Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 44
» Það að hljómsveitir séuófrumlegar, sökkvi sér í tónlistarstefnur liðinna tíma þarf ekki að vera ókostur enda krafan sú að menn séu að gera eitthvað nýtt eða eitthvað gam- alt á nýjan hátt. AF LISTUM Árni Matthíasson arnim@mbl.is ÍÁrósum ár hvert er haldin rokkhátíðsem kallast Spot og er aðallega ætluðnorrænum hljómsveitum, þó nú hafi ver- ið bryddað á því að hleypa að nokkrum hljómsveitum og listamönnum frá öðrum álf- um. Obbinn sem treður upp á Spot er þó danskur, sem skýrist vitanlega af land- fræðilegum staðreyndum fyrst og fremst en einnig af því að hátíðin er haldin að undirlagi og í skipulagi danska rokksambandsins, ROSA. Fyrir vikið má segja að Spot sé hátíð danskrar tónlistar og þá þess sem nýtt er og ferskast á því sviði. Á undanförnum árum hefur dönsk tónlist sótt verulega í sig veðrið eins og heyra hefur mátt á undanförnum Spothátíðum og óhætt að halda því fram að margar af bestu hljóm- sveitum Norðurlandanna sé danskar. Nefni sem dæmi Efterklang, sem væntanleg er á Airwaves í haust, Slaraffenland og Annika Aakjær, sem tóku þátt í Spot að þessu sinni. Að því sögðu þá hefur skortur á frumleika Ófrumlegt en þó skemmtilegt The Blue Van Ný tónlist en þó í senn gömul og góð, lög sem hljóma líkt og þau séu gömul. einkennt danska tónlist um hríð, löngunin eft- ir því að slá í gegn er býsna sterk þar í landi, svo sterk reyndar að hún ber listfengið oft of- urliði (sem má svosem líka segja um ýmiss konar íslenska tónlist).    Það að hljómsveitir séu ófrumlegar,sökkvi sér í tónlistarstefnur liðinna tíma, þarf það ekki að vera ókostur enda krafan sú að menn séu að gera eitthvað nýtt eða eitt- hvað gamalt á nýjan hátt. Hvað þá með þá sem gera eitthvað gamalt á gamlan hátt, semja ný lög sem hljóma eins og þau hafi ver- ið samin í fyrndinni? Víst er það ný tónlist en þó í senn gömul og góð, eða svo finnst í það minnsta þeim sem kunnu að meta sænsku sveitina Hives og falla nú fyrir dönsku rokk- sveitunum The Blue Van og Thee Attacks.    Fyrri sveitin troðfyllti og tryllti í Offí-seratjaldinu á Spot um daginn. Sú spilar þungarokkskryddað popp, kraftapopp sem minnir ekki svo lítið á The Who og breska rokksveitir sjöunda og áttunda áratugarins. Gríðarskemmtileg tónleikasveit en skilur lítið eftir sig.    The Blue Van er á kynnisferð um rokklífseinni hluta sjöunda áratugarins, en Thee Attacks beinir sjónum að því sem gerð- ist í bresku rokki á fyrrihluta áratugarins, dregur dám af The Kinks og álíka sveitum, má kannski lýsa þessum sveitum sem fyrir og eftir mod-bylgjuna (þó Kinks og Who hafi báðar borist með þeirri bylgju um hríð). Thee Attacks er ekki síður skemmtileg tónleika- sveit en The Blue Van, skemmtilegri ef eitt- hvað er, og þó sveitin hafi fengið minna pláss (Filuren) var þar allt orðið fullt vel áður en sveitin hóf leik sinn og fjörið ósvikið.    Þessar hljómsveitir tvær eru báðar lík-legar til að slá í gegn, sú síðarnefna reyndar mjög líkleg, en það verður þá ekki fyrir frumleika heldur fyrir hrein skemmti- legheit og er það ekki hið besta mál? Tónlist nærir andann, en stundum þarf að örva lík- amann líka. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Svalasta mynd ársins er komin! SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA Robert Downey Jr., Samuel L. Jackson, Gwyneth Paltrow, Scarlett Johansson, Don Cheadle og Mickey Rourke eru mætt í fyrstu STÓRMYND SUMARSINS HHHH „Iron Man 2 setur viðmið sem eru gulls ígildi fyrir framhaldsmyndir þökk sé leik- num hans Roberts Downey Jr. sem Stark“ - New York Daily News SÝND Í ÁLFABAKKA HHHHH “Þeir sem missa af þessari fremja glæp gegn sjálfum sér.” – Fbl.-Þ.Þ HHHHH „Fáránlega skemmtileg, fullkomlega uppbyggð og hrikaleg rússíbanareið sem sparkar í staði sem aðrar myndir eiga erfitt með að teygja sig í“ - Empire – Chris Hewitt HHHHH – H.G. – Poppland Rás 2 SÝND Í KRINGLUNNI CARRIE, SAMANTHA, CHARLOTTE OG MIRANDA ERU KOMNAR AFTUR OG ERU Í FULLU FJÖRI Í ABU DHABI. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI HEITASTA STELPUMYND SUMARSINS SKEMMTILEGASTI VINKVENNAHÓPUR KVIKMYNDA- SÖGUNNAR ER KOMINN Í BÍÓ GLAUMUR, GLAMÚR OG SKÓR ERU MÁLIÐ Í SUMAR SPARBÍÓ 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu SEX AND THE CITY 2 kl. 4 -5D -7-8D -10- 11D 12 DIGITAL THE LAST SONG kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 L SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11 VIP-LÚXUS IRON MAN 2 kl. 8 - 10:30 12 SEX AND THE CITY 2 kl. 10 MömmuMorgnar 12 DIGITAL KICK-ASS kl. 5:40 14 PRINCE OF PERSIA kl. 3 -5:30-8-10:30 10 DIGITAL AÐ TEMJA DREKANN SINN kl. 3:40 m. ísl. tali L / ÁLFABAKKA SEX AND THE CITY 2 kl. 5D - 7D - 8D - 10D - 11D 12 PRINCE OF PERSIA kl. 5:30 - 8 - 10:30 10 OFURSTRÁKURINN kl. 5 m. ísl. tali L / KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.