Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 5
S J Ó M A N N A D A G U R I N N 2 0 1 0 Aukum öryggi sjómanna Sjórinn er hættulegur vinnustaður Um aldirnar hefur sjórinn verið helsta auðlind Íslendinga og samgönguæð. Mikill fjöldi íslenskra sjómanna hefur farist við störf sín á hafinu auk þeirra fjölmörgu sem hafa slasast. Á síðustu áratugum hafa orðið miklar framfarir í slysavörnum og 2008 var fyrsta og eina árið í sögunni án dauðaslysa við Íslandsstrendur. Öflugar slysavarnir kosta ómælda vinnu og fjármagn – til að geta haldið áfram á sömu braut þurfa allir landsmenn að leggjast á eitt. Stöndum þétt við bak okkar vösku sjómanna og eflum öryggi þeirra með því að kaupa merki sjómannadagsins 2010. Tökum öll vel á móti sölufólki á næstu dögum. Félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar taka þátt í sölu merki sjómannadagsins en félagið rekur m.a. Slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Sýnum stuðning í merki!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.