- myndum sínum og stofna til atvinnureksturs. Ekki má tala kjarkinn úr því fólki. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Skammt öfganna á milli STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Munnleg einkamál í sögulegu hámarki FRÉTTASKÝRING Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Í lok sl. árs var með lögum kveðið á um tímabundna fjölgun héraðsdómara úr 38 í 54. Alls sóttu 37 um sex emb- ætti héraðsdómara, en fimm embættanna voru auglýst vegna fjölgunar dómara og eitt vegna lausn- ar dómara frá embætti. Að sögn Rögnu Árnadóttur dóms- málaráðherra er vinna dómefndar sem meta á umsækjendur enn í gangi. „Við erum að bíða eftir endan- legum tillögum dómnefndarinnar.“ Miðað var við að hægt yrði að skipa í stöðurnar 1. maí. „Mér sýnist þó allt stefna í að það dragist eitthvað,“ seg- ir Ragna. Hópur umsækjenda hafi líka verið stór og tíma taki að vinna úr upplýsingunum. Skipað verði þó í stöðurnar við fyrsta tækifæri. Heimild var einnig veitt fyrir ráðn- ingu fimm aðstoðarmanna við hér- aðsdóm. Búið er að ráða í flestar þær stöður og hafa tveir aðstoðarmenn þegar hafið störf við Héraðsdóm Reykjavíkur. Stefnir í metfjölda mála Helgi I. Jónsson, dómstjóri í Hér- aðsdómi Reykjavíkur og starfandi formaður dómstólaráðs, segir best að fá nýju dómarana til starfa sem fyrst, en dómurum við Héraðsdóm Reykja- víkur mun með þessu fjölga úr 22 í 25. Allt stefnir líka í metfjölda munn- lega fluttra einkamála. „Þau voru 1.077 í fyrra sem er sögulegt hámark og það er útlit fyrir að þau verði enn fleiri í ár.“ Þá streyma inn ágreiningsmál vegna krafna í þrotabú gömlu bank- anna og útlit er fyrir að þau muni skipta hundruðum. „Síðan hefur ver- ið tilkynnt af hálfu sérstaks saksókn- ara að reiknað sé með að fyrstu málin frá honum fari að koma nú um mán- aðamótin, þannig að það verður full þörf fyrir þessa viðbótardómara.“ Sjálfur telur hann að mörg ár muni taka að ljúka þeim málum sem koma upp í kjölfar bankahrunsins. „Síðan er ekkert lát á öðrum málum heldur, þannig að það standa í raun á okkur öll spjót.“ Lögin gera eingöngu ráð fyrir fjölgun héraðsdómara, þó ljóst megi telja að álag hafi og muni einnig aukast hjá Hæstarétti. Í fyrra fór Hæstiréttur fram á að hætt yrði við 16 milljóna króna niðurskurð við dómstólinn, en engin beiðni um fjölg- un dómara eða annars starfsfólks við Hæstarétt hefur borist dómsmála- ráðuneytinu. „Það hefur ekki borist erindi frá Hæstarétti um auknar fjár- heimildir eða fjölgun dómara. Ef slíkt erindi bærist þá yrði það auðvitað tekið til athugunar,“ segir Ragna. Skilin milli dómsvalds og fram- kvæmdavalds séu skýr og því sé það dómsvaldsins að gera viðvart telji það sig þurfa aukinn mannafla og fjár- magn, líkt og héraðsdómur hafi gert. Ragna kveðst engu að síður oft hafa velt því fyrir sér hvort ekki sé þörf á að gera könnun á álagi dómstóla. „Það er mikilvægt að dómstólar geti sinnt sínum lögbundnu verkefnum og að þeir ráði við málafjöldann. Þess vegna hef ég velt því fyrir mér hvort það þurfi að fara fram einhverskonar út- tekt á því hvort öruggt sé að álagið sé ekki of mikið.“ Morgunblaðið/Þorkell Héraðsdómur Reykjavíkur Þrír nýir dómarar taka fljótlega til starfa. Sex nýir dómarar taka til starfa við héraðsdóm á næstunni. Álag á dómstólana hefur enda aukist mikið frá bankahruni og stefnir í ár í metfjölda munnlega fluttra einkamála. NÝJUM málum í Hæstarétti fjölgaði um 85 milli áranna 2008 og 2009 og voru þau tæplega eitt hundrað fleiri í fyrra en 2006. Róbert R. Spanó, starfandi umboðsmaður Alþingis, lagði nýlega til að hæstaréttardóm- urum yrði fjölgað um þrjá í ritstjórn- argrein í Tímariti lögfræðinga. Hæstiréttur hefur hins vegar ekki sett fram formlegar tillögur um við- brögð við auknu álagi og engin beiðni verið send dómsmálaráðu- neytinu um fjölgun hæstaréttardóm- ara. „Það hefur engin slík beiðni verið send og engin ákvörðun verið tekin,“ segir Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar. Engin beiðni hefur heldur verið send um fjölgun löglærðra aðstoðarmanna, en í viðtali við Sunnudagsmoggann í mars sl. lýsti Þorsteinn þeirri skoð- un sinni að þeim þyrfti að fjölga. „Þetta er ekki komið á það stig,“ segir hann. ENGIN BEIÐNI SEND ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.