Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 16

Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 16
16 Umræðan MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 ALÞJÓÐLEGI hug- verkadagurinn er hald- inn hátíðlegur hinn 26. apríl ár hvert. Það var að frumkvæði Alþjóða- hugverkastofnunar- innar í Genf (World In- tellectual Property Organization) sem ákveðið var að tileinka þennan dag verndun hugverkaréttar með það að markmiði að auka vitund al- mennings um mikilvægi hugverka og þau réttindi sem þeim fylgja. Yf- irskrift alþjóðlega hugverkadagsins í ár er „Innovation – linking the world“, sem á íslensku mætti þýða sem „Nýsköpun tengir saman heim- inn“. Þó yfirskriftin sé afar víðtæk og margþætt langar mig að staldra að- eins við þann þátt sem lýtur að al- þjóðlegu samstarfi Íslands á sviði hugverkaréttar og þá einkum að nor- rænu samstarfi. Norðurlöndin hafa um árabil átt gott og náið samstarf á sviði hug- verkaréttar, bæði höfundaréttar sem og hugverkaréttinda á sviði iðnaðar (einkaleyfi, vörumerki, hönnun og tengd réttindi). Danska einkaleyfa- stofan hefur t.a.m. frá öndverðu ann- ast rannsókn á landsbundnum ís- lenskum einkaleyfaumsóknum. Þá hafa Norðurlöndin jafnan reynt að samræma löggjöf sína á sviði hug- verkaréttar sem og tilheyrandi reglu- gerðir og reglur er varða fram- kvæmd, auk þess að skiptast reglulega á upplýsingum um hvaðeina sem varðar meðferð og umsýslu á þessu sviði. Nordic Patent Institute - Nor- ræna einkaleyfastofnunin Nýjasta afsprengi þessarar nor- rænu samvinnu á sviði hugverkarétt- inda er Nordic Patent Institute – Norræna einkaleyfastofnunin, sem hóf starfsemi sína hinn 1. janúar 2008. Nordic Patent Institute (hér eftir NPI) var stofnsett af ríkisstjórnum Danmerkur, Noregs og Íslands sem samstarfsverkefni um einkaleyfa- rannsóknir. NPI, sem er staðsett í Taastrup í Danmörku, byggir starf- semi sína á þeim mannauði sem þegar er til staðar hjá einkaleyfastofum að- ildarríkjanna með það að markmiði að starfrækja öfluga fjölþjóðlega rann- sóknarstofnun en viðhalda á sama tíma þeirri þekkingu og reynslu sem til staðar er innan aðildarríkjanna. Meginverkefni NPI er að rannsaka alþjóðlegar einkaleyfaumsóknir með tilliti til nýnæmis og frumleika, en til að teljast einkaleyfishæfar verða upp- finningar að teljast nýjar á heimsvísu, frumlegar og hagnýtanlegar í at- vinnulífi. Það er verkefni stofnana eins og NPI að framkvæma þessar rannsóknir og hefur NPI m.a. hlotið sam- þykkt Alþjóða- hugverkastofnunarinnar sem alþjóðleg rann- sóknastofnun („PCT authority“). Þannig geta íslenskir aðilar að PCT- umsóknum (alþjóðlegum umsóknum) valið NPI sem rannsóknarstofnun fyrir umsóknir sínar. NPI tekur einn- ig að sér að framkvæma leitir í einka- leyfagagnabönkum og greiningar fyr- ir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir, þ.m.t. á Íslandi. Niðurstöður slíkra leita geta t.a.m. gagnast fyrirtækjum sem vinna að rannsóknum og þróun en með þeim má ná fram gríðarlegum sparnaði með því að kortleggja einka- leyfi og gögn sem þeim tengjast á því sviði sem þróunin fer fram á. Með því má forðast tvíverknað og sníða hjá málsóknum vegna brota á einkaleyf- isrétti annarra. Lögmannsstofur og umboðsmenn einkaleyfa hafa einnig nýtt sér slíkar leitir sem oft eru meðal mikilvægustu gagna í málaferlum sem tengjast einkaleyfum. Rannsak- endur NPI hafa mikla reynslu við leit og greiningar af þessu tagi og eru mörg af stærstu fyrirtækjum heims á svið nýsköpunar, sem og stærstu lög- mannsstofur heims á sviði hugverka- réttar, meðal viðskiptavina NPI. Við rannsóknir og leitir hefur NPI á sínum snærum meira en 150 vel menntaða og reynda rannsakendur staðsetta hjá dönsku og norsku einka- leyfastofunum, sem allir hafa meist- aragráðu í sínu fagi og margir dokt- orsgráðu að auki. Nánari upplýsingar um NPI má finna á heimsíðu stofn- unarinnar, www.npi.int. Á alþjóðlega hugverkadeginum er við hæfi að vekja athygli á mikilvægi þess að vernda hugvit og hugmyndir. Á þeim endurreisnartímum sem nú fara í hönd er nauðsynlegt að hlúa vel að íslensku hugviti og nýsköpun. For- senda hámörkunar þeirra verðmæta sem af nýsköpun leiða er að standa rétt að verndun slíkra réttinda. Hugverk í alþjóð- legu umhverfi Eftir Grétar Inga Grétarsson Grétar Ingi Grétarsson »NPI, sem er sam- starfsverkefni Dan- merkur, Noregs og Ís- lands um einkaleyfa- rannsóknir, er nýjasta afsprengi norrænnar samvinnu á sviði hug- verkaréttar. Höfundur er lögfræðingur og aðstoð- arforstjóri Nordic Patent Institute Íþróttaskólinn á Laugarvatni hefur að mínu áliti svo til alveg brugðist dansinum. Einhver ákvæði eru um það að skólinn eigi að kenna nem- endum sínum dans sem þeir svo geti kennt sínum nemendum. Ég segi það satt að ég veit ekki um neinn karlkyns íþróttakennara sem hefur kennt dans og aðeins nokkra kven- kyns íþróttakennara og það þá eftir að hafa farið í dansskóla. Hver er ástæðan? Ég tel að ekki sé nokkur vafi á því að lélegu skipulagi sé mest um að kenna. Verðandi íþróttakenn- urum var ætlað að læra of mikið á of skömmum tíma. Því í ósköpunum læra íþrótta- kennarar ekki gömlu dansana virki- lega vel? Þá á ég við dansana og alla leikina eins og að marsera, heimsálf- urnar, blómin o.s.frv. Þá hefði verið hægt að kenna þá í leikfimitímum og ég er þess fullviss að allir hefðu haft gaman af. Gömlu dansarnir eru ekki gamaldags heldur auðveldir, fullir af fjöri og góðum hreyfingum. Það að þú verður ekki mikið var við að fólk sé að dansa gömlu dans- ana er engin sönnum fyrir neinu öðru en því að á voru landi er svo- kölluð „pöbbamenning“ allsráðandi. Það er hávær, að mestu engil- saxnesk tónlist, sem dansað er eftir á litlum bleðli sem sannarlega hefur ekki tekið mikið af barplássinu. Dansinn er svo þýðingarmikill. Hann er sannarlega innri þörf allra manna og við eigum að leggja miklu meiri áherslu á að allir læri að dansa og það sé hægt að iðka dans við við- unandi ástæður. Á því munu allir græða. HEIÐAR RÓBERT ÁSTVALDSSON danskennari. Íþróttakennaraskólinn og dansinn Frá Heiðari Róbert Ástvaldssyni ✝ Leif NicolaiSteindal fæddist 19. október 1939 í Måløy í Noregi. Hann lést fimmtudaginn 15. apríl á Sjúkrahúsi Akraness. Foreldrar hans voru hjónin Ni- kolai Kornelius Stein- dal, bryggjusmiður, f. 1. maí 1882, d. 2. júlí 1948 og Guðbjörg Jenný Helgadóttir, f. í Keflavík 21. júní 1903, d. 6. október 1974 í Måløy, Noregi. Systkini Leifs voru þau Atle Martin Kåre Steindal, fv. ofursti, f. 5. júlí 1936, d. 16. október 2009 og Guðbjörg Nelly Flister, f. 6. maí 1941, d. 13. apríl 2003. Hinn 27. nóvember 1965 kvæntist Leif eft- irlifandi eiginkonu sinni, Rósönnu Louise Webb, f. 3. febrúar 1943 í Keflavík. Börn þeirra eru 1) Helgi Sigurvin, bókavörður á Akranesi f. 25. jan- úar 1967, 2) Jenný Anna, f. 2. febrúar 1969, d. 17. október 1969 3) Anna Lára, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Akranesi f. 1. desem- ber 1970, gift Bjarna Gunnarssyni, f. 12. janúar 1968. Börn þeirra eru Nikulás Nói, f. 10. maí 2002 og Kolbeinn Tumi, f. 20. desember 2004. 4) Þorkell Jóhann, æskulýðsfulltrúi Blindrafélagsins, f. 28. ágúst 1980. Leif ólst upp í Måløy til fimmtán ára aldurs, en þá sigldi hann á skólaskipinu Statsraad Lehmkuhl til New York og stundaði síðan sjómennsku á norskum farskipum í siglingum milli Asíu og Ameríku. Til Íslands kom hann í apríl árið 1964 og stundaði fyrst sjómennsku frá Vestmannaeyjum. Árið 1965 réð hann sig í bryggjusmíði í Njarðvíkurhöfn, en þar hafði faðir hans, Nicolai Kornelius, haft um- sjón með smíði nýrrar stein- bryggju á árunum milli stríða og kynnst þar eiginkonu sinni, móður Leifs. Næstu ár starfaði Leif við virkj- unarframkvæmdir við Búrfells- virkjun. Árin 1968-1972 bjuggu þau hjónin í Bandaríkjunum, en eftir heimkomuna starfaði Leif sem verkstjóri við Sigölduvirkjun þar til verkinu lauk. Eftir starfsþjálfun í Noregi hóf hann störf hjá Íslenska járnblendi- félaginu árið 1979, þar sem hann starfaði til ársins 2009, lengst af sem verkstjóri í daggengi en síðar við rannsóknir og þróun. Leif var mikill söngmaður, hann starfaði með Grundartangakórn- um frá upphafi og um tíma með Kirkjukór Akraneskirkju. Jarðsungið verður frá Akra- neskirkju í dag, mánudaginn 26. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Það er af mörgu að taka þegar Leif Steindal er minnst. Hann var engum líkur. Ég kynntist honum þegar ég byrjaði að starfa hjá Íslenska járn- blendifélaginu, nú Elkem Ísland, fyr- ir átta árum. Þar hafði hann unnið frá upphafi, fyrst við byggingu verk- smiðjunnar og síðar sem yfirmaður við gerð eldfastra efna. Leif var af- skaplega hugmyndaríkur og óhrædd- ur við að fara ótroðnar slóðir enda liggja eftir hann margar nýjungar sem verða notaðar löngu eftir hans dag. Menntun hans var einungis í skóla lífsins en þar virðist hann hafa tekið betur eftir en flestir aðrir. Þeg- ar Leif fór á flug voru fáir sem gátu fylgt honum eftir. Leif var einnig afskaplega skemmtilegur maður. Af honum eru til óteljandi gamansögur og uppátæki hans og tilsvör voru oft óborganleg. Hann gat verið mjög stríðinn en það var samt alltaf vel meint. Hann hafði sérstaklega gaman af að taka yfir- menn fyrirtækisins á beinið og gat þá sagt: „Ef þú passar þig ekki gætirðu lært eitthvað.“ Þrátt fyrir að Leif hafi einkum verið þekktur fyrir létt skap og gamansemi þá var hann djúpur persónuleiki og íhugull. Hann var einkar hjartahlýr og dáði til að mynda barnabörnin mikið og þótti gaman að segja frá þeim. Leif lét af störfum síðastliðið haust fyrir aldurs sakir. Mér brá við þegar síminn hringdi snemma morguns og mér var sagt að Leif hefði látist dag- inn áður. Samt kom það ekki að öllu leyti á óvart því Leif var ekki heilsu- hraustur og hafði skömmu áður greinst með alvarlegan sjúkdóm. Fyrir hönd Elkem Ísland þakka ég fyrir þriggja áratuga trúmennsku og farsælt samstarf. Eftirlifandi konu, börnum og barnabörnum votta ég innilega samúð. Persónulega þakka ég þau forréttindi að hafa kynnst Leif Steindal. Þórður Magnússon. Þegar Leif leit við á rannsókna- stofunni og sagði íbygginn á svip: „Hurru, Jón,“ þá var eitthvað í vænd- um. Leif hafði marga bolta á lofti í einu og talaði oft um þá alla samtímis. Stundum áttaði ég mig ekki alveg á því hvert hann var að fara. Þegar ég hafði séð ljósið fann ég hins vegar strax að það var heill þráður í frum- legri hugsuninni og hann oft ansi sterkur. Í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga er margt sem runnið er undan rifjum Leifs Steindals. Einna hæst ber varnarlagið sem sett er inn í deiglur sem eiga að halda rauðglóandi málmbráð. Það skírðum við í höfuðið á uppfinningamanninum, Steindalít. Nafnið ber það með sér hversu traust, sterkt og endingargott það er, – eins og sálin í honum sjálf- um. Í verksmiðjunni eyddum við bestu árum ævi okkar í starfi og í leik, því spaugið var aldrei langt undan þar sem Leif var. Og þegar þurfti að hressa upp á sálartetrið var ekkert betra en að biðja Leif að fara með kvæði eftir Jakob Sande sem hann Leif Nicolai Steindal ✝ Guðrún LíndalBjörnsdóttir skrifstofutæknir, Hamravík 32, Reykja- vík, fæddist á Húsa- vík 28. maí 1952. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi hinn 19. apríl sl. For- eldrar Guðrúnar eru Jóna Hólmfríður Guð- jónsdóttir, fv. síma- dama í Reykjavík, f. 18. mars 1934, og Björn Stefán Líndal Sigtryggsson, fv. bif- vélavirki á Húsavík, f. 21. maí 1934. Guðrún átti fimm systkini, elst er Fríða Ágústa Björnsdóttir, maki Sigurjón Hauksson, Víðir Ágeirs- son, kona hans Christina Lillian Nordh, Ómar Ásgeirsson, kona hans Ásta Halldórs- dóttir, Björk Ásgeirs- dóttir, Rafn Líndal Björnsson, kona hans Sigurdís Reyn- isdóttir. Guðrún eignaðist Hrafnhildi Jónu Jón- asdóttur, f. 26. apríl 1969, með fyrri manni, Jónasi Má Ragnarssyni, mat- reiðslumeistara í Reykjavík. Maki Hrafnhildar er Gunn- ar Jóhann Elísson. Börn þeirra eru Ragnhildur Rún, f. 28. september 1994, d. 16. apríl 1998, Jónas Elís, f. 29. október 1997, og Rúnar Alexander, f. 15. desember 1999. Guðrún giftist 15. nóvember 1973 Sigurði Gísla Jó- hannssyni bifvélavirkja, f. 18. sept. 1950, foreldrar hans voru Hrefna Elíasdóttir, f. 24. feb. 1920, d. 3. júní 2006, og Jóhann Ingvar Gísla- son, f. 27. ágúst 1917, d. 25. des. 2007. Með Sigurði átti hún tvö börn, dóttir þeirra er Þóra Björk Líndal, f. 10. október 1974, maður hennar er Páll Ólason. Þóra á tvær dætur, Sigrúnu Maríu Líndal, f. 22. janúar 1994, og Daníelu Rún Líndal, f. 25. janúar 2004. Sonur þeirra er Sæv- ar, f. 31. ágúst 1976, kona hans er Bryndís Friðjónsdóttir. Börn Sæv- ars og Bryndísar eru Hermann Bæring, f. 14. maí 1996, Sara Ýr, f. 3. ágúst 1999, Róbert Örn, f. 2. febr- úar 2002, og Ester Rós, f. 14. ágúst 2005. Útför Guðrúnar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 26. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku mamma mín, í dag fyrir ná- kvæmlega 41 ári sáumst við í fyrsta sinn móðir og dóttir. Í dag kveðjumst við að sinni. Það sem við áttum sam- an eigum við tvær og ég mun ætíð geyma þig í mínu hjarta og muna okkar góðu samtöl sem oft vöruðu langt fram á kvöld og erfitt var að slíta. Þú varst minn klettur að leita til og skipti engu máli hvað mig vantaði, alltaf bjargaðir þú mér um alla skap- aða hluti. Aldrei fannst þér það neitt mál þótt þú þyrftir að fara búð úr búð til að redda skrýtnum hlutum fyrir okkur litlu fjölskylduna í útlöndum þegar löngunin í eitthvað íslenskt var öllu yfirsterkari og gleðin mikil hjá okkur þegar pakkarnir frá ömmu GunnuTunnu komu. Ég verð ætíð þakklát þeirra stunda sem við áttum saman sl. haust þegar þið Siggi kom- uð í heimsókn og sáuð með eigin aug- um hvernig við þrifumst fjarri ykkur á erlendri grundu og síðasta samtalið okkar sem auðvitað varaði langt fram á nótt mun ég geyma að eilífu. Það verður aldrei fyllt þitt skarð það veit ég og söknuðurinn er sár og ótrúlegt að hugsa lífið án þín, elsku besta mamma mín. Ég mun gera mitt besta til að halda uppi heiðri þínum og hugsa um Sigga, Þóru, Sævar og krakkana okkar eins vel og mér er unnt. Mamma mín nú kveð ég þig að sinni með söknuði en í hjarta mínu geymi ég minninguna um mína góðu mömmu. Hrafnhildur Jóna. Fjaran er full af undrum fegurð í henni býr. Þar gátum við setið og samið sögur og ævintýr Smíðað háreistar hallir hús og vegi og brýr. Í sandinum geymist sagan og samt er hann alltaf nýr. Yrki ég einn í sandinn aldan staðina þvær. Horfnir hágværir leikir hláturinn nú er fjær. Fjörubyggingar fallnar flóðið sléttaði þær. En sandurinn er hinn sami sandurinn frá því í gær. Hafið úr botninum brýtur björgin í fjörusand. Bylgjurnar slípa brotin og bera síðan á land. Klettarnir hverfa að lokum en kærleikans silfurband bindur eilífð við eilífð Ekkert því vinnur grand. (Hilmir Jóhannsson.) Elsku systir mín og vinkona. Ljóðið hans Bubba í Brautarholti er táknrænt fyrir æsku okkar á Húsavík. Ósjaldan lékum við okkur saman í fjörunni ásamt mörgum okk- ar æskuvinum. Busluðum í sjávar- málinu, tíndum skeljar, fleyttum kerlingar, veiddum krossfiska og gættum þess að stíga ekki á mar- Guðrún Líndal Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.