Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 22

Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 22
22 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ALDREI NOTA TANNÞRÁÐ NÁLÆGT BLANDARA ÞÚ GLEYMDIR EINNI TÖNN AÐEINS TÓLF DAGAR Í AFMÆLI BEETHOVEN ÞESSAR TILKYNN- INGAR ERU Í BOÐI OKKAR HANN SEGIR AÐ ÞETTA SÉ EKKI SANNGJARNT. NÁGRANNAVARSLAN HEFÐI ÁTT AÐ SJÁ OKKUR KOMA GRÍMUR, ÉG HEF ÁHYGGJUR AF ELLA LETIDÝRI. ÉG HELD HANN GÆTI VERIÐ ÞUNGLYNDUR NÚ? HANN HEFUR VERIÐ VIÐ BORÐIÐ Í MARGA KLUKKUTÍMA ÁN ÞESS AÐ SNERTA MATINN SINN RÚNAR, HANN ER EKKI EINU SINNI KOMINN UPP Á STÓLINN ÉG SAGÐI MÖMMU AÐ ÉG MYNDI HJÁLPA TIL VIÐ KOSNINGABARÁTT- UNA HJÁ OBAMA ER ÞAÐ? ER FÓLKIÐ SEM VINNUR ÞAR EKKI FREKAR OFSTÆKIS- FULLT? ALLIR SEM TAKA ÞÁTT Í KOSNINGA- BARÁTTU VERÐA FREKAR ÆSTIR VIÐ FENGUM NÝJAN SJÁLF- BOÐALIÐA YES WE CAN! YES WE CAN! VILTU SAFA? ÉG VERÐ AÐ VITA HVORT ÞÚ ERT HRIFIN AF MÉR EÐA...? SVARAÐU HONUM MARÍA ÉG VÆRI SJÁLFUR TIL Í AÐ HEYRA SVARIÐ ÞÚ! ÞÚ HVER? Rauðaviður rauðgreni? Í fallegri mynd um eyðibyggðina á Horn- ströndum og í Jökul- fjörðum, sem Sjón- varpið sýndi að kvöldi sumardagsins fyrsta, minntist Ómar Ragn- arsson á rekavið sem hann kallaði rauðavið. Það sagði hann að hefði verið rauðgreni. Ég minnist þess að reynd- ur smiður sagði mér að þetta heiti hefði verið notað um rauðleitan gæðavið sem hefði ver- ið lerki sem roðnar í sjónum. Annað orð sem kom fyrir í þessari mynd vakti einnig athygli mína en það var þegar orðið að „staursetja“ var haft um það þegar ekki var hægt að koma líki til kirkju að vetrarlagi en það geymt í snjónum og staur látinn sýna hvar það lá. Vera kann að hér sé rétt greint frá orðfæri vestra en að „staur- setja“ er þekkt í nokk- uð annarri merkingu, a.m.k. úr Íslendinga- byggðum í Kanada. Þar þekktist þegar enginn prestur var til- tækur að lík voru jarð- sett en staur, sem náði upp úr yfirborði jarðar, settur ofan á kistuna. Þegar prestur fór svo um byggðina síðar var staurinn dreginn upp og presturinn kastaði rekum með viðeigandi orðum niður í holuna eftir staurinn. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Ást er… … þegar einhver setur þig á sérstakan stall. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofur opnar kl. 9- 16.30, útskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Handavinna, smíði og útskurður kl. 9, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Dalbraut 18-20 | Myndlist/postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, bænastund/umræða kl. 9.30, leikfimi kl. 11, upplestur kl. 14. Listamaður mán. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, spjall/kaffi kl. 13.30, línu- dans kl. 17.30, samkvæmisdans byrj- endur kl. 18.30. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og 13, leiðbeinandi í handavinnu til hádegis, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræfing kl. 16.45, tréskurður kl. 16.45, skapandi skrif kl. 20. Félagsstarf Gerðubergi | Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra kemur í heimsókn kl. 9. Vinnstofur opn. kl. 9. Frá hádegi spilasalur opinn, kóræf. kl. 15. Á morgun kl. 13 leggur Gerðuberg- skór af stað í heimsókn á Hrafnistu í Hafnarf. Fimmtud. 29. apríl farið í heimsókn til eldri borgara í Hruna- mannahr., s. 575-7720. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- lín kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30. Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, út- skurður, bænastund kl. 10, myndlist kl. 13. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10, G-kórinn kl. 10.30, tréskurður og glerbræðsla kl. 13, botsía og vist kl. 13.30, tækjasalur í Hress Ásvalla- laug kl. 13.30, frítt fyrir 67+. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30, vinnustofa kl. 9, brids kl. 13. Hæðargarður 31 | Morgungestur Steinunnar Finnboga er Gerður G. Bjarklind kl. 9.30. Farið til Stykk- ishólms frá Sléttuvegi 11 kl. 9.30, síð- an í Hæðargarð 31, að lokum Dalbraut 18-20. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30-13. Sjá glod.is. Korpúlfar Grafarvogi | Í dag kl. 10 ganga hjá gönguhóp Korpúlfa í Egils- höll. Á morgun sundleikfimi í Graf- arvogslaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við hringborðið, spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks-/bókastofa kl. 11.30, botsía kl. 13.30, söngstund kl. 15. Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9, botsía kl. 10, samvera með djákna kl. 14. Útskurður, opin vinnustofa kl. 13. Vesturgata 7 | Handavinna, botsía, leikfimi kl. 9.15, kóræfing og tölvu- kennsla kl. 13, kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bókband, postulínsmálun kl. 9, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, upplestur framhaldssögu kl. 12.30, handavinnustofa opin frá kl. 13, frjáls spilamennska og stóladans kl. 13.15. Það er gömul þjóðtrú að menngeti kallað yfir sig ógæfu með því að fikta við skáldskap. Að því lýtur þessi gamli húsgangur: Að yrkja kvæði ólán bjó eftir flestra sögu, en gaman er að geta þó gert ferskeytta bögu. Sem stingur í stúf við stöku Andrésar Björnssonar: Ferskeytlan er Frónbúans fyrsta barnaglingur, en verður oft í hendi hans hvöss sem byssustingur. Jón S. Bergmann orti við fráfall hans: Verða ekki vísnamát var þitt barnaglingur; er því vinum vinarlát verra en byssustingur. Og skáldin höfðu áhyggjur af því, hvernig færi fyrir ferskeytl- unni eftir þeirra dag. Nema Páll Ólafsson hafi verið að gera að gamni sínu, þegar hann orti: Þegar mín er brostin brá, búið Grím að heygja, Þorsteinn líka fallinn frá ferhendurnar deyja. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Þessi staka varð fleyg: Þó að Páli bresti brá bili Grím að skrifa Þorsteinn líka falli frá ferhendurnar lifa. Páll dó á Þorláksmessu 1905, og á afmælisdegi Ragnhildar ekkju hans og brúkaupsdegi þeirra hjóna sendi Þorsteinn henni kveðju og ávallt síðan meðan hann lifði: Hver á nú að heilsa þér hlýjum bragarorðum? Nú er 5. nóvember, nú söng annar forðum. Og í gegnum tíðina hafa menn borið misjafnan hug til skáldanna. Þessi vísa er frá 18. öld: Sigurður Gíslason kvað margt, sá var skáld í Dölum; sumt var gaman, sumt var þarft, sumt vér ekki um tölum. Úti í Kaupmannahöfn var ort: Að finna og hugsa í ferskeytlum finnst mér löngum gaman, þegar eg fer einförum með ólund dögum saman. Vísnahorn pebl@mbl.is Af þjóðtrú og ferhendum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.