Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 40
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir um ári fluttist Benedikt Her- mann Hermannsson til Edinborgar í Skotlandi, fylgdi eftir eiginkonu sinni sem stundar þar nám í arki- tektúr. Fyrir vikið lagði hann af hljómsveit sína hér heima um hríð, en hélt þó áfram að starfa sem Benni Hemm Hemm, fann sér nýja sam- starfsmenn og samdi nýja tónlist. Enn að spila og semja Benni segir að í raun sé hann ekki að fást við svo ólíka hluti ytra og hann gerði hér heima; hann sé enn að spila og semja tónlist, en vitanlega töluverður munur á því að starfa að tónlist þar ytra. „Það er frábært að vera í músík hér heima, ótrúlega frá- bært, en að sama skapi aðeins of þægilegt,“ segir Benni og kímir. „Úti verð ég að vinna öðruvísi, get ekki hringt í tuttugu manns og kallað saman í tónleika sama kvöldið og ég lærði því að spila einn og fór því að semja öðruvísi lög.“ Að þessu sögðu þá er Benni búinn að koma saman hljómsveit þar ytra, eða réttara sagt finna sér samstarfsmenn sem hann lék með í Íslensku óperunni í gær- kvöldi í tón- og textaverkinu Ryk á Book, sem verður einnig flutt á Ak- ureyri á morgun. Skoski söngvarinn Alasdair Ro- berts kemur fram í verkinu, en hann segist Benni hafa séð á tónleikum fyrir einskæra tilviljun og hrifist af. „Hann er með svo sérstakan skoskan hreim og mig langaði að fá hann til að syngja með mér, svo fullkominn kandídat í það sem ég var búinn að semja og svo líka það að hann er æð- islegur söngvari,“ segir Benni og bætir við að Blásarasveitin hafi aftur á móti verið með frá upphafi, ef svo má segja, því hann sá verkið fyrir sér í óráðsdraumi og þar var hún með. „Ég var fárveikur, í hitamóki, og sá þá fyrir mér hvernig tónlist ég vildi semja næst og hvernig hún ætti að hljóma. Þegar ég var kominn með mynd af henni áttaði ég mig á því að ég var orðinn algjörlega frískur,“ segir Benni og brosir að minning- unni. Óvenjulegt verk Verkið Ryk á Book er um margt óvenjulegt í tónsmíðasögu Benna og þá ekki síst fyrir það að hann einsetti sér að gefa verkinu meiri tíma en hann var vanur að eyða í tónsmíðar, en líka hvernig lögin mynda eina heild. „Mig langaði mikið til þess að gera eitthvert stórt verk og þetta er gríðarlega mikið af tónlist, efni í tvær eða þrjár Benna Hemm Hemm-plötur. Þetta er líka meira textaverk en ég hef þorað að fara út í áður, bæði hvað það er mikið af orð- um og svo líka það um hvað textarnir fjalla. Það er ákveðin krafa í enskri textagerð að menn séu að syngja um eitthvað alvöru, að syngja játn- ingalög og mér hefur alltaf þótt það frekar glötuð pæling. Mig langaði til að prófa að gera texta sem segja það sem ég myndi aldrei þora að segja við neinn og í því samhengi þá að það er sungið á ensku og skosku í einu og þá skilur áheyrandinn það ekki, það maskast út og þá skilur fólk vonandi ekki hvað ég er að segja. Ég syng um hluti sem ég óttast mjög mikið, sem ég hef mjög miklar áhyggjur af og það sem mig langar helst til að gera.“ Þegar söngvarar og listamenn syngja um hluti sem standa hjarta þeirra næst er það oft kallað að þeir séu að „opna sig“ en að mati Benna er það oftar en ekki gert til þess að heilla áheyrandann, en ekki endilega til að tjá raunverulega tilfinningar. „Mér hefur alltaf þótt það …“ segir Benni, hugsar sig um smástund og heldur svo áfram: „… ógeðslegt að vera að syngja um fjölskylduvanda- mál og einkalíf. Auðvitað er það oft mjög fallegt, en ég kann ekki við þá kröfu í enskri textagerð að textarnir eigi að vera játningatextar, að fólk eigi sífellt að vera að syngja sann- leikann um líf sitt,“ segir Benni, en vendir svo sínu kvæði í kross: „Mér finnst þetta þó oft mjög flott og þess vegna er ég að gera þetta, þó það sé líka klígjulegt,“ segir hann og kímir. „Sumir eru snillingar í því að gera texta og ég á marga vini sem geta það. Svo eru aðrir sem ég þekki til sem syngja um líf sitt og eru að ljúga, segja frá lífsreynslu sem þeir hafa ekki upplifað. Mér finnst flest miklu meira spennandi en að tala um mig og hvað mér líði illa heima hjá mér eða vel og því fannst mér það pínu spennandi verkefni að velta því fyrir mér hvað ég myndi skrifa um ef ég setti mér það verkefni að gera persónulega texta og gekk mjög vel að finna umræðuefni sem ég get eig- inlega ekki talað um.“ Í gærkvöldi gafst áheyrendum í Óperunni færi á að heyra hvað það er sem Benni Hemm Hemm vill eig- inlega ekki tala um, en getur þó sungið um þegar hann er búinn að flétta saman við það söng með skosk- um hreim. Á morgun fá svo Norð- lendingar færi á að hlusta í Ketilhús- inu, en Ryk á Book verður flutt þar kl. 15:00. Það sem ekki má segja Morgunblaðið/Ómar Tilviljun Benni Hemm Hemm og Alasdair Roberts á æfingu með Blásarasveit Reykjavíkur. Skoskur hreimur Roberts hreif Benna.  Benni Hemm Hemm treður upp í Ketilhúsinu á Akureyri á morgun og flytur nýtt texta- og tónverk  Textarnir, tja … það má eiginlega ekki tala um þá 40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010  Hún verður þétt dagskráin hjá skoska tónlistamanninum Alasdair Roberts næstu dagana hér á landi. Í gærkvöld spilaði hann með Benna Hemm Hemm í Íslensku óperunni á Listahátíð í Reykavík. Hann kemur svo tvisvar fram í dag. Fyrri tón- leikarnir eru í búðinni Havarí kl. 16.30 og þeir seinni á skemmti- staðnum Venue í kvöld þar sem Ey- steinn Pétursson og Markús Bjarnason sjá um að hita upp. Á morgun endurtaka svo Roberts og Benni Hemm Hemm leikinn fyr- ir norðan á Akureyri Int- ernational Music Festi- val (sjá umfjöllun um Ryk á Book hér til hliðar) en ferðalaginu lýkur með tónleikum í Leikhúsinu á Möðruvöllum þar sem Ro- berts mun flytja skoska þjóðlaga- söngva. Spilar á fimm tón- leikum á fjórum dögum Fólk Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson mun á morgun kl. 14 opna með gjörningi sýninguna Moso Mongo Memory Mix í Listasal Mosfells- bæjar. Í tilkynningu um sýninguna segir að Snorri ætli að koma á óvart og vilji ekkert gefa upp um hvað hann ætli að sýna. Blaðamaður reyndi þó að ná einhverju upp úr honum. -Ætlarðu ekkert að segja um þessa sýningu? „Ég vil helst að þetta komi á óvart,“ svarar Snorri en segir þó að ljósmyndir verði á sýning- unni og myndbandsverk. -Nú sá ég á Fésbókinni að þú ert að leita að styrkjum til að geta sett upp ástarpíramídann þinn, Pyramid of Love, í Palestínu í haust. „Þetta er búið að standa yfir lengi, ég ákvað þetta fyrir um ári, þegar Ísraelsmenn réðust inn í Palestínu,“ segir Snorri. Hann hyggst smíða píramídann úr skotheldu gleri í Tel Aviv, flytja hann til Palestínu og sitja inni í honum og hug- leiða og breiða þannig út fallega og góða orku. Píramídann hefur Snorri sett upp í Reykjavík og Feneyjum. „Ef mér tekst þetta hugsa ég að það eigi eftir að hafa stórfenglegar afleiðingar,“ segir Snorri. En hvað mun þessi gjörningur kosta? „Ég mun smíða píramídann í Ísrael, í Tel Aviv, úr skotheldu gleri. Það kostar smá pening. Og svo er það flutningurinn og ferðalagið, við ætlum að reyna að fara inn á Gaza. Þannig að þetta er fyrirtæki sem kostar nokkrar milljónir.“ Snorri biður þá sem vilja styrkja hann að senda sér tölvupóst á snorri.asmundsson@gmail.com. helgisnaer@mbl.is Ástarpíramídi úr skotheldu gleri í Palestínu Snorri Les í tarot-spil með hárkollu á höfði.  Hitaveitan: Með lögum skal land- ið verma er ný safnplata frá Kimi Records sem kemur út á þjóðhátíð- ardag okkar Íslendinga, 17. júní næstkomandi. Á plötunni er að finna 14 lög frá fjölbreyttum hópi tónlistarmanna og hljómsveita og segja útgefendur að rauði þráður plötunnar sé fjörugt sumar sem sé rétt handan við hornið. Mikið er um áhugavert samstarf á plötunni og má t.d. nefna vest- firskt samstarf Mugison og Reykjavík! en sveitirnar tóku upp lagið „Sumarást“ fyrir vestan, á Flateyri og Suðureyri. Ný sumarsafnplata frá Kimi Records Flytjendur í Ryk á Book eru auk Benna og Alasdairs Roberts Blásarasveit Reykjavíkur undir stjórn Tryggva M. Baldvins- sonar. Fyrri tónleikar þeirra voru í Íslensku óperunni í gærkvöldi, en síðan verður sami hópur á ferð á Akureyri og leikur í Ket- ilhúsinu á morgun kl. 17. Þeir tónleikar eru í samvinnu við AIM, Alþjóðlega tónlistarhátíð á Akureyri. Ryk á Book BENNI MEÐ BLÁSARASVEIT  Örlygur Smári, höfundur Evr- óvisjónlagsins „Je Ne Sais Quoi“, er ekki par sáttur við þá ákvörðun út- varpsstjóra að öll lögin sem taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins verði á íslensku næst þegar hún fer fram. „Síðast þegar þetta var reynt var árið 2007. Ég hélt að sá tími væri liðinn :-) Er ekki kominn tími til að láta af þessum rembingi með tungumálið. Ekki heldur eins og þessi söngvakeppni sé eini vett- vangurinn fyrir íslenska texta. Ís- land orðið fjölþjóðlegt samfélag, það býr fólk hérna sem hefur annað móðurmál en íslensku … Það má þá ekki syngja á pólsku lengur … eða hvað? :-),“ skrifar Örlygur á Fés- bókinni. „Ég held að Páll vilji vel með þessu. Held að hann hafi bara ekki hugsað þetta til enda,“ bætir hann síðar við í athugasemd. Ekki látið af rembingi með tungumálið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.