Morgunblaðið - 26.04.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 26.04.2010, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 Fylgst með boltanum Þessi tvö fylgdust með KR og Val takast á í Egilshöllinni í gærkvöldi. Árni Sæberg Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis eru stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir að hafa lækkað skatta á tímum þenslu. Þessi nið- urstaða endurspeglar viðhorf nefndarmanna til pólitískra deilumála fremur en að vera „Stóri-sannleikur“ um mistök við stjórnun efnahagsmála. Ég get aldrei tekið undir með fræða- og stjórnmálamönnum sem telja það rangt að koma í veg fyrir að hið opinbera seilist æ dýpra í vasa borgaranna. Það er einlæg sannfæring mín að í frjálslyndu samfélagi eigi að vinna að því að draga hramma ríkisins upp úr vösum heimila og fyrirtækja. Það er víðtækur sáttmáli hér á landi um að sameiginlega greiðum við fyrir heilbrigð- isþjónustu, tryggjum að enginn þurfi að líða skort og að innviðir samfélagsins séu sterkir, hvort heldur kemur að öryggi borgaranna eða tryggum samgöngum. Við viljum þéttriðið ör- yggisnet fyrir þá sem þurfa á því að halda og við erum samstiga í því að gera allt til að tryggja menntun óháð efnahag. En um leið gerum við þá kröfu að ríkið og aðrir opinberir aðilar gangi fram af hófsemd og lofi okkur að njóta þess sem aflað hefur verið með svita og erfiði. Þetta er grunnstefið sem slær í íslenskri þjóðarsál. Rannsóknarnefnd Alþingis er ekki í takt við þetta grunnstef. Útþensla ríkisins Hitt er svo rétt að á umliðnum árum voru gerð alvarleg mistök við stjórnun efnahags- mála og Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki vik- ist undan ábyrgð í þeim efnum. En mistökin voru ekki fólgin í því að lofa einstaklingum að halda meiru eftir af launum. Mistökin fólust í því að þenja út ríkið. Mistökin fólust í því að sveitarfélög um allt land misstu sjónar á ráð- deild og aðhaldi. Ef litið er til þróunar útgjalda ríkisins er augljóst að sjálfstæðismenn og samherjar þeirra í ríkisstjórn, – framsóknarmenn og samfylkingarfólk – misstu stjórn á þróun ríkis- útgjalda. Frá árinu 1991 jukust ríkisútgjöld gríðarlega. Árið 2008 voru regluleg ríkisút- gjöld liðlega 223 milljörðum króna hærri en 1991 á föstu verðlagi. Útgjöld hins opinbera voru nær 350 milljörðum hærri á föstu verð- lagi. Það er þetta ístöðuleysi við stjórn opinberra fjármála sem kynti undir þenslunni en ekki lækkun skatta. Ístöðuleysið einkenndi alla stjórnmálaflokka, jafnt á Alþingi sem í sveitarstjórnum. Allir köll- uðu á aukin útgjöld. Allir stjórn- málaflokkar lofuðu „gulli og grænum skógum“ í kosningunum 2003 og aftur 2007. Og Sjálfstæð- isflokkurinn stóð ekki á brems- unni. Ég hef í gegnum árin gagn- rýnt harðlega hvernig farið hefur verið með almannafé. Gagnrýni mín hefur ekki síst beinst að fé- lögum mínum í Sjálfstæð- isflokknum enda geri ég meiri kröfur til þeirra en annarra. Það veldur mér áhyggjum að Rannsóknarnefnd Alþingis skuli ekki hafa beint sjónum sínum að þróun opinberra útgjalda í stað þess að gagnrýna að almenningur og fyrirtæki hafi fengið að halda meiru eftir af sjálfsaflafé. Verst er að frjálslyndir menn skuli taka undir slíka gagnrýni í stað þess að beina augunum að raunverulegu vandamáli. Slíkt veit ekki á gott. Skilja ekki skattkerfið Það hefur lengi vafist fyrir vinstrimönnum að skilja að skattkerfið er sú umgjörð sem stjórnmálamenn sníða viðskipta- og efnahags- lífi þjóðarinnar. Hægt er að sníða hana þannig að þjóðfélagið eflist verði þróttmeira og ein- staklingar og fyrirtæki dafni en það er einnig hægt að gera umgjörðina svo þrönga að smám saman er efnahagslífið kæft og frumkvæði einstaklinganna drepið. Skattastefna rík- isstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein- gríms J. Sigfússonar er stefna spennitreyju fyrir allt íslenskt samfélag. Ég er einn þeirra sem halda því fram að það sé aldrei rangt – hvorki siðferðislega né efna- hagslega – að lofa fólki að njóta eigin vinnu og lækka opinberar álögur. Þremenningarnir í Rannsóknarnefnd Alþingis eru ósammála þessu og taka undir sjónarmið þeirra sem vilja hlut ríkisins sem mestan. Gegn slíkum hug- myndum er mér rétt og skylt að berjast. Eftir Óla Björn Kárason »Ég er einn þeirra sem halda því fram að það sé aldrei rangt – hvorki siðferð- islega né efnahagslega – að lofa fólki að njóta eigin vinnu. Óli Björn Kárason Höfundur situr á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Lækkun skatta er aldrei röng DÓMSMÁLARÁÐ- HERRA hefur nýverið lagt fram frumvarp um nýja skipan löggæslu- mála á Íslandi og áformar á komandi haustþingi að leggja fram frumvarp um breytta skipan sýslu- mannsembætta. Frum- vörpin ganga í stuttu máli út á að fækka sýslumannsembættum og aðskilja stjórn löggæslu frá þessum emb- ættum. Þessar fyrirætlanir eru í fullum samhljómi við þá meg- instefnu stjórnvalda undanfarin ár að koma á miðstýrðri útibúavæðingu stjórnsýslu á landsbyggðinni. Sókn- aráætlunin 20/20 er m.a. til grund- vallar í þetta skiptið en í þeirri ann- ars ágætu hugmynd hefur í meginatriðum verið tekin upp gam- alkunnug byggðastefna úr íslensk- um stjórnmálum. Hún snýr að því að byggðir landsins verði treystar með myndun valinna þjónustukjarna á örfáum stöðum á landinu. Til grundvallar stefnunni liggur falsvon um fjárhagslega hagræðingu og óútskýrðar sjálfsprottnar um- bætur í dreifðu byggð- unum í kringum þessa völdu kjarna. Þetta minnir óþægilega á héraðsborgavæðingu í Sovét Stalíns þar sem öflug fabrikka í hverju héraði átti að treysta byggðir landsins í heild. Ekki þarf að reifa efni þessarar vafasömu byggða- stefnu hér frekar þar sem hún hefur þegar beðið afhroð hvar sem henni hefur verið beitt, þar á meðal með skýrum hætti hér á landi. Suðurlandið Víkjum fyrst að Suðurlandi. Á undanförum dögum og vikum hafa dunið yfir Sunnlendinga hamfarir sem eiga sér fá fordæmi. Dag hvern hefur reynt á innviði stjórnsýslu Sunnlendinga: Tryggingu almanna- heilla, öryggismál af öllu tagi, fjölda- stjórnun, umferðarstýringu, björg- unarmál og síðast en ekki síst þó fjölskyldu- og samfélagsmál af ýms- um toga. Framganga sýslumanna og lög- reglustjórnenda á Hvolsvelli og Vík hefur vakið aðdáun margra Íslend- inga. Fumlaus og yfirveguð við- brögð byggð á mikilli þekkingu á viðfangsefninu einkenna alla vinnu. Farsæl úrslausn viðfangsefna þessa hæfa starfsfólks á nefnilega eitt stórt atriði sameiginlegt: Stað- arþekkingu og nálægð við viðfangs- efnið. Þekkingu á fólki og fjöllum, bæjum og búskap. Nú er hollt að spyrja: Hefðum við Íslendingar frekar viljað takast á við Suður- landshamfarirnar síðustu vikur með sundurskilinni stjórn löggæslu og sýslumanns og jafnframt miðstýra öllu saman úr fjarlægð, t.d. frá Sel- fossi? Húsavík og Þingeyjarsýslur Stærsta sýslumannsembætti landsins er rekið frá Húsavík. Það nær yfir um 20% af flatarmáli þessa lands. Akstursvegalengd um strand- lengju starfssvæðisins frá Vík- urskarði í vestri til Bakkafjarðar í austri er um 320 km (heldur lengra en frá Reykjavík til Skagafjarðar). Svæðið er fremur dreifbýlt og fjöl- breytt svo ekki sé meira sagt, eld- virkt og víða erfitt yfirferðar, en jafnframt eitt fjölsóttasta ferða- mannasvæði landsins. Nú virðist hugmynd sumra að taka alla stjórn af sýslumannsembættinu á Húsavík og færa til miðstjórnar úr Eyjafirði. Með því yrði þetta risastóra starfs- svæði stækkað enn frekar og því miðstýrt úr vesturjaðri svæðisins, þ.e. frá Akureyri. Einu er rétt að halda til haga: Í fyrrnefndu frum- varpi, og jafnframt nýkynntri skýrslu Þorleifs Pálssonar, ráðgjafa dómsmálaráðherra, um end- urskipulagningu sýslumannsemb- ætta, er það alls ekki skýr nið- urstaða að leggja skuli af embætti sýslumanns á Húsavík. Í kafla 6.3 í skýrslunni segir: „Gert er ráð fyrir að að jafnaði verði einn sýslumaður á hverju stjórnsýslusvæði. Í frum- varpinu er þó gert ráð fyrir að dómsmálaráðherra geti ákveðið að á sama stjórnsýslusvæði séu fleiri en einn sýslumaður ef það er nauðsyn- legt vegna erfiðra samgangna enda telji umdæmið fleiri en fjögur þús- und íbúa eða ef það þykir hag- kvæmt.“ Sýslumannsembættið á Húsavík uppfyllir öll þessi viðmið. Sam- göngur eru með þeim erfiðustu á landinu, íbúar telja langt yfir fjögur þúsund og auðvelt er að sýna fram á hagkvæmni, enda er hvort eð er gerð tillaga um öfluga starfsstöð á Húsavík. Miðstýringu opinberrar þjónustu samkvæmt úreltri gam- aldags byggðastefnu munu íbúar í Þingeyjarsýslum tæplega við una. Undirritaður álítur það skýlausa kröfu Þingeyinga að áfram verði rekið sjálfstætt sýslumannsembætti í Þingeyjarsýslum. Hafi dóms- málaráðherra aðrar hugmyndir er það hans að koma heim í hérað, hitta íbúa augliti til auglitis á opnum fundi og kynna þær. Kjarni málsins er þessi: Norð- austurhorn landsins – Þingeyj- arsýslurnar – eru eitt menning- arsvæði. Með mikilli fyrirhöfn hefur opinber þjónusta á þessu víðfeðma svæði verið byggð upp í einni heild. Það á ekki eingöngu við á sviði sýslumannsembættis/löggæslu held- ur einnig t.d. heilbrigðis- og mennta- mála og félagsþjónustu. Þetta hefur skapað með mikilli fyrirhöfn og á löngum tíma yfirgripsmikla þekk- ingu á flóknu og víðfeðmu starfs- svæði og þeim úrræðum sem stjórn- sýsla við þær aðstæður útheimtir. Þessar stjórnsýslueiningar eru fyrir vikið mikilvægur hluti af innviðum samfélagsins og eiga sinn þátt í að mynda sterka sjálfsmynd svæðis og íbúa – sýslu og manna. Eftir Óla Halldórsson »Miðstýringu opin- berrar þjónustu samkvæmt úreltri gam- aldags byggðastefnu munu íbúar í Þingeyj- arsýslum tæplega við una. Óli Halldórsson Höfundur er íbúi á Húsavík. Um sýslur og menn – Orðsending til dómsmálaráðherra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.