Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Eftir nokkra bið snúa vin-konurnar úr Sex and theCity aftur í kvikmynda-hús. Þemað að þessu sinni er hjóna- og fjölskyldulífið; þegar hér er komið sögu eru tvö ár liðin frá því að Carrie og Big létu splæsa sig sam- an hjá dómaranum, Charlotte og Harry eiga tvær litlar krefjandi stúlkur, Miranda á í stríði við yf- irmann sem ber enga virðingu fyrir henni og Samantha er … Samantha. Þær eru allar að komast að því að „hamingjusöm það sem eftir er“ er ekki endilega það sem gerist eftir að maður fær það sem maður vill, en vandamálin sem fá þær til að hlaupa í símann og klaga hvor í aðra eru það sem venjulegt fólk myndi kalla „lúx- usvandamál“; Big vill frekar vera heima að horfa á sjónvarpið og borða skyndibita en að fara með Carrie út á lífið, Charlotte þarf að fá frí frá stelp- unum sínum og er nöguð af sam- viskubiti, Samantha tekur fjöldann allan af vítamínum og hormónum til að vinna á Elli kerlingu og Mir- anda … jú, allt í lagi, ömurlegur yf- irmaður er raunverulegt vandamál. Það er best að segja ekki meira um söguþráðinn, svo þunnur er hann, nema það að Samatha tekur vinkon- urnar með sér í viðskiptaferð til Abu Dhabi og þar þurfa þær allar að horf- ast í augu við djöflana sem þær draga. Þegar framleiðsla myndarinnar var enn á undirbúningsstigi kom til tals að draga örlítið úr munaðinum sem einkennir líf vinkvennanna, taka tillit til ástandsins á fjármálamörk- uðum og aðlaga myndina að nýjum raunveruleika. Aðalleikkona mynd- arinnar, Sarah Jessica Parker, lét þó fljótlega hafa eftir sér að hún sæi ekki alveg hvernig það ætti að ganga upp; tískan og lífsstíllinn væri það sem gerði Sex and the City að Sex and the City. Svo virðist sem framleiðendur myndarinnar hafi verið sama sinnis; Sex and the City 2 er Sex and the City í tíunda veldi. Það líða varla meira en fjórar mínútur af myndinni án þess að kvartettinn sé búinn að hafa fataskipti, svo ekki sé talað um annan lúxus; skartgripi, íbúðir, hótel, bíla og svo framvegis. Þetta er eigin- lega subbulegt og gerir það að verk- um að í fyrsta lagi verður afar erfitt að reyna að finna sig í persónunum og í öðru lagi; að fanga þennan yfirdrifna lúxus tekur tíma sem hefði betur ver- ið eytt í að gefa söguþræðinum ein- hverja dýpt. Það er engu líkara en það hafi fyrst verið ákveðið hvaða föt- um stöllurnar ættu að klæðast og sagan svo skrifuð í kringum bún- ingana. En það er tvennt til ráða þegar maður ætlar að taka afstöðu til mynd- arinnar: maður getur annaðhvort lát- ið neysluveisluna fara í taugarnar á sér, eða maður getur látið berast með straumnum og notið myndarinnar fyrir það sem hún er. Carrie, Char- lotte, Miranda og Samantha eru ennþá sjálfum sér líkar og þegar per- sónuleikar þeirra fá að skína í gegn- um allan glamúrinn þá vinna þær sal- inn á sitt band. Og já! Ef maður kemst yfir þá staðreynd að kjólarnir þeirra kosta árslaunin hér á Fróni, þá er tískusýningin frekar flott. Og svo er ekki hægt að neita því að maður fyllist af einhverjum konu- krafti við að horfa á Sex and the City, það hefur ekkert breyst. Eitt besta atriði myndarinnar er einmitt þegar vinkonurnar syngja saman „I Am Woman“ í karókí. Þá langaði mig að hringja í allar vinkonur mínar og gera eitthvað konulegt og stelpulegt og æðislegt. Það er ástæða fyrir því að vinkonuhópar flykkjast á myndina, jafnvel uppdressaðar í háum hælum, og fara svo niður í bæ að fá sér kokteil á eftir. Þetta er bara gaman. Og það er ekkert að því. Sex and the City 2 er ekki að fara að vinna nein verðlaun (nema kannski fyrir búninga …?) en það er allt í lagi. Það er reyndar leiðinlegt hvað sagan er þunn, fyrri myndin var mun betri að því leyti, en þetta er hin besta skemmtun. Og þó mér hafi verið pínulítið ofboðið tvisvar eða þrisvar, þá á ég örugglega eftir að sjá hana aftur … og aftur … Sambíóin Álfabakka, Kringl- unni, Akureyri, Keflavík og Selfossi Sex and the City 2 bbbnn Leikstjóri og handritshöfundur: Michael Patrick King. Aðalhlutverk: Sarah Jes- sica Parker, Kristin Davis, Cynthia Nix- on, Kim Cattrall, Chris Noth. HÓLMFRÍÐUR GÍSLADÓTTIR KVIKMYND Tveggja tíma tískusýning Hið ljúfa líf Vinkonurnar njóta lúxuslífsins í furstadæminu Abu Dhabi. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI JAKE GYLLENHAAL GEMMA ARTERTON BEN KINGSLEY Frá framleiðanda Pirates of the Caribbean þríleiksins Jerry Bruckheimer kemur ein stærsta bíó- upplifun ársins. Gísli Örn Garðarsson er mættur í sinni fyrstu Hollywood mynd SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALIHHHH -H.S.S., MBL HHHH ENTERTAINMENT WEEKLY „DÁSAMLEGA SKEMMTILEG FLUGFERГ HHHH- EMPIRESÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÞRÍVÍDD Í REYKJAVÍK HHHH „Myndin er veisla fyrir augað og brellurnar flottar“ „Fagmannlega unnin – Vel leikin – Skemmtileg – Stendur fullkomlega fyrir sínu“ Þ.Þ. - FBL SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG KEFLAVÍK HHH - Entertainment Weekly Byggð á sögu Nicholas Sparks sem færði okkur Notebook. Miley Cyrus er æðisleg í sinni nýjustu mynd Sambíóin flytja ykkur þær gleðifregnir að föstudaginn 4. júní á myndinni Sex and the City 2 kl. 10:00, mun í fyrsta sinn á Ís- landi hefjast sérstakar kvikmyndarsýningar ætlaðar mæðrum með ungbörn. Munu þessar sýningar nefnast Mömmu- Morgnar. MömmuMor- gnar verða frábrugðnar hefðbundnum sýningum að því leiti að hljóð- styrkur verður ekki eins og gengur og gerist í bíó auk þess sem það verður ljóstýra í salnum mæðrunum til halds og trausts. MÖMMU- MORGNAR í SAMbíóunum Álfabakka föstudaginn kl. 10 SPARBÍÓ 600 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11 12 THE BACK-UP PLAN kl. 6 L PRINCE OF PERSIA kl. 8 10 COP OUT kl. 10:30 14 SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11 12 THE LAST SONG kl. 5:30 L PRINCE OF PERSIA kl. 8 - 10:30 10 SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11 12 LAST SONG kl. 8 L PRINCE OF PERSIA kl. 5:30 - 10:10 10 / KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.